SunnudagsMogginn - 13.12.2009, Side 14
M
amma Gógó fjallar um kvikmyndaleikstjóra
sem þráir ekkert heitar en viðurkenningu og
ást þjóðar sinnar. Af einhverjum ástæðum er
gatan ekki eins greið og hann hugði og eitt-
hvað eru fjármálin líka að flækjast fyrir honum. Til að bæta
gráu ofan á svart veikist móðir hans af Alzheimer-
sjúkdómnum og þarf að komast á þar til gerða stofnun. Það
reynist þrautin þyngri, enda blessuð konan óvön að láta
segja sér fyrir verkum. Myndin verður frumsýnd 30. des-
ember næstkomandi.
Kvikmyndaleikstjórinn er aldrei nefndur á nafn í mynd-
inni en fram kemur að hann er Friðriksson. Hann á móður
sem kölluð er Gógó og er að frumsýna Börn náttúrunnar.
Beint liggur við að spyrja Friðrik Þór Friðriksson hvort hér
sé um sjálfsævisögulegt verk að ræða.
Hann hallar undir flatt, þar sem hann hefur komið sér
makindalega fyrir í leðursófa. Brosir í kampinn. „Helvíti er
ég eitthvað þyrstur. Ég var að koma úr fótbolta og skoraði
úrslitamarkið. Það var dásamleg tilfinning,“ segir hann
hróðugur.
Einmitt það. Ég samgleðst Friðriki Þór. Það er engu líkt að
skora mark. Hvað þá úrslitamark. En um það var ekki
spurt.
„Já, myndin,“ byrjar Friðrik Þór kankvís. „Móðir mín,
Guðríður B. Hjaltested, er vissulega kölluð Gógó og hefur
glímt við Alzheimer-sjúkdóminn undanfarinn áratug eða
svo. Hún varð 95 ára á degi Maríu meyjar. Karakterinn í
myndinni er byggður á henni og flest atriðin sem snúa að
mömmu Gógó og veikindum hennar eiga sér stoð í veru-
leikanum. Að öðru leyti er þessi mynd hreinn skáld-
skapur.“
Hann segir fólki þó í sjálfsvald sett hvernig það taki þessu.
„Það má vel vera að einhverjir tengi þennan ágæta kvik-
myndaleikstjóra við mig. Það er mér að meinalausu, aðal-
atriðið er að fólk njóti myndarinnar.“
Tilvísanir í allar áttir
Hann segir Mömmu Gógó gerast í óræðum tíma en atburðir
liðinna ára hér á landi fléttist inn í söguna. „Ég varð að setja
smá hrun í þetta. Annars eru tilvísanir í allar áttir og kvik-
Skop-
skynið er
dyggð
Mamma Gógó nefnist nýjasta
kvikmynd Friðriks Þór Friðriks-
sonar. Hermir þar af kvikmynda-
leikstjóra nokkrum sem glímir í
senn við höfnun í starfi og alvar-
leg veikindi móður sinnar.
Kvikmyndir
Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg