Morgunblaðið - 14.12.2009, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
SAMKVÆMT upplýsingum frá Sambandi íslenskra
sveitarfélaga má áætla að leikskólum landsins verði
gert að hagræða um einn til einn og hálfan milljarð
króna á næsta ári. Horft er til allra þátta í hagræðing-
unni og hverjum steini velt við.
Kostnaður sveitarfélaganna vegna leikskóla lands-
ins var tæplega 22,5 milljarðar króna 2008. Á árunum
2004-2008 jukust útgjöld sveitarfélaganna um rúma 6
milljarða eða um 46% en rekstrarkostnaðurinn (þ.e.
brúttóútgjöld) um rúma 4 milljarða eða um 23%,
miðað við verðlag ársins 2008. Á sama tíma drógust
greiðslur forráðamanna barnanna saman
um 25% eða um ríflega milljarð vegna
aukinna niðurgreiðslna sveitarfélaga.
Þar af um 700 milljónir króna eða um
43% í Reykjavík, en síðan haustið 2006
hafa forráðamenn barna í borginni
einungis greitt fyrir eitt barn þó fleiri
hafi fengið vistun. Þjónustutekjur og
aðrar tekjur námu rúmum 3,2 millj-
örðum króna 2008. Þjónustutekjurnar
námu um 15% af rekstrarkostnaði leik-
skóla 2008 en um 28% 2004. Rekstr-
arútgjöld allra sveitarfélaga vegna leik-
skóla námu um 14% af skatttekjum 2008.
Tæplega 20 þúsund börn
Sveitarfélög bera ábyrgð á leik-
skólum. 63 þeirra eða 81% starf-
rækja leikskóla. 275 leikskólar
voru á landinu 2008 og hafði
þeim fjölgað um 26 frá 1998.
Samkvæmt Skólaskýrslu
2009, sem Samband íslenskra
sveitarfélaga gefur út, fjölgaði
leikskólabörnum um 3.181
barn eða um 21% frá 1998 til
2008, fóru úr 15.105 í 18.286.
Heilsdagsígildum fjölgaði
um 5.983 eða 51%. Dval-
artími í 4 klst. jafngildir
hálfu heilsdagsígildi en 7
klst. viðvera eða lengri viðvera
reiknast sem eitt heilsdagsígildi.
gilda þýðir þörf fyrir fleiri starfsmenn, því hver starfs-
maður sinnir færri börnum eftir því sem þau eru
yngri.
69% barna á aldrinum 1-5 ára sóttu leikskóla 1998
en 82% árið 2008. 25% leikskólabarna dvöldu í sjö -
átta tíma á dag á leikskóla 1998 en rúm 50% 2008. 18%
barna dvöldu í 9 tíma eða lengur 1998 en 38% 2008.
Með öðrum orðum hefur viðveran lengst töluvert á
undanförnum árum, en í fámennari sveitarfélögum er
viðveran styttri en í þeim fjölmennari. 8
Stöðugildi í leikskóla tvöfölduðust á árunum 1994-
2008, fóru úr 2.373 í 4.761, en hafa ber í huga fjölgun
leikskóla um 26 frá 1998 og fjölgun leikskólabarna og
heilsdagsígilda. Stöðugildum fjölgaði um 826 eða 21%
frá 2005-2008. Stöðugildum leik-
skólakennara fjölgaði um 730
eða 95% á tímabilinu 1994-
2008. Hlutfall ófaglærðra
starfsmanna í leik-
skólum var 55% 2008,
en hlutfall starfsmanna
með leikskólakenn-
aramenntun var 34%.
4% þeirra sem störfuðu
við uppeldis- og mennt-
unarstörf 2007 voru karl-
menn. Um 62% starfsmanna
voru 20-39 ára 1998 en rúm-
lega 52% 2008.
Í skólaskýrslu sambandsins má enn-
fremur sjá yfirlit yfir rekstrarkostnað á
hvert heilsdagsígildi. Upplýsingar eru
um meðalrekstrarkostnað á hvert
heilsdagsígildi eftir landshlutum
en einnig lægsta og hæsta
rekstrarkostnað innan hvers
landshluta.
Meðal rekstrarkostnaður á
hvert heilsdagsígildi er 1.312
þúsund krónur. Kostnaður-
inn er lægstur í Reykjavík,
1.201 þúsund, en hæstur á
Austurlandi, 2.686 þúsund,
en þar er meðalrekstr-
arkostnaðurinn 1.510
þúsund krónur. 38 sveit-
arfélög verja milli 1.300
og 1.700 þúsund kr. á
hvert heilsdagsígildi.
