SunnudagsMogginn - 13.12.2009, Síða 12
12 13. desember 2009
É
g var að klára að rýja og nú tekur rútínan við,
helstu haustverkin eru að baki og bara huggu-
legheit fram í mars. Þá tekur rúningurinn við að
nýju,“ segir Jóhann Már Jóhannsson í upphafi
samtals okkar, nýkominn úr fjárhúsunum eftir að hafa
rúið síðustu rollurnar úr stofninum, sem telur um 350
fjár. Jóhann hefur verið sauðfjárbóndi á bænum Keflavík í
Hegranesi í Skagafirði, skammt austan Sauðárkróks, í
meira en 30 ár. Hefur alltaf séð um rúninginn sjálfur og
segist spara á því talsverðar fjárhæðir.
„Það eru ekki margir á mínum aldri sem rýja sjálfir.
Stéttin er orðin það gömul, 58 ára að meðaltali, að margir
eru hættir að gera þetta sjálfir, kaupa frekar til þess sér-
staka rúningsmenn. Maður harkar þetta af sér með þráa
og líkast til smá nísku, því þónokkur hluti ullarverðsins
fer ef rúningurinn er keyptur,“ segir hann.
Þrátt fyrir að hafa verið um tíma í fararbroddi fyrir
sauðfjárbændur á svæðinu er Jóhann Már þekktastur fyrir
einsönginn, einn af hinum landskunnu „Konnurum“ frá
Akureyri, sonur Jóhanns Konráðssonar tenórsöngvara og
Fanneyjar Oddgeirsdóttur, og þar með bróðir Kristjáns
Jóhannssonar óperusöngvara. Fleiri góða söngvara má
nefna af þeirri ætt, eins og systurson þeirra, Örn Viðar
Birgisson og bróðurdótturina Jónu Fanneyju Svavars-
dóttur sópransöngkonu, en Svavar er líka góður söngvari
líkt og flestir í fjölskyldunni.
Paradís á jörðu
Jóhann Már segist aldrei hafa skilið við ræturnar á Ak-
ureyri og í Eyjafirði. Eftir nærri 40 ára „útlegð“ þaðan,
fyrst við tamningar í Húnaþingi og síðan búskap í Skaga-
firði frá 1976 ásamt eiginkonunni Þóreyju Jónsdóttur og
börnum þeirra, þá segist hann enn hrökkva í kút er hann
segir „við Skagfirðingar.“ En þau hjónin eru ekkert á för-
um frá Keflavík þótt börnin séu farin að heiman og ólík-
legt að þau taki við búskapnum.
„Þetta er komið það langt að maður vill ekki fara burtu
héðan nema láréttur. Héðan er stutt í alla þjónustu og gott
útsýni yfir Skagafjörðinn. Þetta er mjög skemmtilegur
staður og gott að vera hérna, stutt í sjóinn þar sem hægt er
að veiða silung og annan fisk og týna egg í björgunum.
Þetta er paradís á jörðu,“ segir Jóhann og er greinilega
mjög sáttur við jörðina, sem hann er frekar nýlega búinn
að eignast eftir að hafa verið leiguliði á henni lengi framan
af. Tóku þau við búinu af eldri systkinum á sínum tíma en
byggðu fljótt sitt eigið íbúðarhús á jörðinni.
Enginn asi á þessu
Nú þegar rúningurinn hefur rammað inn haustverkin
gefst ágætur tími fyrir Jóhann Má að fylgja úr hlaði nýjum
hljómdiski, Hvert sem ég fer, sem var að koma út á hans
eigin vegum. Þetta er hans fjórða einsöngsplata, sú síðasta
kom út árið 2004, Frá mínum bæjardyrum, og hlaut mjög
góðar viðtökur og dóma. Þá hafði ekki komið út plata með
einsöng Jóhanns í 15 ár og hann segist hafa hugsað með
sér fyrir fimm árum að þetta yrði síðasta platan. Fyrsta
platan kom út árið 1983 á vinyl, Bóndinn, og sex árum
síðar kom önnur vinylplata, Ef væri ég söngvari.
„Síðustu plötu var tekið það gríðarlega vel, eins og
raunar hinum fyrri, að ég hugsaði með mér að ég yrði að
koma einhvern tímann með aðra. Það var hins vegar eng-
inn asi á þessu og platan hefur verið tvö eða þrjú ár í
vinnslu, enda fer mikill tími í búskapinn og ekki ástæða til
að ákveða einhverjar nákvæmar dagsetningar með útgáf-
una. Höfum gefið okkur góðan tíma í að velja lög og
margsyngja þau fram og til baka. Lítið er orðið eftir af
upphaflega lagalistanum,“ segir Jóhann um tilurð nýja
disksins. Hann er unninn í nánu samstarfi við Magnús
Kjartansson tónlistarmann, sem sá um allar upptökur,
útvegaði tónlistarmenn og kóra til að syngja undir, auk
þess sem hann spilar sjálfur á ýmis hljóðfæri í flestum lag-
anna. Jóhann er ekki í amalegum félagsskap með sjálfan
Flugfreyjukórinn sér til fulltyngis í tveimur lögum, auk
hóps úr Karlakórnum Þröstum í öðrum tveimur lögum. Á
disknum eru 13 einsöngslög, þar af tvö ný lög eftir Magn-
ús sem Jóhann frumflytur.
