SunnudagsMogginn - 13.12.2009, Page 45
13. desember 2009 45
Landnámssetrið í Borgarnesi
437 1600 | landnamssetur@landnam.is
Stormar og styrjaldir - Sturlunga Einars Kárasonar
(Söguloftið)
Lau 9/1 kl. 17:00
Fös 22/1 kl. 20:00
Sun 31/1 kl. 16:00
Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson
(Söguloftið - sýningum lýkur í vor)
Mán28/12 kl. 20:00 U
síðasta sýn.
Tvær Grímur 2007 - Besti leikari - Besta handritið
Uppáhald jólasveinanna (Hvíta sal og skála)
Sun 13/12 kl. 12:00 Sun 20/12 kl. 12:00
Pönnukakan hennar Grýlu eftir Bernd Ogrodnik
(Söguloftið)
Sun 13/12 kl. 14:00 U
uppáhald jólasveinanna kl 12
Sun 20/12 kl. 14:00 U
uppáhald jólasveinanna kl 12:00
Brúðarræninginn (Söguloftið)
Fös 15/1 kl. 21:00 U Lau 30/1 kl. 20:00
Íslenska óperan
511 4200 | midasala@opera.is
Ástardrykkurinn
Fös 15/1 kl. 20:00
næstsíðasta aukas.
Lau 23/1 kl. 20:00
síðasta aukas.
Gjafakort á Ástardrykkinn - tilvalin jólagjöf!
Jólahádegistónleikar Óp-hópsins með Gissuri Páli
Gissurarsyni
Þri 15/12 kl. 12:15
"Besti skyndibitinn í bænum!" - Birna Þórðardóttir, RÚV
Hellisbúinn
Mið 30/12 ný aukas. kl. 20:00 Lau 9/1 ný aukas. kl. 19:00
Vinsælasti einleikur allra tíma!
Íslenski dansflokkurinn
568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Endalaus - Febrúarsýning2010 (Stóra sviðið)
Fim 4/2 frums. kl. 20:00
Sun 7/2 kl. 20:00
Sun 14/2 kl. 20:00
Sun 21/2 kl. 20:00
Sun 28/2 kl. 20:00
Sun 7/3 kl. 20:00
Hafnarfjarðarleikhúsið
555 2222 | theater@vortex.is
Ævintýriðum Augastein (Hafnarfjarðarleikhúsið)
Sun 13/12 kl. 12:00 U
Sun 13/12 kl. 14:00 Ö
Sun 13/12 kl. 16:00 Ö
Eingöngu í desember
Leikhúsin í landinu
www.mbl.is/leikhus Uppselt Örfá sæti laus FaranU Ö F
É
g auglýsi eftir desemberkærasta.
Þannig hljóðaði setning sem ein-
hleyp vinkona mín færði inn á Fés-
bókina sína um daginn.
Ástæðan? Jú, desember er sá mánuður sem
einhleypa langar hvað mest til að eiga maka.
Þetta er einn rómantískasti mánuður ársins.
Allir fyllast af jólakærleik, tíðni þéttra faðm-
laga og kossa eykst gríðarlega, góðmennska og
gjafmildi fer upp úr öllu valdi og svo er alsiða
að kynna nýja kærasta/kærustur í fjölskyldu-
jólaboðum.
Ég þekki góðhjartaða konu sem „lánaði“ ein-
hleypri vinkonu sinni manninn sinn í jólaboð.
Hún var orðin hundleið á því að mæta alltaf
alein og glerfín í jólaveisluna í vinnunni. Hana
langaði til að skarta einum alveg „splunkunýj-
um“ fylgisveini og gefa vinnufélögunum í leið-
inni tækifæri til að hafa eitthvað til að smjatta
á. Hann tók niður giftingarhringinn áður en
hann leiddi hana inn í salinn og hún kynnti
hann sem vin sinn.
Bæði skemmtu sér konunglega það kvöldið.
Þessi einnar-kvöldstundar-maður er einmitt
ígildi desemberkærasta: Tímabundið fyrirbæri
sem hleypir birtu inn í skammdegið, rétt eins
og allar jólabíómyndirnar og jólalögin sem
gjarnan fjalla um aðventurómantíkina.
Það er óneitanlega gaman að vera ástfangin í
desember, rölta um bæinn með elskunni sinni
með ástarglampa í augum sem er skærari en öll
jólaljósin og jólaskrautið, sötra heitt kakó í
kuldanum, njóta saman ótal tónleika, bóka-
upplesturs, renna sér saman á skautum og
skíðum, laumast til að kaupa eitthvað frumlegt
og fallegt handa hvort öðru.
Og komast vart fram úr rúmi vegna óseðjandi
ástarbríma. Sem er sérlega hentugt þegar vinna
þarf á öllum kalóríunum sem hlaðast upp í ofáti
jólanna. Mikil orkulosun felst í kynlífsleikfimi
en þó er hún allra mest í sjálfri nægjunni.
Því er um að gera að vanda sig í desem-
bergælunum og framkalla sem oftast himneskt
jólaljós í hverri taug þess sem við elskum.
Desemberfullnægingar má laða fram með
ýmsu móti, nægur er jú efniviðurinn og um að
gera að virkja sköpunarkraftinn til þjóðlegra
ástarleikja:
Hvaða kona vill ekki láta Giljagaur gilja sig?
Og hvaða karl vill ekki lenda í höndum kven-
kyns Bjúgnakrækis (nú eða karlkyns ef kenndin
er slík)? Þvörusleikir kann ábyggilega að sleikja
ýmislegt fleira en þvöru af áfergju og Kerta-
sníkir gæti lumað á einhverju öðru en kertum
til að leika með í bólinu. Gluggagægir og Stúfur
luma ábyggilega líka á einhverjum fullorðins
strákapörum.
Ég hvet alla til að finna í sér kynóða jóla-
sveininn, tæta sig úr jólatötrunum fyrir ástina
sína og tileinka sér takta hrekkjalómsins.
Þannig má bæði gleðja og létta á jólastress-
inu.
Grýla og Leppalúði gætu ekki síður verið
innblástur, þeirra hjónalíf má eflaust útfæra á
ýmsa vegu (ég er nokkuð viss um að Grýla hef-
ur tekið Leppa karlinn með stæl).
Fyrir þá sem eru meira fyrir amerísku jóla-
sveinaútgáfuna, getur dugað að skella rauðri
jólasveinahúfu á kollinn þegar stigið er úr jóla-
sturtunni og kalla digurbarkalega til makans:
HÓ HÓ!
Og fyrir þá sem vilja vera hátíðlegir er hægt
að horfa til ofurparsins Maríu og Jóseps. Engin
veit með vissu hvernig höndum smiðurinn fór
um hana Maríu sína áður en himnasendingin
kom inn í þeirra samlíf.
Hvernig sem við gerum það, þá skulum við
hvetja og hvessa hvort annað til desemberásta.
Ástsýki
í desember
Stigið í
vænginn
Kristín Heiða
khk@mbl.is
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
HHHHH JVJ, DV
„Ástarþökk fyrir
ógleymanlegt
kvöld“ SA, TMM
„Ég skora á fólk að
fara í leikhúsið
og sjá
Jesú litla -
kynna
sér
guðfræði
trúðsins
og máta við
sína.“ GB, Mbl
Næstu sýningar sjá á heimasíðu Borgarleikhússins
www.borgarleikhus.is
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
GJAFAKORT
ÞJÓÐLEIKHÚSSINS
Einstakt tilboð til jóla
Yndisleg sýning
fyrir alla krakka
Sýnin
gar
lau. o
g sun.
kl 15:
00