Organistablaðið - 01.12.1979, Blaðsíða 41
eitt blessað barnið er" eftir J.S.Bach.
Fríkirkjukórinn söng nokkur lög. Hjálmtýr
Hjálmtýsson söng einsöng. Ennfremur var
helgileikur eftir sr. Hauk Ágústsson, sem
börn úr Mýrarhúsaskóla fluttu. Hlín
Torfadóttir stjórnaði og svo var almennur
söngur.
Fríkirkjan í Hafnarfiröi. Aðventukvöld 10.
des. Talað orð: Formaðursafnaðarstjórnar:
Ávarp. Ólafur Þ. Kristjánsson, fyrrv.,
skólastjóri: Ræða, Frú Elínborg Magnús-
dóttir: Upplestur, Sr. Magnús Guöjónsson:
Lokaorð. Tónlist: Jón Mýrdal lék Prelúdlu í
F-dúr eftir Buxtehude og Fúgu í g-moll eftir
J.S.Bach. Félagar úr Lúðrasveit Hafnar-
fjaröar léku jólalög. Skólakór Garðabæjar
söng undir stjórn frú Guðfinnu Dóru
Ólafsdóttur. Auk þess var almennur söngur
sem kirkjukórinn leiddi undir stjórn Jóns
Mýrdals, organista kirkjunnar.
Aðventukvöld í Dómkirkjunni 3. des.
Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar stóð
fyrir samkomunni. Karlakórinn Fóstbræður
söng og Sieglinde Kahman söng við undir-
leik Martins Hungers.
Kirkjukór Akraness hélt tónleika í
Kristskirkju í Landakoti 7. des. Stjórnandi
Haukur Guðlaugsson, söngmálastjóri.
Organleikarar Fríða Lárusdóttir og Árni
Arinbjarnarson. Einsöngvarar Ágústa
Ágústsdóttir og Ágúst Guðmundsson. Flutt
var kirkjuleg jólatónlist eftir ýmsa höfunda.
Aðventukvöld í Landakotskirkju 8. des.
Fyrir því gekkst Félag katólskra leikmanna.
Jólatónleikar Tónlistarskóla Rangæinga
voru haldnir 10. des. fyrst í Hábæjarkirkju í
Þykkvabæ og síðan sama dag í Stóra-
Dalskirkju undir Eyjafjöllum.
Víkurkirkja. Þar var aðventukvöld 10. des.
Ragnheiður Guðmundsdóttir og kirkju-
kórinn undir stjórn Sigríðar Ólafsdóttursáu
um tónlistina.
Aðventukvöld í Kársnessókn var haldið í
Kópavogskirkju 10. des. Kirkjukórinn undir
stjórn Guðmundar Gilssonar organista
kirkjunnar og Ingveldur Hjaltested sáu um
tónlistina.
Aðventukvöld í Laugarneskirkju 1 0. des.
Skiptist þar á talað orð og tónlist. Organisti
kirkjunnar, Gústaf Jóhannesson lék á
orgelið, kirkjukórinn söng jólalög.
Skagfirska söngsveitin hélt Jólatónleika í
Bústaðakirkju 14. des. Söngstjóri
Snæbjörg Snæbjarnardóttir. Þessir tón-
leikar voru síðan endurteknir í
Hveragerðiskirkju.
Tónskóli Fljótsdalshéraðs hélt jólatónleika
í Egilsstaðakirkju 14. des. Hljómsveit,
skipuð kennurum og nemendum skólans
lék, og ennfremur voru einleikar á ýmis
hljóðfæri.
Samkór Rangæinga hélt Aðventutónleika
í Stórólfshvolskirkju 14., Oddakirkju 15., og
Bústaöakirkju Reykjavík 1 6. des. Stj. Friðrik
Guðni Þorleifsson.
ORGANISTABLAÐIO 41