SunnudagsMogginn - 13.12.2009, Page 4
4 13. desember 2009
Árið 1948 var gerð myntbreyting á Íslandi eftir að
eignakönnun var framkvæmd. Allir peningar í um-
ferð voru dregnir til baka og ný röð af seðlum gefin
út. Anton Holt, safnstjóri í Seðlabankanum og
myntsafnari, lýsti þessu í samtali við Pétur Blöndal
í Morgunblaðinu í fyrra: „Það hafði verið svo mikið
svartamarkaðsbrask, sem ekki hafði farið í gegn-
um skattskýrslurnar eftir stríð, og nú átti að ná sér
niðri á bröskurunum. En þetta mistókst alfarið.“
– Af hverju?
„Af hverju er himinninn blár,“ segir Anton og
dæsir. „Stjórnvöld fóru ekki rétt að. Þeir sem að-
gerðirnar áttu að ná til höfðu frétt af þessu, sagan
segir að stórheildsalar hafi rölt í pósthúsið í des-
ember og keypt frímerki fyrir mörg hundruð þús-
und. Svo skiluðu þeir frímerkjunum í pósthúsið í
janúar, sögðust ekki hafa sent eins mörg jólakort
og þeir ætluðu sér, og fengu endurgreitt í nýju
seðlunum án þess að þurfa að gera grein fyrir
þeim.
En stífnin var svo mikil gagnvart litla manninum
að við fundum hér í skjalasafninu bréf til Lands-
bankans frá presti á Austfjörðum, þar sem hjálagð-
ar voru 70 krónur frá gamalli ekkju sem hafði
misst son sinn í hafið og peningana fann hún í
jakkavasa hans, en hún gaf fötin fátækum. Prest-
urinn spurði hvort hægt væri að skipta þeim, þá
var fresturinn útrunninn, og starfsmaður Lands-
bankans skrifaði þvert yfir bréfið: „Synjað“. Maður
gleymir ekki svona bréfi, á meðan maður veit að
ýmsir komust upp með allan andskotann.“
Myntbreyting gegn braski á Íslandi
Örtröð í pósthúsi í Reykjavík árið 1948.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
E
inkamarkaðir í Norður-Kóreu eru
lamaðir eftir myntbreytingu, sem
lauk fyrir viku. Suður-kóreskir
fjölmiðlar segja að gripið hafi um
sig reiði og skelfing í landinu og er það ekki
að ástæðulausu því að takmörk voru sett
fyrir því hve miklu mátti skipta af gamla
gjaldmiðlinum í þann nýja. Skiptin fóru
fram á genginu 100 á móti einum og mátti
að hámarki skipta 100 þúsund wonum, sem
opinberlega jafngildir 86 þúsund krónum
en fást fyrir á milli 4.000 og 6.000 krónur á
svörtum markaði. Þeir sem hafa reynt að
spara eru því aftur komnir á byrjunarreit
hafi þeir ekki átt erlendan gjaldeyri.
Yfirvöld láta að því liggja að eignaupp-
takan sé í þágu jafnaðar. Haft var eftir Jo
Song-Hyon, embættismanni í norður-
kóreska seðlabankanum, að ætlunin væri
að styrkja „grundvallaratriði sósíalismans
og reglu í stjórn á markaðnum“. Hermt er
að bílum með hátalara hafi verið ekið um
götur og kyrjað í síbylju að breytingarnar
væru „stórbrotnar, sósíalískar umbætur“
fyrir verkamenn og bændur.
Götumarkaðir komu fram í Norður-
Kóreu þegar matvæladreifing í landinu
hrundi á tíunda áratug liðinnar aldar með
þeim afleiðingum að hungursneyð brast á í
landinu. Árið 2003 var þeim opinberlega
leyft að starfa. Bændum var leyft að selja
umframframleiðslu á götum úti. Á þessum
mörkuðum mátti einnig finna reiðhjól,
sjónvörp og fatnað frá Kína og Suður-
Kóreu og sérstaklega tekið til þess að ban-
anar og mandarínur voru á boðstólum. Í
landinu var farinn að þróast einkamark-
aður og svört viðskipti blómstruðu.
