SunnudagsMogginn - 13.12.2009, Qupperneq 44
44 13. desember 2009
Tónlist
Gítarleikarinn snjalli
Jack Rose lést úr
hjartaáfalli í liðinni
viku aðeins 38 ára
gamall. Hann var
með fremstu gít-
arleikurum í banda-
rískri tilraunatónlist
og liðsmaður óhljóðasveit-
arinnar mögnuðu Pelt. Rose var
afkastamikill tónlistarmaður,
gaf út margar plötur með Pelt,
fimm skífur sem Dr. Ragtime og
þrettán undir eigin nafni.
Ein af þeim plötum var Raag
Manifestos sem kom út í tak-
mörkuðu upplagi fyrir fimm ár-
um.
Jack Rose gekk til liðs við Pelt
1993, en sú sveit helgaði
sig óhljóðum framan af
en tók svo að bæta vís-
unum í gamla bandaríska
þjóðlagamúsík og frum-
stæðan blús inn í óhljóð-
in og flétta saman við
þjóðlega músík annarra
landa. Þegar Rose tók svo til við
sinn sólóferil fór hann einmitt
lengra í þá átt, gaf fyrst út rag-
timeplötur, þá plötur þar sem
hann fléttaði saman ragtime og
indverskri raga-tónlist eins og
heyra má á Raag Manifestos.
Hann hafði sérstakan áhuga á
spilastíl sem menn kalla flat-
picking, spilaði gjarnan með gít-
arinn í kjöltunni og framkallaði
bardúnstón að hætti sítarleikara.
Skífan byggist að mestu á
kassagítarleik sem hljómar
stundum sem kassagítar en
stundum líka sem sítarahjörð og
rafmögnuð rokksveit. Rose sér
sjálfur um að krydda gítarleik-
inn með rafhljóðum í einu lagi,
en síðan er hann með tabla-
leikara sér til halds og trausts í
einu lagi sem minnir ekki svo
lítið á indverska sítartónlist.
Lokalag skífunnar sýnir svo vel
hvað Rose var að pæla á þessum
tíma því þar er komið lagið
magnaða Blessed Be the Name of
the Lord eftir Mississippi John
Hurt.
arnim@mbl.is
Poppklassík Raag Manifestos – Jack Rose
Meistari óhljóðanna allur
Það verður heilmikil hátíð fyrir gamla fólkið
haldin í Lundúnum næsta sumar en þá
munu öldungarnir í Emerson, Lake & Palmer
og ZZ Top stíga á svið.
Tónleikarnir verða á rokkhátið sem kallast
High Voltage og verður haldin í Victoria al-
menningsgarðinum 24. og 25. júlí næst-
komandi. Emerson, Lake & Palmer fagna því
að sveitin á 40 ára afmæli (!) en ZZ Top hef-
ur ekki spilað á tónleikum á Englandi í ald-
arfjórðung. Meðal aðstandenda tónleikanna
er tímarit sem helgað er sígildu rokki og gef-
ur vísbendingu um að eitthvað eigi eftir að
bætast við af gamlingjasveitum þegar til-
kynnt verður um endanlega dagskrá
snemma á næsta ári
Emerson, Lake & Palmer hélt síðast tón-
leika 1998. Þá hugðist hún taka upp nýja
skífu en endaði með hávaða og vinslitum.
Emerson, Lake & Palmer forðum daga.
Emerson, Lake &
Palmer aftur á svið
Margur tónlistarmaðurinn hefur byrjað feril
sinn með skólahljómsveit líkt og Justin Ver-
non, sem kallar sig Bon Iver. Hann var í Me-
morial miðskólanum í Eau Claire í Wiscons-
in, þar sem mikil áhersla var lögð á tónlist,
enda starfa níu hljómsveitir við skólann.
Bon Iver var þar í jazzsveit og sneri aftur á
gamlar slóðir fyrir stuttu til að syngja með
sveitinni á fjáröflunartónleikum. Upptökur
frá þeim tónleikum komu upp fyrir
skemmstu en á þeim má heyra Bon Iver
syngja eigin lög og líka gamlar lummur á við
á við Miss Otis Regrets og Lady Is A Tramp.
