Organistablaðið - 01.01.1989, Side 2

Organistablaðið - 01.01.1989, Side 2
sem óhjákvæmilega fylgir lifandi fólki sem safnast saman í helgidóminum. En hvaö verður nú um „stemninguna" þegar sjálf athöfnin hefst að loknum þessum nýtísku „apperatíf“ og vesalings organistinn byrjar forspilið á litla, gamla orgelið sem engan samanburö stenst við hljómgæði „græjanna"? Er það ekki bara tímaspursmál hvenær „fólk“ óskar eftir að það hljómi líka út úr hátölurunum? Svo virðist sem menn geri engan greinarmun á lifandi flutningi tónlistar, sem er bundinn stað og stund og „niðursoðnum" flutningi af fjölda- framleiddum skífum. Ég álít það vera mjög brýnt aðorganistarfjalli um þessa nýju stefnu kirkjutónlistar. Það hljóta aö veraþeirsemeru ábyrgir fyrir tónlist- arflutningi í kirkjunni, auðvitað í samráði við prestana, sem stjórna messunni. Þó er það ekki einungis mál þessarar starfsstéttar, sem með áframhaldi á sömu braut gæti smám saman orðið að víkja fyrir plötusnúðum (sem gætu m.a.s. gegnt starfi meðhjálpara jafnframt!) heldur og allra þeirra sem vilja að guðsþjónustan sé lifandi samfélag fólks og forða, a.m.k. heilagri kirkju frá vaxandi trú samtímans á plast og tæknibrellur. Ég hvet organista, presta og annað kirkjunnar fólk að hugleiða og ræða nokkrar spurningar varðandi þetta mál: - Hvað merkir lifandi tónlistarflutningur í helgihaldi? - Hvaða erindi eiga eftirlíkingar, plastblóm og niðursoðin tónlist á altari Drottins? - Eru hugtökin „notaleg" og „hugguleg stemning“ eftirsóknarverð í sam- hengi við helgar tíðir? Svörin við þessum spurningum verða ekki einhlýt, en umræða gæti leitt til vaxandi vitundarorganistans um starfsvettvang sinn. Ef til vill ættu organistar og prestar að efna til ráðstefnu um málefni kirkjutónlistarinnar almennt, því mikið er undir þeirra samstarfi komið og gagnkvæmur skilningur á vettvangi beggja starfsstétta nauðsynlegur. Víst er að opinská og frjó umræða um þetta málefni er einungis af hinu góða. Ekki trúi ég að nokkur óski kirkju framtíðarinnar að guðsþjónustum hennar stjórni prestar og plötusnúðar, eða jafnvel bara plötusnúðar því hver veit nema tæknin eigi eftir að fjölfalda ræð- ur bestu prédikara kristninnar og gera þannig prestinn einnig óþarfan. Hörður Áskelsson 2 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.