Organistablaðið - 01.01.1989, Blaðsíða 12
Skagaströnd. Vísnagerð og Ijósmyndun eru talsvert fyrirferðarmiklir þættir í
sérstæðum æviferli þessa hægláta Norðlendings. Ferðir á kirkjuhátíðir
norðanlands eru einnig hluti af lífsmynstrinu. Guðmundur þekkir prestana og
á sínar myndir af þeim og kirkjunum víðs vegar af landinu. Hann á gott bóka-
safn, sem hann kemur fyrir á gangi inn af litlu íbúðinni sinni í húsi undir Höfð-
anum á Skagaströnd. Þangað flutti hann frá Ægissíöu eins og áður kemur
fram. Og þar út við strendur Húnaflóans heldur hann áfram sínu lífsspili.
Fréttir af organlstanámskeiði
Haukur Guðlaugsson hélt nú sitt
14. organistanámskeið eftir að hann
varð söngmálastjóri. Hafa þau verið
haldin í Skálholti, upphaflega síðla
sumars, en nú síðustu þrjú árin
snemmsumars. Þessi námskeið
urðu strax mjög vinsæl og vel sótt af
organistum víðsvegar af landinu.
Söngmálastjóri þykir afar laginn að
laða þátttakendur til ýmissa verk-
efna, sem vel nýtast í störfum org-
anistanna fyrir kirkjurnar og hefur
lagt kapp á að fá til námskeiðanna
hæfustu kennara, auk fyrirlesara og
listamanna, sem hafa heimsótt
námskeiðin og komið þar fram á
kvöldvökum.
Þátttakendur komu nú saman
föstudagskvöldið 3. júní og dvöldust
flestir í Skálholti til sunnudagsins
12. júní, en fimmtudagskvöldið 9.
júní fóru kórfélagar að flykkjast að
Skálholti og bættust nær 100 manns
við hópinn þá um kvöldið, en sumir
komu daginn eftir. Námskeiðinu
lauk svo með hefðbundnum hætti,
messu íSkálholti kl. 14ásunnudag,
þar sem organistar stjórnuðu og
léku á orgel kirkjunnar, en einsöng-
varar komu fram, bæði í messunni
og eins á 5 stundarfjórðunga tón-
leikum, sem fram fóru á undan
messunni og hófust 12.45.
Þetta námskeið var einnig helgað
einsöngvurum, en svo hefur verið
nokkur undanfarin ár. Kennarar
þeirra voru Guðrún Tómasdóttir og
Halldór Vilhelmsson.
Dagana 6.-8. júní var haldinn
„meisterkursus" í orgelleik með
pedal í Selfosskirkju, kennari var
Próf. Gerard Dickel frá Tónlistarhá-
skólanum í Hamborg, en túlkur
Máni Sigurjónsson orgelleikari.
Ýmsir góðir gestir heimsóttu Skál-
hyltinga meðan á námskeiðinu stóð.
Kirkjumálaráðherra Jón Sigurðsson
og Þorleifur Pálsson deildarstjóri í
sama ráðuneyti komu, Sunnukórinn
á (safirði söng undir stjórn Beötu
Joo, nágrannakórarfrá Eyrarbakka-,
Selfoss-, Ólafsvalla-, Stóranúps-,
Hrepphóla- og Hrunamannakirkjum
komu og sungu en prestar úr Árnes-
prófastdæmi komu og höfðu kvöld-
bænir. Haldnir voru Bachtónleikar á
Selfossi, Ulrich Böhme organisti
Tómasarkirkjunnar í Leibzig hélt
tónleika í Skálholtsdómkirkju,
Guðný Guömundsdóttir og Gunnar
Kvaran héldu tónleika þar og hefð-
bundin samkoma þátttakenda var í
Aratungu auk margs annars.
12 ORGANISTABLAÐIÐ