Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.12.1960, Blaðsíða 26

Skólablaðið - 01.12.1960, Blaðsíða 26
- 90 INAR bóndi Mar lét ekki standa á ööru tbl. vetrar, en það kom ut í síðari hluta nóvember- mánaðar og var betra hinu fyrra, enda venja, að fyrsta blað vetrar sé aumast. Sé blaðinu flett, verður fyrst fyrir ritsmíð ólafs R. , "Blekslettur". Ragnar ræðir einkum husnæðis- og kennslumál skólans, en einni^ listina og okkur. Við lestur greinar sa ég þegar í stað, að höfundur var hugsandi vera, sem hafði brennandi áhuga á ýmsum þjóðþrifamálum, en það var annað, sem særði augu lesanda, hinn háfleygi stíll. ólafur virðist forðast einfalt orðaval eins og heitan eldinn. Þar sem ég mundi nota sögnina að læra, talar hann um að bergja veigar menntagyðjunnar. M. R. nefnir hann ýmist "blessaðan gamla kofann" eða "musteri menntagyðj- unnar, " en nemendur eru þrælfjötraðir við staur ítroðslunnar, og eitthvað á að draga þungan og þrálátan dilk á eftir sér. Það þarf máltilfinningu, þekkingu og smekkvísi til að fara með slíkt há- fleygt kjaftæði án þess að "halda vilja- glaður um stvrisvöndinn", án þess að ausa vatni á þroskakyndil mannsandans, án þess að verða hlægilegur. Bæti ólafur ur þessu, verður hann allra manna fræknastur á ritvelli, því að hugsun hans er skyr og hugmyndir óbrjálaðar. Ég minnist þess ekki þau ár, sem ég hef verið hér í skóla, að Ijóð hafi verið bezta efnið í SKÓLABLAÐINU, en ég álít, að svo hafi verið í þessu blaði. Sálmur Böðvars Guðmundssonar og hin indælu ljóð ih. eru með því betra, sem þar hefur birzt nýlega. Ég veit aðeins, að það er stúlka, er ritar undir dul- nefninu ih. , meira lætur Ritn. ekki uppi, en það er gleðilegt, að slíkt afbragðs- skáld sé meðal okkar og vonandi lætur það heyra meira frá sér. Böðvar yrkir sálm um Skíðhýsið af geysilegri íþrótt, og hefur hann vaxið mjög í áliti hjá mér. Ég er sannfærð- ur um, að enginn okkar hinna léki þetta eftir honum. Ef Böðvar er ekki ^sjéní, þá veit ég ekki hver það er ! Það hefur færzt mjög I aukana á efri árum, að ég láti mig ýmis mál og málefni litlu eða engu skipta, leiði þau hjá mér. Eitt þeirra er skíðaskála- byggingin, sem hugsjónamaðurinn Guð- laugur T. Karlsson nefnir Menntaskála. Allur gangur þess máls hefur frá upp- hafi verið svo fáránlegur, að mig syfj- ar, er ég heyri á það minnzt. Einhverjar deilur hafa nú komið upp milli Inspectors og Skálanefndar. Ritar Tryggvi greinargerð nefndarinnar í því máli og ber Inspector þungum sök- um. Hann segir, að Þorsteinn hafi dregið til baka peninga þá, sem sam- kvæmt samþykkt skólafundar var heim- ilt að nota, og telur hann ekki hafa vald til að brjóta þannig í bág við gerð- ir fundarins. Greinarhöfundur getur þess ekki, að títtnefndur fundur hafi sett fjárveitingunni skilyrði, en svo mun hafa verið. Fer illa á því, að fella þetta niður úr röksemdafærslunni, enda Tryggvi með flekkaðar hendur. Hitt er annað mál, að Inspector hefði e. t. v. átt að sýna þessum vesalingum meira umburðarlyndi í raunum þeirra. Látum svo útrætt leiðinlegasta mál árs- ins. Ritdeilur hafa ekki birzt í SKÓLA- BLAÐINU lengi, enda þótt þær séu ákaflega vinsælar. X þessu blaði eru þær vaktar upp að nýju, og deila þar Böðvar Guðmundsson og Sverrir HÓIm- arsson, höfuðsnillingar. Báðir eru þeir miklir stílistar, en Böðvar þó öllu meiri, og eru greinarnar bráðskemmti- legar. Böðvar hefur ritdeiluna og ger- ir harða hríð að Sverri fyrir kveðjur þær, er hann sendi meðalmennskunni í fyrsta tbl. þ. árg. og álasar rauðhærða atómskáldinu fyrir hroka og dramb- semi og sitthvað fleira. Svargrein Sverris er snjöll, þó að að-

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.