„Þetta er öðruvísi diskur en ég er vanur. Nú syng ég
ekki eingöngu við píanóundirleik heldur með heilli
hljómsveit. Allt er þetta í léttari kantinum, þó líka hug-
ljúft í bland. Það var kominn tími til að poppa karlinn
upp, eins og Maggi orðaði það,“ segir Jóhann og hlær.
Fleiri góða lagahöfunda má nefna af diskinum, m.a.
Geirmund Valtýsson. Um er að ræða gamalt lag sveiflu-
kóngsins, eitt af hans fyrstu lögum, en í nýjum búningi.
Engin skagfirsk sveifla þar, segir Jóhann, en lagið nefnist
Nú kveð ég allt, við texta Guðrúnar Gísladóttur. Drauma-
landið, eftir Sigfús Einarsson, er svo lokalagið, en Jóhann
segir það vera óskalag frá Magnúsi upptökustjóra, „í raun
hið eina á disknum sem telst vera hefðbundið í mínum
stíl,“ segir söngvarinn. Þá getur að heyra nokkur erlend
lög með nýjum textum eftir m.a. Jónas Friðrik og Birgi
Marinósson, mág Jóhanns Más. Einnig er þarna að finna
nýtt lag um Hofsós eftir Bjarna Þór Pétursson.
Gengur á jarðarfaralistann
Bráðum hálfnaður á sjötugsaldrinum vildi hann vera viss
um að dómgreindin væri í lagi, svo hann væri ekki að
senda eitthvað frá sér með gamla og slitna rödd sem hann
heyrði ekki, og sendi lögin í gagnrýna hlustun hjá völdum
hópi vina og ættingja. Honum þótti afskaplega vænt um
þegar systursonur hans sagði: „Ef ég myndi hlusta á
þennan disk eftir 10 til 15 ár, og þetta yrði sagður síðasti
diskurinn, þá myndi ég spyrja af hverju í andskotanum
söng hann ekki á annan.“ Ég veðraðist auðvitað upp við
þessi ágætu ummæli!“
Jóhann Már hefur alltaf sinnt sönglistinni eins og hans
tími frá bústörfunum hefur leyft, sungið í kórum til
margra ára, m.a. Karlakórnum Geysi á Akureyri, Karlakór
Bólstaðarhlíðarhrepps, Karlakórnum Heimi og Kirkjukór
Sauðárkrókskirkju, og verið eftirsóttur einsöngvari á tón-
leikum og við jarðarfarir. Kominn er nokkuð langur
pantanalisti um jarðarfarasöng. „Ég veit ekki hvernig ég á
að klára þær pantanir, því ég er orðinn fullorðinn og
margir af þeim sem hafa pantað á svipuðum aldri og ég.
Það gæti orðið erfitt að klára það dæmi. Því miður klárast
einn og einn af listanum, eins og lífið býður upp á,“ segir
hann.
Útilokar ekki söng með Kristjáni
Jóhann Már er ekki langskólagenginn söngvari, tók á sín-
um tíma söngtíma hjá Sigurði Demetz einn vetrarpart á
Akureyri er hann söng með Karlakórnum Geysi, en hugur
hans stefndi aldrei til frekara söngnáms. Aðstæður hög-
uðu því þannig til að búskapur í sveit var hans helsti
draumur sem ungur maður. Söngurinn er einfaldlega í
blóðinu og hann segist æfa sig reglulega við ágætar að-
stæður, þó ekki heima í hlýrri stofunni heldur úti í fjár-
húsinu eða hlöðunni. „Þar syng ég mikið og held röddinni
þannig við. Þetta er eins og með hástökkvarann, ef hann
æfir ekki stökkin þá er þetta búið. Ég hef oft montað mig
af því að hafa fleiri hundruð áheyrendur á æfingum,“ seg-
ir Jóhann og hlær, líkast til sá bóndi sem er með einna
söngelskasta sauðféð í Skagafirði og þótt víðar væri leitað.
Sem fyrr segir er Jóhann Már „Konnari“ og leiðtoginn í
fjölskyldunni, Kristján Jóhannsson, er nýlega fluttur
heim til Íslands eftir langa dvöl á Ítalíu. Þeir bræður hafa
ekki mikið sungið saman, helst þá á fjölskyldumótum, en
með óvæntri heimkomu Kristjáns gætu líkur hafa aukist á
að þeir stígi á svið opinberlega. „Það er aldrei að vita
nema að það gerist einhvern tímann,“ segir söngvarinn
og sauðfjárbóndinn í Keflavík að endingu.
Jóhann Már Jóhannsson á æfingu í fjárhúsunum í Keflavík í Skagafirði. Hann hefur fleiri hundruð áheyrendur.
Ljósmynd/Pétur Ingi Björnsson
Kominn tími
til að poppa
karlinn upp
Meðfram sauðfjárbúskap í Skagafirði
hefur „Konnarinn“ Jóhann Már Jó-
hannsson gefið sér tíma til að und-
irbúa fjórðu einsöngsplötuna sem frá
honum kemur á löngum ferli. Jóhann
tekur aríur iðulega í fjárhúsunum.
Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is
„Ef ég myndi hlusta á þennan
disk eftir 10 til 15 ár, og þetta
yrði sagður síðasti diskurinn,
þá myndi ég spyrja af hverju í and-
skotanum söng hann ekki á annan.“
HLEÐSLUTÆKI SNILLDARJÓLAGJÖF
BÍLDSHÖFÐA 12 / 110 RVK / 577 1515 / SKORRI.IS
15%
JÓLAAFSLÁTTUR
AF ÞESSUM
FRÁBÆRU TÆKJUM