Organistablaðið - 01.09.1976, Qupperneq 23
KIRKJUTÓNLISTARMENNTUN
Námsskrdr Tónlistarskólans i Reykjavík
jyrir orgelnemendur
Fyrir skömmu birtust í Organistablaðinu upplýsingar um það
(hvernig kirkjutónlistarmenntun væri Iháttað meðal Finna,
Norðmanna og Svía.
Að þessu sinni verða birtar þær námsskrár sem orgelnem-
endum heíur verið kennt eftir við Tónlistarskólann í Reykja-
vík. Fyrsta námsskráin er frá árinu 1944, önnur frá árinu
1957 og hin síðasta frá árinu 1975. Fara þær liér á eftir.
NÁMSSKRÁ FRÁ 1944
Reglugerð fyrir Tónlistarskólann i Reykjavik.
IV. Próf og námsskírteini. Nemendatónleikar o. fl.
11. gr. Fullnaðarpróf. Kröl'ur þær, sem skólinn setur til
fu 11 naðarprófs í einstökum aðallnámsgreinum miðast við kunn-
áttu þá, er tónverk útheimta, sent hér segir:
k. Organ. A. Próf fyrir einleikara (Kunstorganleikara):
Schneider: 3 pedalæfingar (þær erfiðustu): Bach: 4 sálmfor-
'leikir úr 5. bindi Peters-útgáfu. Pachelbel: Ghaconne, f-moll,
eða Buxtehude: Passacaglía d-moll. Bach: Praludium und
Fúga, Es-dúr, eða Toccata og Fúga, d-mol. Mendelsshon:
Sónata, d-moll eða Sónata, A-dúr. César Franck: Prélude,
Fuge et Variations, eða Pastorale.
B. Próf fyrir kirltjuorganleikara: Til kirkj uorganleikara-
prófs, sem er mun auðveldara og eingöngu miðað við organ-
leik innan evangelisku kirkjunnar, eru gerðar þessar kröfur,
a. Litúrgiskur organleikur: Sálmur og víxlsöngur, b. Mó-
dúlation, improvisation, og leikið frá blaði, c. Þrír sálma-
•forleikir eftir Bach (auðveldari), og fjórir sálmforleikir eftir
Piutti, d. Kórstjórn.
12. gr. Allir þeir nemendur, sem ljúka fullnaðarprófi í
ORGANISTABLAÐIÐ 23