Organistablaðið - 01.01.1989, Blaðsíða 20
Lagabreytingar
Smári Ólason benti á möguleika á lífeyrisreikningi. Guðmundur Gilsson
taldi þörf á að skilgreina orðin sem notuð eru um kirkjutónlistarmenn. Hann
taldi að nafnið „Félag kirkjutónlistarmanna" væri of yfirgripsmikið, félagið
ætti að vera fagfélag og hann vildi fá að vita hvort heimilt væri að stofna stétt-
arfélag. Hann vildi hafa tvo hópa í félaginu, annars vegar félag þeirra sem
hafa full réttindi og hins vegar þeirra sem ekki hafa réttindi. Smári Ólason
benti á að hægt væri að óska eftir því með þessum lagabreytingum að fá fé-
lagið viðurkennt sem stéttarfélag.
Helgi Bragason vildi bíða með að ganga til samninga. Þröstur Eiríksson
kvaðst hafa athugað með stéttarfélag í félagsmálaráðuneyti og hafa fengið
þau svör að einföld aðalfundarsamþykkt í formi félagslagaákvæðis nægði til
þess að fá fullgildingu. Nauðsynlegt væri að skilgreina vel orðin organisti,
orgelleikari og organleikari. Hann lýsti sig mótfallinn því að þeir sem hefðu
réttindi til þess að starfa en væru ekki í föstu starfi væru fullgildir félagar.
Smári Ólason lýsti andstöðu við álit Helga Bragasonar, hann vildi ekki ein-
skorðafullafélagsaðild viö fastráðningu í starf. Karl Sighvatsson lýsti því yfir
að landsbyggðarorganistar ættu mjög erfitt nfeð að sækja fundi síödegis á
sunnudögum. Orthulf Prunner vildi fá útskýringu á 11. grein varðandi kjara-
samning. Kjartan Sigurjónsson benti á að þessi grein væri hugsuð til að ýta
við héraðsnefndum og kirkjunni til þess að mögulegt sé að fá heildarsamn-
ingsaðila. Ann Toril Lindstad tjáði sig mjög ósammála því að þeir sem hafa
réttindi en starfa ekki, séu fullgildir félagar. Þorvaldur Björnsson ræddi um
deildaskiptingu, taldi æskilegt að gera heildarkjarasamning. Auk framan-
greindra tjáðu sig Glúmur Gylfason og Marteinn H. Friðriksson um málið.
Urðu síðan umræður um einstakar greinar tillagnanna. Tillögurnar voru svo
samþykktar og bornar upp ein í senn og eru því félagslög F.Í.O. þannig með
áorðnum breytingum:
1. gr.
Félagið heitir „Félag íslenskra organleikara". Lögheimili þess og varnar-
þing eru í Reykjavík.
2. gr.
Félagið er stéttarfélag kirkjuorganleikara. Markmið félagsins eru:
a) aö gæta hagsmuna félagsmanna og semja um eða ákveða launataxta og
kjör fyrir öll störf þeirra, en félagið kemur fram fyrir hönd stéttarinnar í öll-
um hagsmunamálum hennar.
b) að vinna að eflingu kirkjutónlistar í landinu með fræðslufundum, tónleika-
haldi, útgáfustarfsemi og á annan tiltækan hátt.
3. gr.
Fullgildir félagar geta orðið allir þeir, sem hafa réttindi eða hæfni sem org-
20 ORGANISTABLAÐIÐ