Skólablaðið - 01.02.1959, Qupperneq 13
113 -
Nu eru aðeins tíu nem. í stofunni. Þeir
grúfa sig allir yfir verkefnin.
Kór leikhússins - eða plata - syngur :
•'Allt eins og blómstrið eina.”
Tveir kennarar ganga á milli borð-
anna og athuga, hvort nokkuð svindl sé í
frammi haft.
Auðvitað svindla allir nema kúristinn
(annars kæmist enginn upp ), en hann hafði
ekki nægilegt hugmyndaflug til að láta sér
detta það í hug.
Ætlazt er til, að reynt verði að sýna það
með Ijósaútbúnaði, hvernig öll hans þekk-
ing gufar smátt og smátt upp sem grænt
mistur.
Hvíslkór nemenda syngur án afláts ýmis
skemmtileg kórverk.
Kennararnir þramma fram og aftur
um sviðið. Spark þeirra fellur inn í
hljómlistina.
Havaðinn truflar söguhetjuna, hvers taugar
eru. komnar í stakasta ólag.
Hann skiptir litum eftir því sem hann
ruglast meir og að lokum hefur hann upp
raustina og kyrjar hið fagra einsöngslag ;
5,Nú hef eg hrasað og brátt mun eg falla"
Þetta sorglega atriði endar, þegar tjöldin
eru dregin fyrir.
3. a.triði - finale.
Lokaatriði leiksins gerist í þakher-
bergi kúristans. Hann er fallinn á stúd-
entsprófi.
í þessu atriði nær spenna óperunnar
hámarki. Þarna er klimaxinn.
Þegar tjöldin eru dregin frá, situr
söguhetjan á dívangarmi sínum og reytir
hár sitt eða lemur veggina.
Hann syngur eina sorglegustu aríu,
sem um getur í sögu óperunnar. Rauði
þráðurinn í henni er sá, að nú sé hann
fallinn enn einu sinni, og það á stúdents-
prófi, og hvers virði sé þá að lifa.
Hann skrúfar nú krók í súðina og
hengir sig síðan í axlaböndunum.
Hann syngur sig inn í dauðann.
í lokaaríunni birtist kaldhæðni hans, er
hann syngur :
"Núna fer ég fjandans til
fjarska verður gaman"
Síðasta hljómlistin, sem menn heyra,
er trumbusóló, sem á að líkja eftir sparki
sjálfsmorðingjans í veggi herbergisins, er
hann dinglar í snörunni.
Buxurnar falla niður um hann rnn leið
og hann gefur upp öndina, og þá fellur
tjaldið líka í síðasta sinn.
Hér lýkur þessari fyrstu óperu fs -
lendings. Megi hún vera fyrirboði end-
urvakningar í ísl. tónlistarlífi.
Óperan er mörgum kostum búin, en
sá er stærstur, að einsöngvarinn í aðal-
hlutverkinu hengir sig.
Mætti því með nokkrum velheppn-
uðum sýningum útrýma þeirri stétt úr
landinu.
Er ekki að efa að verk þetta mun
verða mjög vinsælt.
Óperufræðingur Skólablaðsins.
81FRÁ GLAUMBÆ OG SJÁLFUM MÉR"
Frh. af bls. 114.
Ennþá er eitt atriði um safnið, sem
ég veit hefur vakið athygli og gremju
margra, og sem hefði frekar mátt minn-
ast á. Það er fjöldi sálumessna, miðað
við þær fáu óperur, sem til eru. Þessi
galli stafar af þeirri sárgrætilegu stað-
reynd, að nærri því engar óperur hafa
verið fáanlegar, - og þær fáu, sem hafa
fengizt, hafa að mestu leyti verið meira
eða minna gallaðar. Við höfum orðið að
bíða tækifæris á betri upptökum, og höf-
um nú fengið tvær óperur "au complet"
og úrdrátt úr einni. Það er "La Traviata"
eftir Verdi með hinni snjöllu söngkonu
Renata Tebaldi í aðalhlutverkinu; -
"Madame Butterfly" eftir Puccini, með
Victoria de los Angeles, en það er al-
mennt álitið bezta hlutverk hennar, - og
svo einnig úrdrátt úr "Boris Godounov"
eftir Moussorgsky, með hinum stórbrotna
bassasöngvara Boris Christoff. Við höf-
um ávallt reynt að kaupa sem jafnast í
safnið, en það hefur verið gríðar erfitt
vegna þess.hversu fáar plötur eru og
hafa verið fáanlegar.
Að lokum vil ég minnast a þá ser-
stöku skilvísi og góðu umgengni, sem
nemendur hafa sýnt hingað til á þessu
skólaári, þrátt fyrir slæm húsakynni og
afgreiðsluskilyrði. Þessi umgengni hefur
verið til sóma, og fyrir það þökkum við
ykkur.
* £