SunnudagsMogginn - 13.12.2009, Page 17
13. desember 2009 17
Eins og
djöflar tali
Friðrik Þór Friðriksson hefur kynnst
Alzheimer-sjúkdómnum vel gegn-
um veikindi móður sinnar. Hann
segir merkilegt að Alzheimer eigi
sér stað í sömu heilaflögu og ein-
hverfa, en um hana fjallaði Friðrik
Þór einmitt í sinni síðustu mynd,
heimildarmyndinni Sólskinsdreng,
sem vakið hefur mikla athygli víða
um heim.
„Alzheimer er umfram allt ófyr-
irséður sjúkdómur,“ segir hann.
„Persónuleikabreytingin getur orð-
ið svo mikil að maður hreinlega
trúir því ekki. Eina mínútuna er
eins og djöflar tali gegnum sjúk-
linginn en þá næstu kemur karakt-
erinn aftur fram og þá man aum-
ingja manneskjan ekkert hvað hún
var að segja. Þetta er stór-
furðulegt.“
Stutt í lækningu
Friðrik Þór segir fáa vita að það er
stutt í lækningu við Alzheimer.
„Sjúkdómurinn er til þess að gera
einfaldur viðureignar fyrir vís-
indamenn og hefði Íraksstríðið
ekki brotist út væru þeir sennilega
búnir að leysa málið. Þeir bíða
bara eftir fjármagni til að stunda
sínar rannsóknir og um leið og
stríðinu lýkur munu þeir finna
lækningu á tiltölulega skömmum
tíma – líklega fimm árum.“
Friðrik Þór áttaði sig fljótt á því
að hann gat nálgast móður sína
gegnum gamlar ljósmyndir eftir að
hún veiktist. Það mun vera algengt
með einverfa líka. Það er eins og
myndirnar hafi róandi áhrif á fólk.
„Margir Alzheimer-sjúklingar eru
mjög órólegir og þetta getur verið
góð leið til að róa þá niður. Sama
má segja um einhverfa. Ég nefndi
þetta við virtan vísindamann á sín-
um tíma og hann furðaði sig á því
að ég hefði áttað mig svona fljótt á
þessu. Það hafði tekið hann fimm-
tán ár að komast að sömu nið-
urstöðu með þrotlausum rann-
sóknum og önnur tíu ár að komast
að því að ekkert samhengi er milli
Alzheimer og einhverfu.“
Sólskinsdrengurinn hefur vakið
verðskuldaða athygli.
Morgunblaðið/Kristinn