Morgunblaðið - 14.12.2009, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 14.12.2009, Qupperneq 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2009 Jólahappdrætti Krabbameinsfélagsins Dregið 24. desember 2009 163 skattfrjálsir vinningar að verðmæti 22.690.000 kr. Það er ýmsum brögðum beitt tilað koma Icesave-skuldaklaf- anum á íslensku þjóðina. Erlend ríki og ríkjasambönd hóta öllu illu, en í því er svo sem ekkert sem kem- ur á óvart. Óvenjulegra er þegar ís- lensk stjórnvöld leggjast á árar með hinum erlendu því að þá er fátt til varnar.     Þó eru enn til ýmsir sem reyna aðhalda uppi vörnum. Dæmi um það er undirskriftasöfnun sem Indefence-hópurinn hefur staðið fyrir á vefnum og hátt á fjórða tug þúsunda hafa skrifað undir.     Þá gerist það að gerð er tilraun tilað spilla fyrir söfnuninni með því að setja inn á listann rangar skráningar. Aðstandendur söfn- unarinnar hafa af þessum sökum þurft að eyða út töluverðu af slík- um skráningum og fram hefur komið að skemmdarverkin eru frá stjórnarráðinu, RÚV og Frétta- blaðinu.     Þeim sem fylgjast með því semfrá þessum aðilum kemur og hafa því séð hve vel þeir dansa í takt, kemur ef til vill ekki á óvart ef þeir standa að slíkri aðgerð.     Þær fátæklegu skýringar semfram hafa komið á þessu hátt- erni starfsmanna þessara aðila hafa verið alls ófullnægjandi.     Óvíst er hvort þessir aðilar hafabeinlínis tekið ákvörðun um að reyna að eyðileggja tilraun Inde- fence til að fá fram vilja lands- manna. Hitt er augljóst, að rík- isstjórnin, RÚV og Fréttablaðið skulda landsmönnum skýringar á skemmdarverkunum. Skemmdarverk stjórnarráðsins, RÚV og Fréttablaðsins? Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 9 alskýjað Lúxemborg -1 snjókoma Algarve 17 heiðskírt Bolungarvík 4 léttskýjað Brussel 2 léttskýjað Madríd 7 heiðskírt Akureyri 6 skýjað Dublin 6 skýjað Barcelona 8 skýjað Egilsstaðir 5 skýjað Glasgow -2 þoka Mallorca 9 skúrir Kirkjubæjarkl. 8 rigning London 6 skúrir Róm 9 skýjað Nuuk 7 heiðskírt París 2 skýjað Aþena 11 léttskýjað Þórshöfn 8 léttskýjað Amsterdam 2 léttskýjað Winnipeg -26 léttskýjað Ósló -3 heiðskírt Hamborg 0 léttskýjað Montreal -2 alskýjað Kaupmannahöfn 2 skýjað Berlín -2 skýjað New York 5 alskýjað Stokkhólmur 2 skýjað Vín -2 alskýjað Chicago 2 alskýjað Helsinki -1 snjókoma Moskva -5 þoka Orlando 26 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR 14. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4.50 3,7 11.06 0,9 17.06 3,4 23.15 0,8 11:15 15:31 ÍSAFJÖRÐUR 0.32 0,5 6.53 2,0 13.13 0,5 19.00 1,8 12:01 14:55 SIGLUFJÖRÐUR 2.36 0,3 8.46 1,1 15.00 0,1 21.36 1,0 11:45 14:37 DJÚPIVOGUR 1.56 2,0 8.15 0,5 14.07 1,6 20.09 0,4 10:54 14:51 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á þriðjudag og miðvikudag Fremur hæg vestlæg eða breytileg átt, skýjað með köfl- um. Hiti víða 3 til 8 stig, en í kringum frostmark í inn- sveitum. Á fimmtudag Vestlæg átt, skýjað en úrkomu- lítið V-til á landinu, en létt- skýjað eystra. Hiti breytist lítið. Á föstudag og laugardag Snýst í norðanátt með éljum NA-lands, en bjartviðri S- og V- lands. Kólnandi veður. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 3-8 m/s við suð- vesturströndina, annars hæg suðlæg eða breytileg átt. Þurrt að mestu sunnanlands. Víða bjartviðri fyrir norðan og aust- an. Hiti 2 til 10 stig. IÐNAÐARRÁÐHERRA hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um að hann fái heimild til að semja við Teha In- vestments S.a.r.l., Novator, Verne Holdings ehf. og Verne Real Estate ehf. um byggingu og rekstur gagna- vers í Reykjanesbæ. Miðað sé við að samningurinn gildi til tuttugu ára. Verne er að byggja upp gagna- verssvæði við Ásbrú í Reykjanesbæ en fyrirtækið keypti tvær stórar vörugeymslur af Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar. Gert er ráð fyrir allt að fjórum aðaltölvuverum og byggingu fyrir tæknirými. Nota á 80 til 140 MW raforku frá landsnet- inu til að knýja og kæla tölvubúnað. Gert er ráð fyrir að kostnaður við að ljúka við smíði allrar miðstöðv- arinnar, samkvæmt núverandi áætl- un, verði rúmar 470 milljónir evra, jafnvirði 87 milljarða króna. Þegar henni er lokið munu um það bil 100 manns vinna í gagnaverinu. Á áætluðum sjö ára bygging- artíma er gert ráð fyrir að 80–120 manns muni starfa þar í bygging- arvinnu að meðaltali, til viðbótar við starfslið gagnaversins. Verne hyggst ljúka fyrsta áfanga verkefn- isins á næsta ári. Auk þeirra grunn- kerfa, sem komið verður upp til að þjóna viðskiptavinum Verne mun fé- lagið reisa nýja spennistöð fyrir hönd Landsnets sem verður hluti af grunngerð gagnaverssvæðisins. sbs@mbl.is Ráðherra vill lög um gagnaverið í Ásbrú  Fyrsti áfangi í gagnið á næsta ári  Heildarkostnaður 87 milljarðar króna Morgunblaðið/Ómar Ásbrú Herstöðin öðlast nýjan svip. UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ hefur selt sendiherrabústaðinn í New York fyrir 4,45 milljónir dollara, jafnvirði 550 milljóna króna. Í stað- inn á að leigja sendiherrabústað í borginni og er gert ráð fyrir að kostnaður vegna þess verði 27 milljónir króna á næsta ári. Fram kemur í greinargerð meiri- hluta fjárlaganefndar með breyt- ingartillögum við fjárlagafrumvarp næsta árs að ráðuneytið telji réttast að leigja sendiherrabústað í New York frá næstu áramótum. Ráðu- neytið geri engu að síður ráð fyrir því að fest verði kaup á sendi- herrabústað í New York síðar. Fjárlaganefnd leggur einnig til að rekstrarframlag sendiráða lækki um 50 milljónir króna frá fjárlagafrumvarpinu. Þar hafi ver- ið búið að gera ráð fyrir tiltekinni hagræðingu í rekstri, sem ætlað var að skila 3% lækkun á rekstrar- kostnaði. Frekari ráðstafanir til að hagræða í verkefnum utanríkis- þjónustunnar hafi verið til athugunar og sé nú áformað að draga enn frekar úr rekstrarkostn- aði sendiráða. Sendiherrabústaðurinn í New York seldur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.