Organistablaðið - 01.01.1989, Blaðsíða 4
Frá Söngmálastjóra:
Organistanámskeið Söngmálastjóra
27. ágúst til 3. september 1989
Námskeiðið var nú öðru sinni haldið samtímis í Skálholti og á Selfossi. í
Selfosskirkju kenndi prófessor J.E. Goettsche frá Róm. Þar voru orgeltón-
leikar og lokahóf í boði Árnesprófastsdæmis haldið í safnaðarheimilinu.
Einnig sýnikennsla í stjórn barnakóra, en þema námskeiðsins var: „Barna-
kór í kirkju".
Meginhluti námskeiðsins var í Skálholti.
Fyrir einstakan velvilja húsráðenda á öllum heimilum á staðnum tókst að
finna svefnrúm fyrir 130 nemendur og starfsmenn í heila viku.
50 börn komu daglega frá Selfossi og Hveragerði og mynduðu æfingakór.
Því hlaut svo að fara við lokamessuna að ekki kæmust allir að sem hlýöa
vildu. Fjölmargir stóðu, innandyra eða utan eða biðu í bílum sínum.
Meðan á námskeiðinu stóð voru haldnir tvennir tónleikar barnakóra. Þar
sungu Svenstrup Skoles kor, Skólakór Garðabæjar og Kór Öldutúnsskóla.
Einnig hélt J.E. Goettsche orgeltónleika í Skálholti.
Efni það sem notað var á námskeiðinu var að þessu sinni gefið út í fjórum
bókum auk messuheftis. Tvær þeirra eru söfn af raddsetningum erlendra
laga fyrir barnakór og flestar eftir útlendinga. Þriðja bókin er raddsetningar
Ríkharðar Arnar Pálssonar á þremur enskum kirkjulögum. Sú fjórða er verk
Jóns Hlöðvers Áskelssonar. Eru það íslensk lög raddsett fyrir barnakóra og
blandaðan kór.
í bókunum hefur verið lögð áhersla á að hafa raddsetningar fyrir barnakór
og blandaðan kór sem syngi saman.
Þá má geta þess að við lok námskeiðsins kom út tónverk fyrir barnakór,
blásara og orgel eftir Guðmund Hafsteinsson. Texti: Jesaja 40; 29-31.
Ríkharður Örn Pálsson vinnur nú að frumsömdu verki fyrir tvo barnakóra
og mun Ijúka því í ár. Texti: Davíðssálmur 136. Þá er nýtt lagasafn í undir-
búningi. Verða það barnakórsraddsetningar með píanó- eða orgelundirleik.
Síðast en ekki síst er það að frétta, að Guðmundur Eiríksson frá Selfossi
vinnur að kandídatsverkefni við Tónlistardeild Kennaraháskólans í Kaup-
mannahöfn undir handleiðslu John Hoybye. Hefur orðið að samkomulagi að
verkefni hans verði að búa fimm lög úr fórum Sálmabókarnefndar til flutnings
fyrir barnakór með ýmsum hætti og verða þau gefin út af Söngmálastjóra.
Glúmur Gylfason
4 ORGANISTABLAÐIÐ