SunnudagsMogginn - 13.12.2009, Blaðsíða 2
2 13. desember 2009
4-8 Vikuspeglar
Myntmál í Norður-Kóreu skoðuð, frægir alnafnar sparkenda kynntir til
sögunnar og spurt hvort plastefni valdi ófrjósemi meðal karla?
12 Karlinn poppaður upp
Jóhann Már Jóhannsson „Konnari“ og sauðfjárbóndi í Skagafirði
sendir frá sér nýja einsöngsplötu.
24 Hönnun í jólapakkann
Sunnudagsmogginn bað Hönnunarmiðstöð Ís-
lands um aðstoð við að finna hönnunargripi á
undir 20.000 krónum.
30 Jólabækurnar
Rýnt í lista yfir útgáfubækur ársins og vitnað í
umsagnir.
38 Fyrirmynd James Bond
Hans Kristján Árnason hefur sent frá sér
heimildarmynd um Íslendinginn Holger Cahill.
40 Jólamaturinn
Á aðfangadag er jafnan lagt meira í matargerð.
Lesbók
48 Bakari eða smiður?
Tungutak í umsjá Baldurs Sigurðssonar.
48 Fólk vill sögur
Elín Pálmadóttir endurútgefur bók sína Fransí Biskví.
52 Menntamaður og morðingi
Sagt frá verðlaunabók um uppvöxt og mótunarár Stalíns.
54 Bókaumsagnir
Vigdís. Kona verður forseti fær fjórar stjörnur af fimm.
14
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson af Karli Ágústi Úlfssyni og Ásdísi Olsen.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans:
Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Ingveldur Geirsdóttir,
Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristján Jónsson, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson, Ylfa Kristín K. Árnadóttir.
Augnablikið
J
ólagjöfin í ár er sigur á Haukum, og við
verðum á toppnum um hátíðarnar. Gleðileg
jól!“ segir ungur maður sem ég hitti í and-
dyri íþróttahallarinnar á Akureyri á
fimmtudagskvöldið.
Hann brosir út að eyrum og ég er sammála hon-
um um það, að heppilegt er að hafa jólagjafirnar í
ódýrari kantinum að þessu sinni, af ástæðum sem
óþarft er að nefna hér.
Þúsundkall er ekki mikið fyrir góða gjöf.
Það er líka oft gott, til öryggis, að fagna fyr-
irfram, ef illa kynni að fara. Eins og kunningi
minn sem ákvað fyrir margt löngu að hella sér út í
stjórnmál og hélt mikla sigurhátíð – áður en próf-
kjörið var haldið. Það reyndist skynsamlegt.
Síðar þetta fallega vetrarkvöld, þegar ég hitti
unga manninn aftur í anddyrinu, er brosið horfið.
Hann er afar niðurlútur, og er þá vægt til orða
tekið. Strákarnir okkar eru ekki lengur strákarnir
okkar en hann kennir þeim og dómurunum ekki
einum um tapið, heldur grýlu.
Ha, hvað sagðirðu?
„Sástu ekki Hafnarfjarðargrýluna? Ég er farinn
að þekkja kvikindið; það var hérna um daginn.“
Það mun hafa verið þegar hitt liðið úr Lúðvíks-
borg, FH, vann mína menn í bikarkeppninni.
Grýlan sá sem sagt til þess að Akureyri skíttap-
aði fyrir Haukum þótt munurinn í lokin væri
reyndar aðeins fjögur mörk.
„Miðað við hana þessa eru hinar afskaplega
myndarlegar og elskulegar,“ segir hann grautfúll.
„Jafnvel þótt hver kynslóðin af annarri hafi alist
upp lafhrædd við konu Leppalúða, móður jóla-
sveinanna gömlu, og við eyjarskeggjar líka lengi
verið skelkaðir við Svíagrýluna þegar handboltinn
var annars vegar – blessuð sé minning hennar –
kann ég afskaplega vel við þær báðar, jafnvel sam-
an, miðað við hana þessa.“
Áhorfendur eru um 1.200 í Höllinni þegar mínir
menn og Haukarnir hefja leik. Segi og skrifa tólf
hundruð. Þetta er eins og í gamla daga. Stemn-
ingin er ósvikin fyrstu mínútuna en svo er staðan
allt í einu orðin 0:3. Mörkin hrannast upp, en bara
öðrum megin. Mínir menn skjóta hvað eftir annað
í Birki Ívar. (Þetta er dálítið hlutdrægt og ósann-
gjarnt; hann ver eins og brjálaður maður.)
„Gott Haukar! Flottastir!“ segir áhorfandi þegar
flautað er til leikhlés. Mér sýnist hann litinn horn-
auga. Hugaðir menn, Hafnfirðingar. Þó verður
enginn til andsvara enda staðan 7:15. Lesendur
mega geta fyrir hvern.
Akureyri er heimabær kóks í gleri, fyrir nokkr-
um árum var hugmyndin að staðurinn yrði
heimaborg Frostrósa og okkur finnst, norðan-
mönnum, að bærinn við fjörðinn eigi að vera höf-
uðborg handboltans. Bærinn við Eyjafjörðinn,
altso, ekki Hafnarfjörðurinn. En draumarnir ræt-
ast ekki allir í einu. Við gerum okkur kókið að
góðu í bili. Og kennum Hafnarfjarðargrýlunni um.
„Gleðilega páska,“ segir ungi maðurinn. Mér
sýnist hann farinn að hlakka til.
skapti@mbl.is
Ekki íþrótt án snertingar; Akureyringurinn Oddur Gretarsson og Freyr Bjarnason úr Hafnarfirði fljúgast hér á.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
„Gleðilega páska“
Laugardagur 12.desember
Skottmarkaður verður haldinn í dag, 12.12, frá kl. 12-14, á bílastæði
Kjarvalsstaða. Þá býðst fólki að selja úr skottinu, en óskað er eftir skrán-
ingu á skottmarkadur@gmail.com. „Við stefnum að léttri Kaup-
mannahafnarstemmningu með ristuðum möndlum og báli í tunnu, jóla-
tónlist og heitu kakói,“ segir Steinunn Þórhallsdóttir. „Ég veit um fólk
sem ætlar að selja handverk, kakó, grillaðar pylsur, smákökur og nýleg
barnaföt, svo fátt eitt sé nefnt!“
Stemmning á skottmarkaði í dag
Við mælum með…
Rýnt í sögu
tónskálda í
verkum Errós
frá kl. 15-16
með Sigfríði
Björnsdóttur
tónlistarsagnfræðingi í Hafnarhús-
inu og hlustað á tóndæmi, en á
meðal þeirra eru Brahms, Wagner,
Stravinsky og Schumann.
Föstudagur 18.desember
Mið-Íslands-
hópurinn með uppi-
stand í Batteríinu kl.
21.30. Þorsteinn
Guðmundsson setur
á sig kórónuna og
gegnir aðeins nafn-
inu Rex, Hugleikur Dagsson leikur
Jesúbarnið og einnig troða upp
Bergur Ebbi, Ari Eldjárn, Jóhann Al-
freð og Dóri DNA.
Sunnudagur 13. desember