SunnudagsMogginn - 13.12.2009, Blaðsíða 10
10 13. desember 2009
Þ
að hefur að mínu mati verið þakkarvert hversu lítið
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur látið á
sér bera í íslensku þjóðlífi að undanförnu. Meira að
segja á sjálfan fullveldisdaginn, 1. desember sl. var það
látið nægja að hafa hann í viðtali í Ríkisútvarpinu, eldsnemma
um morguninn, en þar sagði hann m.a. að hann teldi að við Ís-
lendingar þyrftum alls ekki á öllum þeim erlendu lánum að
halda sem við værum að sækjast eftir. Svo komu fréttir utan úr
heimi, þar sem hinn mjög svo sjóaði og reyndi forseti var að
leggja Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, lífsreglurnar, því
vitanlega kann ábúandinn á Bessastöðum þetta allt miklu betur
en einhver óreyndur Bandaríkjaforseti.
En þótt ég hafi verið þakklát fyrir hlédrægni forsetans, þá er
ekki endilega öruggt að sama máli gegni um þá, sem þurfa að
heilsa honum og kveðja, þegar hann ákveður að leggjast í víking
til annarra landa, en eins og kunnugt er hefur hann fyrir margt
löngu áunnið sér titilinn „Klappstýra útrásarvíkinganna“. Að
vísu er það nú svo, eftir bankahrun og gjaldþrot útrásarvíking-
anna, að forsetinn getur ekki lengur komið fram í því gervi, en
hann er vitanlega ekki af baki dottinn, situr reyndar rammfastur
við sinn keip og hefur gerst klappstýra sjálfs sín.
Forsetinn hélt síðasta sunnudag til Vínarborgar, sem væri vart
í frásögur færandi, nema vegna hégómans og pjattsins, sem
fylgdi þeirri brottför hans af landi, eins og fylgir öllum hans
brottförum.
Einum þriggja handhafa forsetavalds, þ.e. annað hvort forseta
Alþingis, forsætisráðherra eða forseta Hæstaréttar, ber að fylgja
forsetanum út í flugvél á Keflavíkurflugvelli og kveðja hann og
hirða við brottför hans „valdasprotann“. Sama pjatt og fífla-
gangur fylgir svo vitanlega heimkomu forsetans. Handhafinn
þurfti sem sé að rífa sig upp á rassgatinu kl. 5 á sunnudags-
morgun, láta aka sér til Keflavíkur, á kostnað okkar skattgreið-
enda, til að kveðja ábúandann, sem kom vitanlega akandi frá
Bessastöðum í límósínu forsetaembættisins á okkar kostnað, í
fylgd sérstakrar bifreiðar sem flutti farangur forsetans á okkar
kostnað, og vitanlega einnig í fylgd lögreglubíls á okkar kostnað,
því ekki gengur að forsetinn sé óvarinn fyrir skrílnum, að ganga
sex á sunnudagsmorgni! Vitanlega duga ekki minna en fjórir
bílar og bílstjórar við það ofurverk að koma forsetanum úr landi.
Eftir dægilegt kaffispjall með forsetanum í Leifsstöð, þar sem
þjóðmál öll eru vitanlega krufin til mergjar og niðurstaða fengin
í því hvort forsetinn ætli að leyfa þjóðinni að kjósa um það hvort
hún greiðir hundruð milljarða skuldir, langt inn í ókomna fram-
tíð, skuldir sem hún ber enga ábyrgð á, fylgir handhafinn for-
seta að inngangi flugvélarinnar. Allir aðrir farþegar eru þá
komnir í sæti sín og geta því einbeitt sér að því að gleðjast yfir
inngöngu forsetans, sem flugstjórinn „á“ að taka á móti og fylgja
til sætis.
Ef marka má njósnir sem mér hafa borist úr embættis-
mannakerfinu, þá þykir mörgum nóg um, hversu langt forset-
inn seilist til þess að ríghalda í eldgamlan og úreltan prótókoll,
sem var víst komið á fyrir mörgum áratugum, þegar utanför
forseta taldist til tíðinda.
Við hvers konar þjóðfélagsskipan viljum við eiginlega búa í
þessu landi? Er það boðlegt og eðlilegt að á sama tíma og þorri
launþega hefur þurft að taka á sig umtalsverðar launaskerð-
ingar, mörgþúsund manns ganga um án atvinnu, erlendar
skuldir þjóðarbúsins hrannast upp, nánast á hraða ljóssins, og
stjórnvöld sjá enga aðra leið færa til að bæta stöðu galtóms rík-
issjóðs en að auka skattpíningu borgaranna nánast til ólífis, að
forseti Íslands kosti okkur skattborgarana stórfé, bara við það að
koma sér frá Bessastöðum til Keflavíkur?
Hér er a.m.k. um útkall þriggja bílstjóra, á næturvinnutaxta,
að ræða. Ekki veit ég hvort bílstjóri lögreglubifreiðarinnar var í
sérstöku útkalli eða ekki. Þá er ótalinn eldsneytiskostnaður, að
ekki sé nú talað um öll óþægindin, bæði fyrir handhafa forseta-
valds, bílstjórana og lögreglumennina.
Ef um einhverja höfuðnauðsyn væri að ræða, væri þetta allt
rétt og skiljanlegt. En hér er um úrelt, hallærislegt fyrirkomulag
að ræða, þar sem forsetinn reynir aftur og aftur að gera sig gild-
andi, langt umfram tilefni og hann sjálfur verður bara hallær-
islegastur af öllum, að hanga á ósiðnum eins og hundur á roði.
