Organistablaðið - 01.12.1994, Blaðsíða 17
Austurlandi, en göngur voru hafnar í sveitasóknum. Alls tóku rúmlega 100 kórfél-
agar þátt í þessu kóramóti.
A laugardagskvöldið var kvöldvaka í Kirkjumiðstöðinni. Henni stjórnaði Agúst
Armann Þorláksson, organisti Neskaupstað. Margir fleiri organistanna komu þar
fram og léku á ýms hljóðfæri af snilli mikilli og kórfélagar sungu þar af hjartans lyst
og var það hin ágætasta skemmtan.
Á sunnudaginn 18. sepl., lauk svo kóramótinu með messu í Egilsstaðakirkju. Þar
söng þessi fjölmenni kór og organistarnir skiptust á að leika og stjórna, bæði í mess-
unni og á undan, meðan fólk var að ganga í kirkju. Fjórir prestar þjónuðu í mess-
unni. Sr. Kristján Róbertsson, þjónaði fyrir altari og naut aðstoðar sr. Þorgríms
Daníelssonar og sr. Carlosar Ferrer, en sr. Einar Þ. Þorsteinsson predikaði. Sálmalög
voru úr Grallara Guðbrands Þorlákssonar, í raddsetningum eftir Bach og
Mendelsohn, í tilefni þess, að 400 ár eru frá útgáfu Grallarans. I messunni var flutt,
sem stólvers: Heill þér himneska orð, eftir Gabríel Fauré, þýtt af Böðvari
Guðmundssyni. Þess má geta, að lokasálmur ntessunnarTil þín vorri bæn vér beinum
er eftir sr. Sverri Haraldsson, á Borgarfirði eyslri.
Eftir messu bauð stjórn sambandsins til afmælishófs í Valaskjálf. Þar söng kórinn
lag eftir Guðmund Magnússon, fræðslustjóra á Reyðarfirði, við ljóð Steinþórs
Þórðarsonar í Skuggahlíð, sem hann orti í tilefni af vígslu Kirkjumiðstöðvarinnar við
Eiðavatn, árið 1991.
Þar með lauk þessum söngdögum fólks úr kirkjukórum á Austurlandi, í tilefni 50
ára afmælis sambandsins, sem segja má, að hafi orðið þátttakendum og þeim öðmm,
sem nutu, til gagns og gleði, kirkjusöng til eflingar og Drottni til dýrðar. Vissulega
hjálpaði hið góða veður þessa septemberdaga og fallegt umhverfi
Kirkjumiðstöðvarinnar, til þess að gera þessa daga ánægjulega.
Stjórn sambandsins, sem sá urn þetta mót, skipa: Hermann Guðmundsson,
Seyðisfirði, formaður, Stefanía Steinþórsdóttir, Hallormsstað, ritari, Elín Gísladóttir,
Egilsstöðum, gjaldkeri og meðstjórnendur, sr. Bjarni Guðjónsson, Valþjófsstað og
Kristján Gissurarson, organisti, Eiðum.
Með bestu afmælisóskum og þökk fyrir samstarf fyrr og nú.
Einar Þ. Þorsteinsson
17 ORGANISTABLAÐIÐ