Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.03.1959, Qupperneq 20

Skólablaðið - 01.03.1959, Qupperneq 20
FYRIR tveimur árum kom su tillaga fram á málfundi (eða skólafundi) a5 6. bekkingar gæfu ávallt Selinu einhvern hlut viö brottför sína. Ekkert hefur orSið úr þessu og er skaði aS. - Selið er mjög snautt innan og mundi verða til mikUla bóta ef myndir, skinn, horn og aðrir viðeigandi hlutir mundu skreyta veggi þess. Hlutina verður að velja vandlega, svo að þeir eigi vel saman og falli inn í þann stíl sem Selið er reist og innréttað í. - Eftirprentanir listaverka eru ekki dýrar, og fer miklu betur á að prýða veggi með góðum eftirprentunum heldur en lélegum málverkum. Málverk Menntaskólans eru t. d. flest frá fagurfræðilegu og listrænu sjónarmiði frá- munalega léleg. - Færi vel á að hengja hreindýrshorn og þenja skinn á veggi arin- herbergisins. Einnig er þar þörf á vegglampasamstæðu í stað glerkulunnar, og á arinvej;ginn. - Gluggatjöld verða nú sett fyrir alla glugga, og nýtt áklæði á hæg- indastola. Tekur Selið því talsverðum breytingum, en vistlegt getur það ekki orðið meðan veggirnir standa berskjaldaðir. - Gjafir þessar mundu verða gefnar á hverju hausti, en ekki vori, er 6. bekkingar hefja nám. Eigi skal rita nafn gefenda neins staðar á gjöfina, svo að Selið líti ekki ut eins og byggðasafn að innan. Ljósmyndir af nemendum verða og vonandi aldrei hengdar þar upp. - Hver nemandi þyrfti ekkí að leggja fram noma 10 -15 krónur, svo að hægt yrði árlega að kaupa gjöf fyrir 1000- 1500 kr. - Vona ég að nuverandi ó.bekkingar ríði á vaðið og gefi Selinu smekk- lega gjöf. Hannes Hávarðars^n.

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.