SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 13.12.2009, Qupperneq 31

SunnudagsMogginn - 13.12.2009, Qupperneq 31
Vandaðar bækur fyrir vandláta lesendur sími 561 0055 • www.ormstunga.is Helgi Ingólfsson Þegar kóngur kom Litrík og spennandi Reykjavíkursaga frá 19. öld. Í þessari sögulegu skáldsögu er endurskapað andrúm liðinna tíma, þegar menn voru upprifnir af ætt- jarðarást og þó trúir sínum arfaherra, frásögn af kóngi og kotbýlingum, skólapiltum og skáldum, emb- ættismönnum og efristéttarkonum, þénustupíum og þurrabúðarkörlum. Haraldur Bessason Guðir og menn Greinarnar sem hér birtast búa yfir óvenjulegum töfrum. Yfir þeim er andi heiðríkjunnar þar sem saman fara fræði, innsæi og kímni. Þær tengjast gjarnan hinu tímalausa í tilverunni og hjálpa okkur þannig til að hefja okkur yfir ringulreiðina og komast í einhvers konar snertingu við kjarnann. Stefán Sigurkarlsson Raddir frá Hólmanesi Hér segir af mannlífinu við Jökulflóa, einkum fólkinu í þorpinu Hólmanesi, leyndardómum þess, sorg- ar- og gleðistundum, bæði heima og heiman. „[…] býsna skemmtileg […] Ég á örugglega eftir að grípa oft í þessa bók. – Þórdís Gísladóttir. Miðjan.is. 8. des. 2009. „Bókin er stórskemmtileg, hún er eiginlega þannig að maður leggur hana ekki frá sér þegar maður er byrj- aður. […] Sagan af apótekaranum er svo drepfyndin að maður á varla orð, en lýsir samt þessum veruleika í smáplássinu.“ – Sigurður G. Tómasson, Útvarpi Sögu 9. des. 2009 Hlín Agnarsdóttir Blómin frá Maó Gráglettin saga um pólitíska einsýni og foringjadýrkun. Þegar Sigurborg Eyfjörð félagsráðgjafi er að leita að hentugum potti fyrir búsáhaldabyltinguna er hún beðin um að rifja upp ótrúlega fortíð sína í Asparsamtökunum, en það voru ekki skógræktarsamtök heldur róttæk byltingarsamtök á áttunda áratug tuttugustu aldar. „[…] aldeilis verðugt söguefni sem Hlín tekst á við af þekkingu, innsæi og nettbeiskum húmor.“ – Steinunn Inga Óttarsdóttir, Sunnudagsmogganum, 29. nóv. 2009 Guðmundur Óskarsson Bankster Meitluð saga úr bankahruninu. Tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna! „[…] hreinræktuð kreppubók og hreinasta afbragð sem slík. Besta kreppubókin.“ – Árni Matthíasson, Sunnudagsmogganum, 15. nóv. 2009. Úrvalsbækur eftir úrvalshöfunda

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.