Organistablaðið - 01.01.1989, Qupperneq 8

Organistablaðið - 01.01.1989, Qupperneq 8
fólk til liðs við sig, kannski er lítið af söngfólki og það eru margir sem segjast ekkert syngja, hvað sem rétt er í því. Æ: - Jæja, en alltaf hefurðu haft einhverja til að syngja? G: - Já, já. Bassi í Hólaneskirkjukór Æ: - En nú hefurðu ekki aðeins verið lengi organisti á Hofi og Höskulds- stöðum, heldur hefurðu lengi sungið í kórnum við Hólaneskirkju á Skaga- strönd, hvenær byrjaðirðu? G: - Ég fór að syngja á Skagaströnd 1948 og söng bassa, en þá var ég búinn að vera 5 ár í kirkjukórnum í Bólstaðarhlíð, þá stjórnaði honum Þor- steinn heitinn Jónsson frá Gili og síðan tók Jón Tryggvason við. Sömuleiðis söng ég eitt ár í Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps. Það var árið 1944. Æ: - Nú hefur þú lengi fylgst með við Hólaneskirkju, hvernig hefurgengið að halda uppi kórnum hér á Skagaströnd í þau 40 ár, sem þú ert búinn að syngja í honum? G: - Svona þokkalega, annars vilja koma gloppur í þetta einsog gengur og gerist með mætingar og annað. Æ: - Hvað hefur kórinn verið fjölmennur? G: - Ég man ekki eftir að það hafi verið fleiri en 15. Oft svona 12-15. G: - Organistar hafa verið Páll Jónsson skólastjóri, sem spilaði til vorsins 1965, en þá tók Kristján Hjartarson við og spilaði í 19 ár, til 1984, þá tók við Sigurður Daníelsson og spilaði í tvö ár, en þá tók við Jane Sillar núverandi organisti. Æ: - Ég hef grun um að þú hafir kennt raddir í kirkjukórnum héráSkaga- strönd. G: - Jájá, ég gerði dálítið af því meðan Kristján var organisti. Æ: - En þú hefur sungið meira, þú hefur aðeins komið við sögu í Sam- kórnum Björk. G: - Jú, ég hef sungið þar í tvö ár. Félagsstarf í kirkjukórnum Æ: - Nú er það þannig með kirkjukórinn á Skagaströnd að hann hefur ekki aðeins sungið í kirkjunni, heldur líka haldið kvöldvökur og verið að safna fé til kirkjunnar eða einhverra þátta í starfsemi kirkjunnar, einnig hefur stund- um verið boðið í kaffi eftir messu og þar hefur kórinn sungið ýmis lög. Hefur þettatíðkast lengi? G: - Nei, það hefur verið að aukast núna. Annars hélt kórinn stundum árlegar kvöldvökur, en einhvern veginn féll það niður. Og þá má nú einnig geta þess að á tímabili var farið í skemmtiferð á hverju ári. Eitt árið fórum við í kringum Vatnsnesið með viðkomu á Hvammstanga og sungum þar í kirkj- unni sömuleiðis var fjöldasöngur í Félagsheimilinu, auk þess komum við í 8 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.