Skólablaðið - 01.12.1960, Page 14
78 -
«nóvember skipaði inspector
scholae nefnd, sem sjá skyldi
um skoðanakönnun meðal nem-
enda. í nefndinni áttu sæti
--------Sverrir Hólmarsson, 5.-B;
Baldur Símonarson, 5.-X; Magnus JÓ-
hannsson, 5.-Y; Sigfus Schopka, 4.-Z;
og Áskell Kjerulf, 3. K. Síðar voru
Reynir Axelsson, 4.-Z og Svavar Gests-
son, 3.-H, skipaðir í nefndina.
Þessi könnun var almenns eðlis, en í marzbyrjun verður spurt um líklegustu tilvon-
andi embættismenn og í apríl verður spurt, hverja menn kjósi til embætta.
Nefndin ákvað að taka tillit til fjögurra atriða við val í urtakið ( sem að öðru leyti
var valið af algjöru handahófi ) : kyns, bekkjar, deildar og námsárangurs ( yfir eða
undir 7.25 ). Skipting úrtaksins samkvæmt þessu sest á meðfylgjandi töflu (í svig-
um er raunverulegur fjöldi hvers flokks í skólanum ) :
Bekkur Deild P i 1 t a r S t ú 1 k u r Samtals
1. eink. 2. og 3. 1. eink. 2. og 3.
6. bekkur Málad. 1 ( 5) 3 (18) 1 ( 5) 3 (21) 8 (49)
Stærðfr. 2 (13) 4 (27) 0 ( o) 1 ( 7) 7 (47)
5. bekkur Málad. 0 ( 2) 3 (23) 1 ( 8) 3 (23) 7 (56)
Stærðfr. 2 (12) 6 (41) 0 ( 2) 2 (11) 10 (66)
4. bekkur Málad. 1 ( 7) 5 (36) 2 (14) 7 (51) 15 (108)
Stærðfr. 2 (13) 7 (49) z (n) 2 (11) 13 (84)
3.bekkur 13 (88) 13 (90) 6 (44) 8 (55) 40 (277)
Samtals 21 (140) 41 (284) 12 (84) 26 (179) 100 (687 )
Sköðana-
könnunm
Hér á eftir verða taldar spurningar,
svör og athugasemdir nefndarmanna.
( Nemendur gátu svarað spurningunum
með "já", "nei" eða "veit ekki, svara
ekki" ).
1. spurning: Eruð þér ánægð(ur)
með málfundi Framtíðarinnar í vetur?
Já svöruðu 31, nei 32, veit ekki,
svara ekki.37.
Skipting nemenda samkvæmt flokkum
er sýnd á töflu. Athyglisvert er, að efri
bekkirnir, einkum 4.bekkur, eru tiltölu-
lega ánægðir með fundina, en 45% þriðja-
bekkinga svara spurningunni neitandi.
Tjltölulega fæstir svara "veit ekki, svara
ekki" í 3.bekk, og má af því ráða, að
þeir sækja málfundi einna bezt.
Piltar sækja málfundi heldur betur en
stúlkur og eru fremur óánægðir, en
stúlkur frekar ánægðar.
Nemendur með 1. einkunn sækja mál-
fundi betur en hinir, og eru þeir fremur
óánægðir en síðari fremur ánægðir.
2. spurning: Hafið þér sótt list-
kynningu í vetur ?
Já : 32, nei: 65, 3 svara ekki.
6. bekkur og 3. bekkur sækja listkynn-
ingar vel, 5. bekkur sæmilega, en 4.
bekkur sízt ( tæp 25% ). Stúlkur sækja
listkynningar helmingi betur en piltar
( 47% á móti 23% ). Nemendur með 1.
einkunn sækja kynningar betur ( 40% ) en
nemendur með 2. einkunn og 3. ( 28% ).
Máladeild sækir listkynningar betur en
stærðfræðideild.
3. spurning : Sækið þér heldur opin-
bera skemmtistaði en fþöku, þegar dans-
leikir eru þar ?
Þessu svöruðu 23 játandi, 69 neit-