Organistablaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 12
Kóramót þetta heppnaðist í alla staði mjög vel og ber að þakka Vestmannaeyingum vel
fyrir allan undirbúning og móttökur. Ekki er vafi á því að kóramót sem þetta rennir
stoðum undir starfsemi kirkjukóranna og er kórfélögum um leið mikið tilhlökkunarefni.
Úr frétt Siguróla Geirssonar, organista Grindarvt'kurkirkju.
Orgeltónleikar í Hallgrímskirkju
Fyrstu tónleikar á nývígt konsertorgel Hallgrímskirkju voru strax á vígsludegi 13.
desember 1992. Þá lék Hörður Áskelsson á orgelið tónlist eftir Pedro de Araujo, Fran^ois
Couperin, Johann Sebastian Bach, César Franck og Pál ísólfsson. Þá frumflutti hann og
verkið Snertur fyrir Hörð og nýja orgelið eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Verkið er í fimm
samfelldum þáttum. Aðsókn að tónleikunum var svo mikil að þeir voru endurteknir 16.
desember.
Strax á mánudeginum 14. desember lék prófessor Hans-Dieter Möller frá Dússeldorf í
Þýskalandi aðventu- og jólatónlist á nýja orgelið. Hann flutti verk eftir Johann Gottfried
Walther, Camille Saint-Saéns, Johann Sebastian Bach, Olivier Messiaen og Claude
Balbastre. Þá lék hann af fíngrum fram Fantasíu og passagaglíu um sálminn Gjör dyrnar
breiðar, Itliðið hátt og fantasíu um evrópska jólasöngva.
Vikuna eftir vígslu orgelsins léku félagar úr Félagi íslenskra organleikara á það bæði
kl. 12 og kl. 18. Þannig voru 12 tónleikar haldnir í kirkjunni strax á fyrstu viku nývígðs
orgelsins. Auk þess var orgelið kynnt, m.a. fyrir skólanemum.
Listvinafélag Hallgrímskirkju hefur svo staðið fyrir fjórum orgeltónleikum núna eftir
áramótin þar sem nokkrir helstu orgelleikarar þjóðarinnar hafa flutt orgeltónlist
innlendra og erlendra tónskálda. Voru tónleikar þessir liður í að kynna nýja Klais-orgelið
en ekki síður að kynna orgeltónlist fyrir stærri hópi fólks. Þann 31. janúar lék Björn
Steinar Sólbergsson franska orgeltónlist eftir Charles M. Widor, Olivier Messiaen og
Maurice Duruflé. 28. febrúar lék Ragnar Björnsson tónlist eftir Franz Liszt og Olivier
Messiaen. 28. mars lék Marteinn H. Friðriksson tónlist eftir Pál ísólfsson, Felix
Mendelssohn-Bartholdy, Johann Sebastian Bach, Jón Leifs og César Franck. 2. maí kl.
lék Haukur Guðlaugsson, söngmálastjóri þjóðkirkjunnar, orgelverk eftir Bach, Pál
ísólfsson o.fl.
Ragnar Björnsson á tónleikum
Undanfarið hefur Ragnar Björnsson haldið nokkra tónleika. Fyrst er til að nefna
tónleikaröð á Norðurlandi vestra en í lok mars 1991 hélt hann tónleika á Ólafsfirði,
Dalvflc, Sauðárkróki, að Hólum og á Hvammstanga. Á tónleikunum lék hann blandaða
efnisskrá, annars vegar verk eftir J.R. Sweelinck, J.S. Bach og Bach-Vivaldi konsertinn
og hins vegar verk eftir K. Nystedt, F. Liszt, Þorkel Sigurbjömsson, C. Franck og sjálfan
sig.
Þá hefur hann leikið á tveimur tónleikum í Selfosskirkju, í byrjun árs 1992 og 1993 og
í bæði skiptin verið með efnisskrá eingöngu eftir J.S. Bach.
12 ORGANISTABLAÐIÐ