Það var þó ekki á allra færi að kaupa á
mörkuðunum. Á vefsíðu Der Spiegel var
sagt frá því að fyrir nokkrum mánuðum
hefði kíló af hrísgrjónum kostað þúsund
won á Tongil-markaðnum í Pyongyang,
höfuðborg Norður-Kóreu, eitt kíló af epl-
um 2.000 til 4.000 won og sex egg þúsund
won. Íbúar Pyongyang þéna á milli 3.000
og 5.000 won á mánuði.
Óttast að ný millistétt kosti stjórnina völd-
in
Greinilegt þykir að stjórnvöldum í Norður-
Kóreu hefur þótt ástæða til að kæfa frjálsan
markaðsbúskap í fæðingu. Ástæðan er talin
að Kim Jong Il, leiðtogi landsins, og herfor-
ingjar hans óttist að með því að opna dyrn-
ar fyrir einkaframtaki, þótt ekki sé nema
örlítið, muni fólk reyna að losna undan
valdi ríkisins, bændur til dæmis leggja nið-
ur búskap og hefja verslun. Hrun komm-
únistastjórna í Austur-Evrópu hafi sýnt
Kim fram á hvað það geti verið hættulegt
fyrir stjórn hans komi fram millistétt í
landinu.
Til þess að hemja einkamarkaðina var því
gefinn út listi árið 2005 með vörum, sem
ekki mátti selja á þeim. Að auki var konum
undir 45 ára aldri bannað að vinna á Ton-
gil-markaðnum og körlum meinað alfarið
að stunda kaupmennsku. Þá mátti mark-
aðurinn aðeins starfa í nokkra tíma á dag.
Þetta virðist stjórnvöldum ekki hafa þótt
nógu áhrifaríkt og ákváðu þau því að inn-
leiða nýjan gjaldmiðil. Breytingunni fylgir í
raun eignaupptaka. Samkvæmt fjölmiðlum
í Suður-Kóreu hafa stjórnvöld í Norður-
Kóreu það miklar áhyggjur af viðbrögðum
almennings að þau óttast að bresti á flótti
og hefur vörðum á landamærum Norður-
Kóreu verið skipað að skjóta þá, sem reyna
að flýja. Suður-kóreskir fjölmiðlar segja
einnig að komið hafi til mótmæla og nái
ólgan inn í Verkamannaflokk Kims. Það fá-
heyrða hafi gerst að leiðtoginn sé gagn-
rýndur í veggjakroti og flugritum.
Óánægja magnast
í lokuðu landi
Ólga brýst út í Norður-Kóreu
eftir að eignir voru þurrk-
aðar út með myntbreytingu
Nýju norður-kóresku seðlarnir eru skrautlegir, en vekja litla hrifningu.
REUTERS
Vikuspegill
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Verðlausir seðlar brenndir á báli
Fregnir af myntbreytingunni í Norður-Kóreu eru óljósar, en svo virðist sem
einstaklingar megi aðeins skipta 100 þúsund gömlum wonum í nýja
wonið og fái þá þúsund won. Fjögurra manna fjölskyldur mega skipta
300 þúsund gömlum vonum. Umframfé má leggja inn í banka en engin
vissa er fyrir því að það verði einhvers virði. Margir eru tortryggnir og ótt-
ast að farið verði að spyrjast fyrir um hvernig féð hafi verið fengið.
Brenna því margir verðlausa seðla frekar en að vekja grunsemdir. Það
getur hins vegar verið hættulegt því að glæpsamlegt er að vanvirða
ásjónur feðganna Kim Il Sung og Kim Jong Il og myndir af þeim eru á
gömlu seðlunum.
Myntbreytingin getur hjálpað stjórnvöldum að hemja einkaviðskipti, en til
lengri tíma gæti þessi aðgerð grafið undan stjórninni, meðal annars
vegna þess að hún getur ekki boðið íbúum landsins upp á nægar birgðir
af helstu nauðsynjum.
um miðja 19. öld
FLYTUR fátæk
SÆNSK fjölskylda
vestur um haf í
LEIT AÐ betra lífi.
Það er mikil þrek-
raun en nýja
landið gefur
fögur Fyrirheit ...
EinstaKT meistaraverk
Salka – Skipholt 50 c – www.salka.is