Organistablaðið - 01.12.1994, Blaðsíða 10

Organistablaðið - 01.12.1994, Blaðsíða 10
fremstu röð og það jafnvel á alþjóðlegan mælikvarða. Slíkir menn hljóta að teljast til andans og listarinnar afreksntanna. Þetta hefur orðið mér enn Ijósara nú að undan- förnu við að fara í gegnum handrit og skjöl sem hann lét eftir sig. Páll var hæversk- ur maður, kurteis og elskulegur í öllu viðmóti, það fann maður af hlýju handtaki hans þegar hann heilsaði og kvaddi. Slfk framkoma er oft einkenni mikilla listamanna. Nú er Frobenius-orgelið ekki lengur hér í Dóntkirkjunni. Það bíður þess að verða endursmíðað og endurvígt í nýrri kirkju í Reykholti í Borgarfirði. Það væri við hæfi að við nemendurnir færum sem flestir á vígsluhátíðina til heyra aftur í orgelinu í nýju umhverfi, setjast á orgelbekkinn góða, taka í hljóðfærið og rifja upp minningarnar um það þegar við sátum við hlið Páls og hann vísaði okkur veginn í áttina að fótskör annarra orgelmeistara frá liðnum öldum. Sá vegur reyndist okkur, eins og öðru tón- listarfólki, misjafnlega beinn og misjafnlega breiður. Á þessum hátíðardögum jafnt sem endranær hugsum við nemendur Páls Isólfssonar til okkar mikilhæfa kennara með hlýhug, þakklæti og virðingu. Njcíll SigurðsSon. ORGANISTABLAÐIÐ Utgefandi: Félag íslenskra organleikara, Kjartan Sigurjónsson formaður, ábyrgðarmaður. Ritstjórn: Kristján Sigtryggsson, Aifhólsvegi 147, 200 Kópavogi, sími 42558 og 985-32258 Vinsamlega sendið ritstjóra efni í blaðið. Hvers konar upplýsingar um tónleika eða frásagnir af tónlistarviðburðum eru vel þegnar. Einnig fréttir af útgáfustarfsemi, svo sem upptökur, nótnabækur o.þ.u.l. Stjórn F.Í.O. Kjartan Sigurjónsson, formaður Hörður Áskelsson, ritari Kristín Jóhannesdóttir, féhirðir Meðstjórnendur: Björn steinar Sólbergsson, og Sigrún Steingrímsdóttir Varamenn: Hilmar Örn Agnarsson og Marteinn H. Friðriksson. 10 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.