Organistablaðið - 01.01.1989, Side 16

Organistablaðið - 01.01.1989, Side 16
eru: Margrét, kennari, fædd 14. apríl 1943 og Halldór, flautuleikari, fæddur 15. júní 1946. Páll lauk kennaraprófi frá Kennaraskólanum í Reykjavík 1925. Hann nam orgelleik hjá Páli ísólfssyni 1926-1930. Hljómfræöi hjá Sigfúsi Einarssyni og kontrapunkt hjá dr. Victori Urbancic. Áriö 1948-1949 stundaði hann fram- haldsnám í Musikschule & Konservatorium í Basel, og Det kgl. danske Musik- konservatorium og Statens Lærerhöjskole í Kaupmannahöfn. Hann sótti námskeið í klassískum kirkjusöng í Halmstad í Svíþjóð árið 1948, og nám- skeið norrænna tónlistarkennara í Osló 1949. Kennsluferil sinn hóf hann við Nauteyrarhr.skóla, N-ís., 1925-1926. Kenn- ari við Austurbæjarskóla í Reykjavíkfrá 1930 til 1959. Stundakennari við lön- skóla Reykjavíkur 1930-1932. Verslunarskóla íslands 1932-1936. Söngstjórn: Karlakór Hnífsdælinga 1919-1920. Karlakór iðnaðarmanna 1932-1942, Söngfél. Þrestir í Hafnarfirði 1927-1928 og 1949-1950, Söngfél. Stefnir í Mosfellssveit 1945-1951. Aðstoðarorganleikari við Fríkirkjuna í Reykjavík 1926-1930. Kirkjuorgan- leikari Hallgrímskirkju í Reykjavík 1941-1977. í stjórn Félags íslenskra org- anleikarafrá 1951-1966. í norræna kirkjutónlistarráðinu frá 1957-1965. Eins og af framanskráðu má sjá hve ötull Páll var og starfsamur. Enn er þó eftir að geta tónskáldsins. Hann samdi mikið af lögum, en hér verða nefnd: Hin mæta morgunstund, partita fyrir orgel 1981.0, guð, þér hrós og heiður ber, partita fyrir orgel, útg. 1981. og Tólf kóralforspil, útg. 1982. Hér verða ekki talin öll hans verk, en alþekkt er Nýtt söngvasafn, sem hann tók saman og bjó til prentunar ásamt Friðriki Bjarnasyni o.fl. sem þeir félagar unnu fyrir Ríkisútgáfu námsbóka. Páll var góður nótnaskrifari. Hann skrifaði t.d. nóturnar í nýja sálmasöng- sviðbætinn o.m.fl. Félag íslenskra organleikara var stofnað 17. júní 1951. Fyrstu stjórn fé- lagsins skipuðu þeir nafnarnir Páll ísólfsson, formaður, Páll Halldórsson, fé- hirðirog Páll Kr. Pálsson, ritari. Þ>eirstjórnuðu félaginu óslitið frá 1951 til 1966 og unnu þar sameiginlega brautryðjendastarf sem seint verður fullþakkað. Um nokkurt skeið haföi verið rætt um þörf félagsins fyrir málgagn, sem treysti samband milli félagsmanna, flytti fréttir og miðlaði fróðleik, sérstak- lega um kirkjutónlist og mál henni tengd. Páll Halldórsson var héreinn aðalhvatamaðurinn. Fyrsta Organistablaðið kom út í maí árið 1968. Ritnefndina skiþuðu Gunnar Sigurgeirsson, Páll Hall- dórsson og Ragnar Björnsson. Páll lagði blaðinu lið frá því að fyrsta blaðið kom út og alla tíð síðan á meðan hans naut við. Hann var óþreytandi að afla styrkja, safna efni, skrifa í blaðið, fylgjast með prentun og lesa prófarkir. Flestir ritnefndarfundirnir voru haldnir á heimili þeirra Huldu, þar sem allir nutu frábærrar gestrisni og veitinga. 16 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.