Organistablaðið - 01.12.1994, Blaðsíða 38

Organistablaðið - 01.12.1994, Blaðsíða 38
Þann 25. september s.l. vígði biskup Islands, Ólafur Skúlason, nýja kirkju fyrir Digranessöfnuð í Kópavogi, helgaði muni hennar og þjónaði fyrir altari ásamt sóknarpresti, séra Þorbergi Kristjánssyni. Það sem var óvenjulegt við þessa kirkju- vígslu var, að um leið var vígt og tekið í notkun nýtt 19 radda íslenskt orgel. srníðað af Björgvini Tómassyni orgelsmiði og Jóhanni Jónssyni hagleikssmið. Orgel þetta er ntjög glæsileg smíð og einstaklega vandað og háreist sómir það sér vel í þessari fall- egu kirkju. Húsið er úr massívri eik og þess má geta að alls eru 93 geirnegld horn í hljóðfærinu. Hljómur þess fyllir vel rými kirkjunnar sem svarar vel og útkoman er: Einstaklega vel heppnað orgel í góðu hljómrými. Það er ánægjulegt að sjá hvað hér hefur tekist vel til og það má með sanni segja að með þessu orgeli hal'i Björgvin Tómasson brotið blað í sögu íslenskra orgelsntíða. Hann sýnir hér og sannar svo ekki verður um villst að hann stendur fyllilega jafn við allt það besta sem hér hefur verið flutt inn frá erlendum aðilum og ef eitthvað er leggur hann meira í gerð orgelhússins sjálfs en hér hefur áður sést. A öðrum stað í þessu blaði er raddvali orgelsins lýst, en það ásamt röddum orgelsins (intónasjón) gerði Björgvin í samráði og samvinnu við Dr. Reinhard Tschöckel, sem Björgvin lærði orgelsmíði hjá í Þýskalandi. Við vígsluathöfnina voru um 550 manns í sæti í kirkjunni og safnaðarsal sem opnast inn í sjálft kirkjuspipið. 40 manna kór söng, en það voru félagar úr Kór Kópavogskirkju ásamt félögum úr nýstofnuðum Kór Digraneskirkju. Orgelleik önnuðust Haukur Guðlaugsson söngmálastjóri, Örn Falkner organisti Kópavogskirkju og Smári Ólason organist Digraneskirkju. Trompetleikararnir Jóhann Stefánsson og Einar Jónsson léku með og Guðrún Lóa Jónsdóttir, félagi úr Kór Digraneskirkju, söng einsöng. Athöfnin tókst öll mjög vel og fór virðulega fram. I messunni var leikið sem inngöngulag stef úr Þorlákstíðum, „Innocentem te serv- avit“ í nýrri útsetningu Smára Ólasonar, organista kirkjunnar, fyrir tvo trompeta og orgel, einnig var sunginn sálmurinn nr. 269, „í þennan helga Herrans sal“ í nýrri útsetningu hans á undirleiknum. Útspilið við lokasálminn í messunni, „Nú gjaldi Guði þökk“, gerði organistinn einnig sérstaklega í lilefni af þessari vígslu. 38 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.