Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.12.1960, Blaðsíða 24

Skólablaðið - 01.12.1960, Blaðsíða 24
- 88 - fyrir. - ”Jeg vil blive verdensberömt, ” svaraði ég. - "Man skal altid sætte m&let höjt, ” svaraði hann. - Og þú hefur náð takmarkinu? - Ég vil ekki dæma neitt um það sjalfur. En sjáum bara hvað sönggagn- rýnendur víðs vegar um Evropu hafa sagt um söng minn, eftir að ég var bú- inn að læra. Fyrst fór ég vitanlega um Norðurlöndin og hlaut mjög góðar undir- tektir. Síðan ferðaðist ég um alla Norðurálfu, hélt konserta og söng í radíó - meðal annars í Bé, bé , sé . f París söng ég 1925, og það var nú bara - barasta sko - heimssúkksess, segir Eggert og er mikið niðri fyrir. - Það var skrifað um mig báðum megin Atlantshafsins, mjög lofsamlega, og ég söng "Agnus Dei ” frá 14. öld. Það voru þrír íslendingar á konsertinum í París, þeir Guðmundur Kamban, Eggert Laxdal og Gunnlaugur Blöndal. Ég held, að Gunnlaugur Blöndal sé mesti inter- nasjónal-malari sem við höfum átt. Hann er frábærlega snjall. Hann hefur málað Jon Sigurðsson, forseta, og mig. - Hann Brynleifur heitinn Tobíasson segir í "Hver er maðurinn”, að þú. hafir kynnt ísland manna mest á erlendum vettvangi. - Já, segir hann það - já. Ég hafði þann hátt á, að kynna fsland fyrst í stað með söngnum, síðan fékk ég aðgang að stærstu blöðunum og skrifaði 'í þau grein- ar um land og þjóð. Ég skrifaði mikið í Svíþjóð og fékk mikil kompliment fyrir. Allir mikilsvirtustu blaðamennirnir sögðu: "Du skal skrive”. Og ég skrif- aði eina nóvellu - hún heitir Blanda. - Blanda ? - Já, sko - eftir ánni þarna íyrir norðan. - Já, auðvitað. - Ég leyfi mér að segja, að hún hafi líka verið súkksess. Mestu mál- snillingar á fslandi töldu hana stórmerka. Síðan hef ég lagt meiri áherzlu á rit- störf í landkynningarstarfseminni. Núna er ég með nýja bok í undirbúningi. Það er safn blaðaummæla og ritgerða, sem birzt hafa eftir mig í erlendum blöðum. - Voru ekki margir upprennandi listmann samtíma þér í Höfn ? ' - Jú, við vorum þarna Kiljan, Kjarval, Kamban, Einar Jonsson, Gunnar Gunnarsson, að ógleymdum Jóhanni Sig- MYNDIR f MYRKRI gerfimenn með glott í augum gapa úr tunglsins rosabaugum þrumandi raust sem rymji naut rennur í hugans segulskaut annarlegar tímans tungur teygjast inn í mitt sálarhungur með tómahljóð í týndum sögum nístandi kuldi voveiflegra vinda vafurlogar dauðans næturtinda ómar af dauðans dægurlögum steintröll að hálfu hjúpuð grænum mosa hálfkulnuð minning fornra ástarbrosa S. H. urjónssyni. Ég var á frumsýningu Fjalla-Eyvinds í Kaupmannahöfn. George Brandes var þar líka. Hann tók undir hendina á Jóhanni að sýningu lokinni og leiddi hann um leikhúsið. Leikritið vakti mikla athygli á öllum Norðurlönd- um og svo kvikmyndaði Sjöström það. Við Kiljan erum æskuvinir. Hann var hérna í heimsókn hjá mér í gærkvöldi. Þá sat hann þarna í stólnum, sem þú situr í núna. - Tekur Kiljan í nefið ? - Ég efast ekki um það. Hann er svo mikill sjentilmaður. Alveg fram í fingurgómana. Honum hefur aðeins ver- ið sýndur verðskuldaður sómi. Við eig- um engan annan slíkan fulltrúa. Hann einn getur borið skikkjuna. - Eggert, segðu mér eitt. Þú stóðst alltaf í fremstu vxglínu í sjálf- stæðisbaráttunni ? - Já, ég sýndi því máli alltaf mik- inn áhuga. Og vil að æskan viti það, að á fslandi voru til menn, meira að

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.