Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.12.1960, Side 31

Skólablaðið - 01.12.1960, Side 31
- 95 - lýsir hann Ijóslega og bregður upp svo lifandi myndum, að þær hljóta að hrífa hvern Ijóðelskan mann. næturnar voru hlýjar og rósamar eins og góðlyndar ömmur og yrðu dagarnir hver öðrum líkir komu uppstroknir sunnudagar aðvífandi í bláum sparifötum. eða þetta Ijóð, sem minnir á ferskeytlur Sigurðar Breiðfjörðs að myndvísi. Á' kvöldin þegar sólinni blæðir á eggjar fjallanna og dimmgrænn skugginn leggst til hvíldar við fætur bergsins og víkin bláa verður að rauðu víni, kemur lítil stulka ut og segir : hver vill eiga mig ? og : Á mjóum fótleggjum sínum koma mennirnir eftir hjarninu með fjöll á herðum sér. Þetta eru aðeins örfá dæmi um þær myndir, er S.H. G. dregur upp. Sumar eru hugljufar, aðrar kaldar og fullar bölsýni, en allar eru þær með skýrum dráttum og hverjum manni auðskildar. III. Ungur maður leggur land undir fót, kannar ókunna stigu. f fyrstu lætur hann heillast af tyllisýnum. En hann verður þess fljótlega var, að hann, skáld- ið unga, hefur verið herfilega blekktur og finnur þá bezt, að hollt er heima hvað. Hann minnist æsku sinnar í heimahögunum, þar sem húsin voru með grænu þaki og gráum strompi. Og hann minnist stúlknanna með rauðu svunturn- ar, því að það voru þær, sem hann elsk- aði. En hann man einnig eftir eirðar- leysi sínu, og skipinu, sem beið eftir því, að skáldið tæki sór far. Þá var azúrblátt haf við ströndina. Ég lét á hafið : grænar og ögrandi birtust þær hinar framandi strendur með blóm I hverjum glugga luku hinar ókunnu borgir fyrirheitsins upp glæstum hliðum sínum hversu vín borganna voru rauð og dætur borganna höfðu myrkur I hári og augu af logandi hrafntinnu en meðan þær syndguðu á strætunum og vínið flaut af skálum elskaði ég þig elskaði ég ykkur konurnar með rauðar svuntur konurnar með augun blá. Hið bláa haf var alltaf grátt login var fegurð borganna og húsin eru ekki lengur með grænu þaki það glamrar I sál heimsins: málmur. t faxi hinnar myrku nætur leita ég hvíldar friðleysi mínu ég sem elska þig og elska þig ekki ég sem hafði ætlað að safna brenni og tendra þér rauðan eld en nú er garðstígurinn þögull og runnarnir ellibleikir litlaust grasið bæra kaldir vindar að ströndinni fellur svart brim. Þetta finnst mér vera eitt fegursta Ijóðið í bókinni. Líkingamál þessa kvæð- is er stórkostlegt, myndirnar eru dregn- ar þannig upp, að þær verða ógleyman- legar. Um málarann Van Gogh kveður S. H. G. : Einförum lít ég til suðurs vin minn um glóandi starir halda í eld og sól. Snýst í tryllandi iðu kynngi, þjáning og gleði skapara eilífs lífs. Birtist á litanna hveli fagnandi stjarna sem leiftrar og rís yfir dag og nótt. Enda þótt bók þessi geymi jafn góð kvæði, bera þó nokkur af, t. d. Bifreiðin sem hemlar hjá rjóðrinu, og Ijóð það, er bókin ber nafn sitt af, Svartálfadans. Ég get því ekki stillt mig um að birta

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.