Organistablaðið - 01.01.1989, Blaðsíða 7
/ heimsókn hjá Sigurdi ísleifssyni í Fríkirkjunni.
Æ: - Og síðan hefurðu verið organisti á Hofi og spila þar við margar
messur og athafnir?
G: - Já, já.
Æ: - En hvenær byrjarðu sem organisti á Höskuldsstöðum?
G: - Ég held að það hafi verið 1976, ég tók þar viðaf Stefáni Ágústssyni
á Ytri-Ey. Orgelið þar er jafngamalt kirkjunni, það var gefið á vígsludegi kirkj-
unnar 31. mars 1963 og var þá nýtt. Við þá athöfn spilaði Kjartan Jóhannes-
son söngkennari frá Stóra-Núpi. Hann var þá hér á ferðinni að þjálfa kórana
í Höskuldsstaðasókn og á Skagaströnd og þeir sungu saman við vígsluna.
En orgelið í Hofskirkju var orðið lasið þegar ég byrjaði þar. Það þurfti að stíga
það í líkingu við spunarokk, belgurinn var eiginlega alveg ónýtur.
Æ: - Þannig að þú hefur mátt hafa þig allan við.
G: - Svo var fenginn maður að sunnar, hann gerði við belginn og síðan
hefur það verið nokkuð gott. Þetta orgel er orðið nokkuð gamalt.
Æ: - Það væri kannski forvitnilegt að spyrja hvernig hafi gengið að halda
uppi kirkjukórum í þessum sóknum hér, fámennum sóknum, a.m.k. nú orðið?
G: - Já, það hefur nú gengið svona og sovna, maður er að reyna að fá
ORGANISTABLAÐIÐ 7