Organistablaðið - 01.10.1982, Qupperneq 13
Sunnudagur 1 7. júní
Messa í Hofmusik-kapellu. Flutt stórfallegt kirkjutónverk eftir Mozart, Vínar-
drengjakórinn söng með undirleik hljómsveitar. Fagur á að hlýða. Þetta var í boði
biskupsembættisins hér heima. En við lá að við yrðum af þessu. Carter
Bandaríkjaforseti og fylgdarlið hans var við þessa sömu messu og var einhver
þrýstingur með að útiloka okkur með því að afgreiða okkur ekki með löngu
fyrirfram pantaða miða. Af því varð þó ekki, en farið var með leitartæki utaní
okkur, við innganginn. Við áttum góða stund í þessari fallegu kirkju og vil ég hér
nota tækifærið, að þakka biskupi fyrir þær góðu stundir er við áttum í boði hans, í
Tómasarkirkjunni, þarna og í klaustri er við sáum síðar um daginn. - Þegar
útgöngulagið hófst, var okkur bent að ganga þegar út, en úti fyrir var mannþröng
mikil. Veginum var samt haldið opnum, svo að forsetinn kæmist áfram. Hann
heilsaði þeim með handabandi er næstir stóðu, meðal þeirra var ein úr okkar
hópi. ég var lengra frá og sá hann ekki.
Þarna á eftir var messa í Ágústínerkirkjunni, hún er þarna skammt frá. Fóru
sumir úr okkar hópi þangað, og Haukur með þeim. Létu þeir mjög vel yfir. Þarna
var flutt ' Missa Solemnis" eftir Mozart. Sá ég hálfpartinn eftr að hafa ekki farið
þangað, en ég fór í hóp með þeim, er fóru að skoða safn eitt mikið frá
keisaratímanum, fór Jónas með okkur, dvöldum við þar um stund. Eru þarna til
sýnis búningar og gripir frá keisaratímanum, skírnarkjólar, skykkjur, kórónur og
veldissprotar, allt prýtt með gulli og gimsteinum, gullsaumaðog ofið. Þarna rt.d.
síð skykkja, öll gullsaumuð og lögð, hún var sögð 18kg., ekki hefir verið létt að
bera hana.
Nú héldum við sem leið lá út úr bænum, en komum við í íbúð þeirri er Schubert
fæddist í, ekki er hún stór, aðeins forstofa, sem jafnframt var eldhús, meðeldstó
við reykháfinn. Þar innaf er stofa ekki stór, en þarna ólust upp 12 systkini.
Á eftir var farið að skoða klaustrið í Klosterburg, eru þar húsakynni vegleg,
rúmgóðir salir, skreyttir myndofnum teppum. Sú kvöð lá á klaustrinu, að hýsa
keisarann og fylgdarlið hans, er hann var þarna á ferð. Margt er að sjá þarna af
fallegum gripum, eru sumir þeirra geymdir bak við læstar hurðir, þurfti aðopna 2
hurðir, til að komast að þeim. Þarna er orgel frá baroktímabilinu, byggt árið 1 642,
eitt merkilegasta orgel sem til er frá þessu tímabili.
Þar næst var farið í bíl gegnum Höhenstrasse, Vínarskóg, og upp á
Leopoldsberg er þar kastali frá fyrri tíð. Eigi fórum við þar inn, en þarna erfallegt
útsýni yfir Vínarborg og umhverfi hennar. Við nutum hins fallega útsýnis um
stund, en héldum svo til Grinzig, sem er frægur og vinsæll veitingastaður.
Þangaðlögðu hinirfrægu tónsnillingar, s.s. Schubert, Beethoven, o.fl. leiðsína á
sínum dögum. Þarna var 17. júní haldinn hátíðlegur. Ýmsir íslendingar, er búa
þarna og stunda nám, komu þarna og glöddust með okkur við söng og samtöl,
sem gott er að minnast.
Mánudagur 18. júní. - Frjáls dagur.
Haukur og Smári fóru með nokkrum (sem vildu) úr hópnum til organista eins í
borginni, en sá sýndi okkur sitt einkaorgel frá verkstæðinu, sem hópurinn
heimsótti þann 1 6. júní. Fengum viðaðspila á það, en slíktfæst ekki hvarsem er.
ORGANISTABLAÐIÐ 13