Klappstýran
situr við
sinn keip
Agnes segir
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
6:45 Morgunblaðið dettur
inn um lúguna. Hitt blaðið var
komið áður, en einhverra hluta
vegna þá verð ég alltaf að lesa
Moggann fyrst. Trúlega er það
vani úr æsku enda ólst ég upp
með Mogganum eða hann með
mér. Ég man það sem krakki
svona um 12 ára aldurinn að þá
ákváðu foreldrar mínir að hætta
að vera áskrifendur. Mér fannst
það afleitt og gerðist því áskrif-
andi sjálfur og greiddi fyrir með
vasapeningunum mínum.
7:30 Þær mæðgur [Esja
Sveinbjörnsdóttir og Birna Ims-
land] koma fram. Dóttirin er
það lasin að hún getur ekki far-
ið á leikskólann. Við dóttirin
förum aftur inn í herbergi með
nokkrar bækur í farteskinu. Ég
les fyrir hana um Einar Áskel,
Emmu og Tuma. Svo vill hún
lesa fyrir mig. Það fer þannig
fram að ég les eina setningu og
hún endurtekur hana svo fyrir
mig. Bettý hjá VR hringir til að
fá upplýsingar um hvernig
gangi með undirbúningsvinn-
una við útvarpsþátt um at-
vinnuleit og atvinnusköpun
sem ég er að vinna við að koma
á fót ásamt öðrum. Meiningin
er að fá VR og fleiri til að
styrkja okkur fjárhagslega við
gerð þáttanna.
11:00 Mættur í Hlutverka-
setrið á fund í útvarpsnefnd-
inni. Við hittumst einu sinni í
viku til að undirbúa útvarps-
þátt um allt sem tengist at-
vinnu, bæði atvinnuleit og at-
vinnusköpun. Þetta á að vera
þáttur á jákvæðum nótum sem
kemur upplýsingum á framfæri
við atvinnuleitendur um allt
það sem er í boði. Okkar fram-
lag til að auka virkni atvinnu-
leitenda og hvetja þá áfram. Við
höfum náð samkomulagi við
RÚV um hálftíma þátt einu
sinni í viku. Útsending mun
hefjast fyrir miðjan janúar 2010
og verða 20 þættir gerðir í
fyrstu atrennu. Fer því næst í
Rauðakrosshúsið til að taka
þátt í Qi Gong sem Gunnar Eyj-
ólfsson leikari og félagar halda
utan um.
13:15 Kominn heim til að
hugsa um dótturina. Hringi í
Íbúðalánasjóð þar sem ég sé að
aðeins sumar greiðslur af lán-
unum lækka. Einhver villa í
kerfinu hjá þeim og mér tjáð að
þetta verði lagað. Ég vann í vor
nuddtíma í bingó hjá Rauða-
krosshúsinu. Þegar ég hringdi í
sumar þá var nuddarinn að
vinna uppi á hálendinu. Ég
hringdi aftur í dag og þá býr
nuddarinn í Noregi. Of langt
fyrir mig. Pantaði mér hins
vegar tíma í fótsnyrtingu. Ath.:
hér á Íslandi.
15:45 Frúin komin heim og
dóttirin ánægð með það, vill
bara vera hjá mömmu. Sem er
gott fyrir mig því ég þarf að
kíkja aðeins inn á Facebook. Ég
nota þetta tæki til að efla mitt
tengslanet og fylgjast með öll-
um þeim viðburðum sem eru í
boði. Ég hef það mikla trú á
notagildi þess, að ég aðstoða
fólk í sjálfboðnu starfi við að
læra á Facebook bæði í Rauða-
krosshúsinu og í Hlutverka-
setrinu. Fljótlega eftir að ég
missti vinnuna þá stofnaði ég
hóp á Facebook sem heitir At-
vinnuleysi Nei takk! Við höfum
haldið 10 fundi þar sem sam-
eiginleg hagsmunamál atvinnu-
leitenda eru rædd. Ég hef sett
töluverða vinnu í það að halda
utan um þennan hóp. Svo fylg-
ist maður með því daglega
hvort einhver atvinnutækifæri
eru í boði.
18:00 Hugað að kvöldmat.
Frúin er að kenna jóga í Laug-
um og skutlar hún mér á kór-
æfingu í Skaftfellingabúð.
19:00 Mættur á upphit-
unaræfingu hjá Söngfélagi
Skaftfellinga. Hafði lengi verið
að spá í það að fara í kór en gaf
mér aldrei tíma til þess. Lét svo
verða af því þegar ég varð at-
vinnuleitandi. Svo er brunað á
Landakot. Söngurinn gengur
vel og fáum við góðar und-
irtektir. Því næst er farið á geð-
deild Landspítalans og sungið á
kaffistofu starfsfólks. Þar fáum
við líka gott uppklapp og svo er
boðið í kaffi og smákökur.
21:50 Kominn heim. Ég
slappa af fyrir framan sjón-
varpið og vinn smávegis í tölv-
unni. Hlakka til morgundagsins
en þá fer ég á matreiðslunám-
skeið í boði VR. Takk fyrir VR.
01:20 Farinn að sofa eftir
langan og skemmtilegan dag.
ylfa@mbl.is
Dagur í lífi Sveinbjörns Péturssonar atvinnuleitanda
Sveinbjörn á æfingu með Söngfélagi Skaftfellinga.
Morgunblaðið/Golli
Kórdrengur í Qi Gong
ÚRVAL ÆFINGATÆKJA
WWW.GAP.IS
88.900
JÓLATI
LBOÐ
ÚRVAL AF
SIPPUBÖNDUM
Infiniti fjölþjálfi
ST–950
Verð kr. 98.900
Lærabani
Everlast
Verð kr. 2.990