Organistablaðið - 01.12.1994, Blaðsíða 20

Organistablaðið - 01.12.1994, Blaðsíða 20
Félag íslenskra organleikara Gjaldskrá gildir frá 1.5. 1992 1. Organleikur við útför. 3.927.- Hér er átt við hefðbundna útför þar sem engar séróskir um forspil eða eftirspil er að ræða og veldur engu aukaómaki. 2. Organleikur við útför ásamt undirleik með einsöng eða einleik. 5.889.- Þetta gjald gerir ráð fyrir æfingu með viðkomandi einleikara/einsöngvara, það á einnig við þegar óskað er eftir sérstökum orgeleinleik inni í athöfninni og/eða óskað eftir sérstöku forspili/eftirspili sem æfa þarf sérstaklega, enda sé það utan hefðbundins ramma slíkra verka. 3. Organleikur við kistulagningarbæn. 2.944.- Þessi athöfn er einföld í sniðum oftast leikið á undan og eftir hinu talaða orði eða sungið þó sjaldan kór aðeins ein eða tvær persónur. 4. Sérstök kóræfing vegna athafnar. 2.944.- Att er við æfingu á undan athöfninni vegna séróska um eitthvert lag en útheimti slíkur flutningur æfingu að kvöldi skal organleikari reikna 4 klst. í sínum launa- flokki enda sé ekki annað æft á þeirri æfingu. 5. Organleikur á undana athöfn. 2.944.- Um er að ræða orgelleik í allt að 20 mínútur á undan athöfninni og bætist þá þetta gjald ofaná. 6. Fyrir ferð í heimahús (eða annað) vegna umræðna og/eða ráðlegginga um flut- ning tónlistar við athöfn.. 2.944.- 7. Sé flutt kórverk t.d. Faðir vor eftir Malotti, eða annað viðamikið lag, reiknast það eins og um undirleik eða einsöng væri að ræða. 5.889.- 8. Orgelleikur við helgistundir á sjúkrahúsum. 5.575.- 9. Orgelleikur við hjónavígslu. 4.500.- Att er við einfalda athöfn þar sem ekki er reiknað með æfingu enda enginn ein söngur eða einleikur. 10. Hjónavígsla með einleik/einsöng. 6.500.- 11. Organleikur við messu í forföllum. 7.851.- I þessu gjaldi er ein æfing sé hún í sömu ferðinni annars reiknast hún sérstaklega. 12. Organleikur við skírn. 2.944.- 13. Gjald fyrir ferðir, ef organleikara er ekki séð fyrir fari. 651.- Þessi tala á við þéttbýlissvæði. Utan þeirra skal nota kílómetragjald sem ákveðið er af ferðakostnaðarnefnd ríkisins á hverjum tíma, nú 32,55/km. Þegar leika skal í athöfn eitthvert lag sem organleikari þarf að útsetja, skal hann reikna sér tímakaup við það og annan þann kostnað sem þetta leiðir af sér. NB 42% álag á laugardögum á öllum liðum nema brúðkaupum. 20 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.