Morgunblaðið - 14.12.2009, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2009
Opið: má-fö. 12-18, Opið á laugard. til jóla frá 12-16
Dalvegi 16a,
Rauðu múrsteinshúsunum
Kóp. 201 - S: 517 7727
www.nora.is
Fyrir bústaðinn og heimilið
í jólaskapi
30%
afslátt
ur
30%
afslátt
ur
kr.
kg
1379
ÍM han
giframp
artur
úbeinað
ur
Kea han
giframp
artur
sagaðu
r
1198
kr.
kg
GJAFA
KORT
Frábær jólagjöf!
kr.
kg1989
Samban
ds hang
ilæri
úrbeina
ð
verð áð
ur 284
8
Kea ham
borgarh
ryggur1329
kr.
kg
verð áð
ur 1898
Pelsfóðurskápur
Pelsfóðursjakkar
Mjódd, sími 557 5900
Verið velkomnar
Skokkarnir
eru
komnir
RÚMUR helmingur aðalmanna í
stjórn Íþrótta- og tómstundaráðs
Reykjavíkur hefur mætt á a.m.k.
90% þeirra funda sem boðað var til í
stjórnartíð þeirra. Raunar telst
mætingin hjá aðalmönnum ráðsins
til stakrar fyrirmyndar, enda mætti
sá sem oftast missti af fundum engu
að síður á 69% fundanna.
Morgunblaðið hefur sl. daga birt
upplýsingar um mætingu aðalmanna
í hinum ýmsu ráðum og stjórnum
borgarinnar. Misjafnlega vel hefur
gengið að fá þessar tölur og hafa
t.a.m. ekki ennþá skilað sér upplýs-
ingar um Borgarráð, skipulagsráð,
sem og nothæfar tölur yfir mann-
réttindaráð og Orkuveitu Reykja-
víkur. Samskonar töflur yfir þessi
ráð og OR verða þó birt í blaðinu
berist tölurnar.
annaei@mbl.is, kjon@mbl.is
Rúmur
helmingur
með 90%
mætingu
Fundarseta í íþrótta- og tómstundaráði
Anna Sigríður Ólafsdóttir
Egill Örn Jóhannesson
Sóley Tómasdóttir
Björn Ingi Hrafnsson
Benedikt Geirsson
Valgerður Sveinsdóttir
Kjartan Magnússon
Sigrún Elsa Smáradóttir
Stefán Jóhann Stefánsson
Hermann Valson
Oddný Sturludóttir
Björn Gíslason
Marta Guðjónsdóttir
Þorleifur Gunnlaugsson
Sigfús Ægir Árnason
Bolli Thoroddsen
6 af 6
11 af 11
31 af 32
25 af 26
15 af 16
29 af 31
40 af 44
18 af 20
61 af 68
25 af 28
37 af 42
58 af 68
11 af 13
7 af 9
24 af 31
20 af 29
Fundir íþrótta- og tómstundaráðs á tímabilinu júní 2006 til desember 2009 voru 68 talsins
og skiptust á fjögur tímabil. Ekki hafa sömu aðalmenn setið í ráðinu allt kjörtímabilið og tekur
prósentureikningur mið af mætingu þeirra þann tíma sem þeir sátu í ráðInu.
Flokkur Fundarmæting Hlutfall
100%
100%
97%
96%
94%
94%
91%
90%
90%
89%
88%
85%
85%
78%
77%
69%
Greinin eftir Önnu
Stefánsdóttur
Grein sem var í blaðinu á fimmtudag
með yfirskriftinni Mansalsskýrsla
mikilvæg í baráttunni gegn kyn-
bundnu ofbeldi var eftir Önnu Stef-
ánsdóttur, formann RKÍ. Mynd af
Önnu fylgdi greininni en myndatext-
inn sagði hana heita Sólveigu Ólafs-
dóttur. Beðist er velvirðingar á mis-
tökunum.
Vaktakerfið sparar
70 milljónir
Breyting á vaktakerfi lögreglunnar í
Reykjavík skilar 70 milljónum en
ekki um 130-150 milljónum, eins og
sagði í frétt blaðsins á fimmtudag.
Breytt skipulag að öðru leyti er talið
skila um 70 milljónum til viðbótar.
Morgunblaðið biðst velvirðingar á
mistökunum.
LEIÐRÉTT
HÆTTA skapaðist í fjölbýlishúsi
við Fjarðarstræti á Ísafirði í fyrri-
nótt þegar eldur var lagður að
sorptunnu við húsið. Eldur læsti sig
í veggklæðningu. Lögreglan fékk
tilkynningu og tókst lögreglumönn-
um að slökkva eldinn, sem gaus upp
aftur, en slökkviliðið náði að
slökkva hann fljótlega. Fjórar íbúð-
ir eru í húsinu og voru íbúarnir
vaktir til öryggis en ekki þurfti þó
að rýma húsið.
Eldur í tunnu við
hús á Ísafirði
Í UNDIRBÚNINGI er að opna fiskmarkað í gömlu
verbúðunum við Suðurbugt í Reykjavík á vori kom-
anda. Málið hefur verið í skoðun á vettvangi Faxa-
flóahafna og á stjórnarfundi fyrir helgina var sam-
þykkt að þoka málinu lengra áleiðis.
Hugmyndin um opnun smásölumarkaðar með fisk
er, að sögn Júlíusar Vífils Ingvarssonar, formanns
stjórnar Faxaflóahafna, hluti af þeirri stefnu fyr-
irtækisins að opna fyrir margvíslega starfsemi og
fjölbreytilegt mannlíf við verbúðirnar.
Vilja að fleiri borði fisk
Sérfræðingar Matís hafa unnið skýrslu um málið.
Þar segir að fiskneysla almennings, ekki síst ungs
fólks, sé á undanhaldi og nauðsynlegt sé að bregðast
við því. „Nauðsynlegt er að hefja upp og skapa
sterka menningu og ímynd í kringum fiskneyslu,“
segja skýrsluhöfundar sem telja fiskmarkað grund-
völl fyrir breyttum viðhorfum.
Júlíus Vífill bendir á að fjöldi fólks á leið í hvala-
skoðun fari um hafnarsvæðið á hverju sumri. Fisk-
markaður geti þá rennt styrkari stoðum undir ferða-
þjónustu á svæðinu almennt þar sem margvíslegt
fleira matarkyns megi selja ef mál þróast svo.
sbs@mbl.is
Fiskur til sölu við höfnina
Faxaflóahafnir undirbúa
fiskmarkað við Suðurbugt
Morgunblaðið/RAX
Verbúðir Stefnt er að opnun fiskmarkaðar í Suðurbugt
við Reykjavíkurhöfn í vor en málið er í undirbúningi.
Fiskur og fleira matarkyns yrði í boði.
ALLT tiltækt slökkvilið var sent á
vettvang þegar upp kom eldur í bíl-
skúr við Hverafold í Reykjavík á tí-
unda tímanum í gærkvöldi. Tals-
verður eldur var í skúrnum þegar að
var komið og urðu miklar skemmdir
af völdum elds, sóts og vatns.
Læsti sig í þakskegg
Að sögn slökkviliðs mátti ekki
miklu muna að verr færi, en eldurinn
hafði læst sig í þakskegg nærliggj-
andi íbúðarhúss þegar að var komið.
Slökkvistarf gekk greiðlega. Tvennt
var flutt á slysadeild vegna brunans,
fólk sem hafði fengið minniháttar
brunasár auk þess sem grunur var
um reykeitrun. sbs@mbl.is
Eldur í bílskúr
í Hverafold