Organistablaðið - 01.01.1989, Page 1

Organistablaðið - 01.01.1989, Page 1
ORGANISTABLAÐIÐ Organistar — prestar — plötusnúðar Á undanförnum misserum hefur nokkrum kirkjum á höfuðborgarsvæðinu bæst nýir kraftar til f lutnings tónlistar og um leið organistum nýtískulegur liðs- auki. Hér á ég við fullkomin hljómflutningstæki sem komið hefur verið upp til notkunar í tengslum við helgihald. Með því er eflaust verið að auka mögu- leika á flutningi kirkjulegra tónverka. Segja má aö það sé heldur ekki í kot vís- að í þessum kirkjum að geta nú valið á milli Karajan og Harnoncourt, Berlínar Fílharmoníunnar og Concertus Musicus frá Vín til flutnings glæstra tónverka við kirkjuathafnir, í stað misvel heppnaðra tilrauna organistanna til að upp- fylla tónlistarþörf helgihaldsins. Auk þess kostar svo sem ekkert að fá þessa góðu gesti til að koma þannig fram, a.m.k. ekki miðað við það að fá tónlista- menn af holdi og blóði til aö flytja kantötur og messur meistaranna. Ég er sannfærður um að snöggsoðinn kantötuflutningur Bachs í Tómasarkirkjunni forðum hefði hljómað afkáralega við hliðina á því besta, sem geisladiskamark- aðurinn býður upp á í dag. Til viðbótar kemur síðan óhemju mikil fjölbreytni í verkefnavali, sem hin nýja tækni býður upp á, ný svið tónlistarinnar opnast, leika má Beethovensinfóníur, eöa strokkvartettao.rn.fi. Svogæti organistinn líka losnað við erfiðar æfingar með því að fá Gaston Litaize eða Marie-Clair Alain til að leika forspil og eftirspil af diski og kirkjuvörðinn til að setja plötu á fóninn á undan athöfninni, svona til að skapa „huggulegt" andrúmsloft í kirkj- unni. Nú finnst lesandanum e.t.v. að ég sé kominn langt út af sporinu í lýsingu minni á notkun hljómflutningstækja í hinum tæknivæddu kirkjum og að svona sé þetta alls ekki í raun. Það er víst rétt. Hingað til hafa tækin ekki beinlínis komið í staö kirkjutónlistarmannasafnaðanna, svoég viti, en ég heffyrirsatt að í nokkrum kirkjum sé algengt að láta Beethovensinfóníur og strengja- kvartetta, sálumessur o.fl. hljóma af diskum við móttöku kirkjugesta í jaröar- farir og guðsþjónustur. Það fylgir og sögunni að mörgum þyki afar viðkunnan- legt að á þennan hátt sé breitt yfir þrúgandi þögn, óþægilegt fótatak og skrjáf

x

Organistablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.