Jazztónlistarmaðurinn Bon Iver.
Bon Iver syngur
gamlar lummur
F
yrir fimmtán árum eða svo voru þeir
Wu-Tang-félagar óstöðvandi. Fyrsta
platan, „Enter the Wu-Tang (36
Chambers)“, kom út 1993 og þó hún
hafi verið smátíma að komast inn á lista seld-
ist hún síðan bráðvel og hafði gríðarleg áhrif.
Sólóskífur þeirra félaga gengu líka vel, enda
afbragðs plötur; Tical með Method Man kom
út 1994, Only Built 4 Cuban Linx með Raek-
won kom út 1995 og seinna sama ár Liquid
Swords með GZA. Allar voru plöturnar með
því besta sem heyrðist af rappi á þeim tíma,
en þó það sé kannski smekksatriði þá var
Only Built 4 Cuban Linx tvímælalaust besta
platan og sú þeirra sem var næst því að verða
Wu-tang Clan plata númer tvö.
Segir fátt af einum
Síðan eru liðin mörg ár og saga rapparans Ra-
ekwon (nú eða flestra Wu-Tang-liða) hefur
ekki verið eins glæst og búist var við. Eftir því
sem meira fé var í spilinu slettist upp á vin-
skapinn, RZA, sem var bæði upphafs- og að-
almaður í öllu saman, hafði æ minni tíma til
að spinna upp frumlega takta og það má eig-
inlega segja að ævintýrið hafi fjarað út að
mestu. Reyndar komu út fleiri Wu-Tang-
skífur, og sumar mjög fínar, en flestir fé-
lagarnir nánast hurfu, þar á meðal Raekwon.
Það tók Raekwon fjögur ár að koma út
næstu sólóplötu; Immobiliarity kom út 1999
og vakti litla hrifningu, enda kom RZA hvergi
nærri skífunni. Enn liðu fjögur ár þar til næsta
plata, The Lex Diamond Story, kom út, en
henni var ekki betur tekið. Þrátt fyrir það
ætlaði hann ekki að gefast upp og til stóð að
gefa út sólóskífu 2007, en nú átti að tjalda því
sem til var; RZA átti að leggja til lög, Dr. Dre
og J Dilla meðal annars, en upptökustjórn á
skífunni átti annars að vera í höndum Busta
Rhymes. Það fór reyndar á annan veg – eins
og vill verða í rappheimum. Fyrst var RZA of
upptekinn og hætti við, en svo kom hann aft-
ur, þá hætti Dr. Dre við, en skipti um skoðun
og svo gekk Busta Rhymes úr skaftinu og svo
má lengi telja.
Á endanum tókst þó að ljúka við skífuna og
Only Built For Cuban Linx... Pt. II kom loks út
í haust. Hún hefur fengið fína dóma og það að
vonum því hér er loks komin almennileg Ra-
ekwon-skífa og verðugur arftaki plötunnar
goðsagnakenndu sem hóf sólóferil hans.
Rapparinn Corey Woods, sem tók sér listamannsnafnið Raekwon the Chef, með Ghostface félaga sínum.
Stuð með Raekwon
Lítið hefur heyrst af viti frá rapparanum Raekwon
sem gerði garðinn frægan með Wu-Tang Clan fyrir
hálfum öðrum áratug. Hann hefur nú snúið aftur með
magnaða skífu sem minnir á gamla daga
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Allt byrjaði þetta með þeirri
hugmynd RZA að kalla saman
rappara sem legðu allt sitt
traust á hann. Fyrsta platan var
Enter the Wu-Tang (36 Cham-
bers) sem kom út haustið 1993
– ein áhrifamesta skífa rapp-
sögunnar og hafði gríðarleg
áhrif á þróun formsins næsta
áratuginn.
Á skífunni skipa þeir sveitina
RZA, Ghostface Killah, Raek-
won, Inspectah Deck, GZA, Ol’
Dirty Bastard, Method Man, U-
God og Masta Killa, en síðan
hefur mannaskipan klíkunnar
verið mjög á reiki, aukinheldur
sem Ol’ Dirty Bastard lést fyrir
nokkrum árum.
Mikil merkisskífa.
Enter the
Wu-Tang