Organistablaðið - 01.12.1994, Blaðsíða 29
list sem er útbreidd - mikið notuð í hverju landi fyrir sig. Komið var á undirbúnings-
fundi og organistar beðnir um að koma með valin tónlistardæmi sem voru síðan
flokkuð niður. 1) Fyrir samkynjaraddir 2) létt tvíröddun 3) meðallétt tvíröddun 4)
þríröddun 5) Taize-söngur 6) þjóðleg kirkjutónlist og fleira. Þarna var athyglisverð
kynning frá hverri þjóð. Efnið verður síðan gefið út og því dreift. Ekki verður ein-
göngu flutt mikið notað efni, ný tónlist verður h'ka kynnt. Mótið hefst á fimmtudegi
e.h. Hátíðin verður sett kl. 18:00 í Dómkirkjunni í Gautaborg. Um kvöldið verða tón-
leikar í Tónleikahúsi Gautaborgar þar sem flutt verður Oratóría eftir Olsson. Kennsla
fer fram í Nýja Tónlistarháskólanum í Gautaborg. „Symposium“ lýkur með hámessu
kl. 11:00 í Dómkirkjunni.
Námskeið í barokktónlist verður haldið í tengslum við mótið þar sem Andrew Parrott
verður leiðbeinandi. Þeir sem hafa hug á að sækja það mæti einhverjum dögunt áður
en mótið hefst.
Mikil undirbúningsvinna er framundan. Skipa þarf nefnd til að velja efni sem við
leggjum til. Það efni verður svo gefið út. Tillaga kom frá Jóhanni að kynna þyrfti
fyrir organistum og kórum um allt land þessa ferð og niöguleika á þátttöku. Einnig
þarf að kynna verkefnin mjög vel.
Marteinn tók undir þessa tillögu og sagði það nauðsynlegt að senda organistum og
kórum sérstakl bréf með upplýsingum um mótið. Að öðru leyti kynna Svíar mótið.
Æskilegt væri að við leigðum okkur flugvél og fylltum hana af kirkiutónlistarfólki
þann 26.09.1996.
Umræður hófust um fjármögnun og önnur praktísk mál. Björn Steinar benti á Nomus
sem hægt er að sækja til. Helgi Bragason taldi ráðlegt að sækja í sem flesta sjóði til
styrktar - ekki bara í félagsgjöld organista.
VII
- Marteinn Friðriksson sagði frá starfandi kjaramálanefnd þar sem í situr meðal
annarra Bragi Friðriksson.
- Hver er ábyrgð organista/prests? Það er æskilegt að organisti beri ábyrgð á öllum
tónlistarflutningi safnaðarins.
-1 fyrra kont fram tillaga frá Smára Olasyni um hvernig meta ætti organista til launa.
Ákveðnar prósentur fyrir hvern þátt starfsins og hæfni organista til þeina þátta, þ.e.
orgelleiks, kórstjórnar og litúrgíu.
- Mikil og löng umræða varð um barnseignarleyfi organista. Gróa Hreinsdóttir sent
var organisti í Ytri-Njarðvíkurkirkju telur að brotið hafi verið á sér í þeim efnum.
Henni var sagt upp störfum þegar hún var barnshafandi og þökkuð vel unnin störf.
Laun fékk hún ekki áfram. En þess ber að geta að Gróa var í fullu starfi annars staðar
sem kennari. Lagt var til að málið yrði athugað.
- Oddný Þorsteinsdóttir benti á að ákvæði um barnsburðarleyfi væru ekki nógu skýr
29 ORGANISTABLAÐIÐ