Organistablaðið - 01.05.2000, Blaðsíða 21

Organistablaðið - 01.05.2000, Blaðsíða 21
Organistablaðlð 040 Nýir sálmar í norðrinu Níundi áratugurinn var mikilvægur áfangi í norrænni sálmaþróun. Nýjar sálmabækur voru teknar í notkun í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og íslandi. Hvað hefur gerst síðan? Hér verður kynnt það sem er að gerast í norrænni sálmasköpun og við ræðum um framtíð norræns sálmasöngs. Prófessor Karl-Johan Hansson leiðir umræðurnar. 041 Fyrirbrigðið finnskur barnakór Á sjöunda og áttunda áratugnum átti sér stað ör og víðtæk þróun í finnskum barnakórasöng. í þessum umræðuhópi hittum við hinn fræga Tapiolakór og stjórnanda hans Kari Ala-Pöllanen og kynnumst vinnuaðferðum þeirra. Við kynnumst hinni svokölluðu Kodaly-aðferð, sem almennt er notuð í tónlistarbekkjum finnsku skólanna og gefur barnakórunum góða undirstöðu í nótnan- lestri. Tónlistarkennarnir Paavo Kiiski og Iris Sundberg-Raisánen taka einnig þátt í umræðunum. III Laugardagur 16.15-17.45 043 Grcgoriana Fennica f Finnlandi er ótrúlega rík gregoríanisk hefð, sem verður kynnt hér af fil. mag. Ilkka Taitto og sönghópnum Cetus Noster. Umræðan fer fram í háskólabókasafninu í Helsingfors, þar sem við höfum meðal annars tækifæri til að kynnast hinni einstæðu St. Henriksmessu frá 14. öld. 044 Hið litúrgíska hlutvcrk orgelsins Við ræðum hlutverk orgelsins í guðsþjónustunni, að hluta sem sjálfstæðum aðila í samræðu milli þjónustunnar við altarið, kórs og safnaðar og að hluta til sem undirleikshljóðfæri með fjöl- breytta möguleika. Organistarnir Kaj-Erik Gustafsson, Juhani Haapasalo, Pekka Suikkanen og Harri Viitanen leiða umræðurnar. 045 Hugsaðu þér ef söngurinn þagnaði! Lútherska kirkjan hefur verið kölluð „hin syngjandi kirkja“ - ecclesia cantans. Safnaðarsön- gurinn er einkennandi íyrir kirkjurnar okkar og guðsþjónustur, en mörg teikn eru á lofti um að víða sé söngurinn að þagna. Norrænn hópur undir handleiðslu prófessors Karl-Johann Hanson fjallar um efnið og segir álit sitt á framtíð sálmasöngsins í okkar norrænu löndum. 046 Tónlist í gleði og sorg - sainkvæmt ákvörðun hvers? Tónlistin við brúðkaup og útfarir er aðkallandi og brennandi spurning í öllum löndum okkar. Henni verður lýst í þessum umræðuhóp útfrá guðfræðilegu og tónlistarlegu sjónarmiði af teol. lic. Anna J. Evertsson, Lundi, og kirkjutónlistarmanninum Anna Maria Böckerman-Peitsalo. 048 Fundur nieð Knut Nystedt Tónlist Knuts Nysted kemur á margan hátt til með að verða í brennidepli á mótinu. Tónskáldið Kari Rydman, sem er m.a. þekkt úr spurningarþættinum Kontrapunkti, tekur viðtal við þennan „grand old man“ innan norrænnar kirkjutónlistar. 21

x

Organistablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.