Organistablaðið - 01.12.1979, Side 24

Organistablaðið - 01.12.1979, Side 24
Það voru erfiðir tímar hjá Sigurði og Áslaugu Sveinsdóttur, konu hans, þegar hann samdi lagið "Mamma", við Ijóð eftir Stefán frá Hvítadal. Samfylgdin Áslaug heldur áfram: Það var einhverju sinni, meðan á þessu veikindastríði stóð, að drengurinn hafði verið mjög órólegur um daginn og ég þurfti að vera mikið með hann. Þegar pabbi hans kom heim úr vinnunni, sá hann að ég var þreytt, og segir: - Ég skal hvíla þig og vera með drenginn, - hresstu þig upp og farðu á bíó með vinkonu þinni. Ég gerði þetta. Þegar ég kom heim, sat Sigurður við hljóðfærið með drenginn á hnjánum og 'Söngva förumannsins", eftir Stefán frá Hvítadal í hendi. Hann segir við mig: "Æi, þetta hefur verið ósköp lélegt hjá mér, - ég get ekki neitt." Ég tók við drengnum, en Sigurður sat við píanóið og var að spila sundurlausa tóna. Eftir litla stund sefaðist drengurinn. Sigurður stóð ekki upp og allt í einu lék hann viðstöðulaust lagið: "Mamma. -Ó, mamma! Ég er sjúkur og sár og sál mín þreytt." Gunnar M. Magnúss Sigurðar bók Þórðarsonar Setberg i dag skein sól "Stundum er eins og heilum lögum hafi verið hvíslað að mér / einni svipan Þá er komið að stofnanda Félags íslenskra organleikara. Frá 1939 til 1968 gegndi Páll ísólfsson því erilsama starfi, dómkirkjuorganleikaraembættinu í Reykjavík. En hann kom miklu víðar við í tónlistarmálum islendinga. Samt gafst honum tími til að semja fjöldamörg tónverk, smá og stór, margvísleg að efni og formi.

x

Organistablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.