Organistablaðið - 01.01.1989, Blaðsíða 11

Organistablaðið - 01.01.1989, Blaðsíða 11
Organistatal Æ: - Nú er mér kunnugt um aö þú ert farinn aö vinna að organistatali, hvenær fékkstu hugmyndina aö því? G: - Ég held aö þaö séu tvö ár síðan, að þetta barst í tal á milli okkar frændanna, Helga Ólafssonar, aö gaman væri aö taka saman organistatal, því þetta hefði ekkert veriö unniö í þessu hér á íslandi áöur. Æ: - Ertu eitthvað kominn af staö meö þessa vinnu? G: - Ég er búinn aö skrásetja á annað hundrað organista og Helgi mun vera búinn aö setja þaö inn í tölvuna, a.m.k. aö mestu leyti. Æ: - Og hvernig ætlarðu þér aö vinna þetta? G: - Meiningin eraðskrifa hverri sóknarnefnd á landinu og fáþannig upp- lýsingar um organista. Ég hef þegar fengið svör frá 6 sóknarnefndum og þar eru miklar upplýsingar. Æ: - En þig vantar svörfráfleirum. G: - Jaá. Æ: - Er Helgi á Hvammstanga tölvumeistari þinn? G: - Já, ég safna upplýsingum og skrifa þær niður, en hann kemur þeim svo inn í tölvuna. Æ: - Þú hefur sem sagt í mörg horn aö líta og ert enn á fullu bæöi sem organisti og í kirkjukórnum á Skagaströnd og ætlarað verða það áfram vænt- anlega? Aðalstarfið - lifibrauðið Æ: - Viðerumnúbúniraðræðavíttogbreittumstörfþínsemorganista, við skrásetningu á útvarpsguðsþjónustum og organistatal en hvert er þitt aðalstarf eftir að þú kemur til Skagastrandar. G: - Það hefur verið að ég hef verið póstur, byrjaði 2. maí 1951 og hef veriö síðan. Æ: - Er þetta ekki töluvert kulsamt starf á köflum? G: - Jú það er það, jú og póstur hefur aukist nú upp á síðkastið, já alveg í stórum stíl frá því sem var. Æ: - Og þú ert oft lengi við að bera út og lesa í sundur póstinn. G: - Jaá og ég er oft fram að nótt að bera út, jafnvel fram um miðnætti. Æ: - Hefurðueitthvaðveriðaðvinnafyrirkórinnumleiðogþúhefurboriö út? G: - Jú, jú, ég hef boðað allar söngæfingar frá því að ég kom hingað og það hef ég skrifað niður á miða til hvers og eins. Þetta hef ég gert alveg frá því að ég kom hingaö. Æ: - Og læddir því inn um bréfalúguna meö póstinum hjá kórfélögum svo þeir komust ekkert hjá því að lesa það. G: - Nei, væntanlega ekki. Hér lýkur viðtali sr. Ægis viö Guðmund organista, skrásetjara og þóst á ORGANISTABLAÐIÐ 11

x

Organistablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.