Breytingar
Svandís Ingi-
mundardóttir,
skólamála-
fulltrúi hjá
Sambandi ís-
lenskra
sveitarfé-
laga, segir
ljóst að
sveitarfélög
hafi þegar
gripið til
margra hagræð-
ingaraðgerða og
fyrir liggi að víða þurfi
að draga úr þjónustu enda hafi þjón-
ustustigið hækkað umtalsvert í mörgum
sveitarfélögum á undanförnum árum. Til
dæmis megi ætla að aldurstakmörk við
inntöku á leikskóla verði hækkuð. Opn-
unartími hafi verið styttur í sumum sveit-
arfélögum. Í stað þess að opna klukkan sjö
eða hálf átta á morgana sé sums staðar opnað
15-30 mínútum síðar og þar sem opið hafi ver-
ið til fimm eða hálf sex verði hugsanlega að
sækja börnin 30 til 45 mínútum fyrr. Sum-
arlokun verði jafnvel lengd og svo megi
áfram telja en öll skerðingin geti einnig haft
áhrif á laun fólks.
4.761
stöðugildi voru í leik-
skólum landsins
2008, en þau
voru 2.373
1998
LEIKSKÓLASVIÐI Reykjavíkurborgar er gert að hagræða um 397
milljónir króna á líðandi ári til næsta árs, samkvæmt frumvarpi að
fjárhagsáætlun borgarinnar 2010.
Velta leikskólasviðs á þessu ári er um 10 milljarðar króna eða um
44,5% af veltu allra leikskóla landsins. Borgin starfrækir 78 leikskóla og
styrkir 18 sjálfstætt starfandi leikskóla. Í október sl. voru 6.648 börn í leik-
skólum í Reykjavík og áætlað er að þau verði 6.728 á næsta ári.
Helstu hagræðingaraðgerðir á sviðinu felast í samrekstri, eftirliti með
innkaupum og fyrirmyndarrekstri. Fyrirkomulag innritunar nýrra leik-
skólabarna verður tengt sumarfríi starfsmanna, niðurgreiðslur til sjálf-
stætt starfandi leikskóla lækka, þjónustutrygging verður lækkuð í áföng-
um, hagrætt verður í yfirstjórn og að öllum jafnaði ekki ráðið í stöður sem
losna.
Taka á til í ræstingu leikskóla borgarinnar og er gert ráð fyrir að við
það sparist um 80 milljónir króna, en stefnt er að því að sparnaðurinn
komi ekki niður á þjónustu við börnin.
Barngildi reiknast út frá aldri
barns á leikskóla. Eins árs barn reiknast sem
tvö barngildi og fimm ára gamalt barn sem
eitt barngildi. Barngildi voru 14.179 1998 en
22.135 2008 sem er 56% fjölgun.
Aukin þjónusta
Börnum hefur fjölgað og þjónustan hefur líka
verið í boði fyrir yngri börn en áður. Fjölgun barn-
Hverjum steini velt við
Kostnaður sveitarfélaganna vegna leikskóla
landsins var tæplega 22,5 milljarðar króna árið 2008
Um 70% sveitarfélaga hafa tekið þá ákvörðun að
draga úr búnaðar-, vöru- og þjónustukaupum leikskóla
Hagræðing er tískuorðið um þessar mundir. Alls staðar á að hagræða, líka í skólakerfinu. Áætlað er að
leikskólum landsins verði gert að hagræða um einn til einn og hálfan milljarð króna á næsta ári. Grunnskólarnir
þurfa að draga saman seglin og spara þrjá til þrjá og hálfan milljarð. Gert er ráð fyrir að ríkisframlag til
framhaldsskóla lækki um 848,3 milljónir og fjárveiting til háskóla og rannsókna lækki um 1.343 milljónir.
Í dag og næstu daga skoðar Morgunblaðið fyrirhugaðar breytingar og hugsanleg áhrif þeirra.
Helstu hagræðingaraðgerðir sveitarfélaga
Dregið úr búnaðarkaupum
74,0% 16,0% 10,0% 0,0%
Dregið úr yfirvinnu
69,8% 18,9% 7,5% 3,8%
Dregið úr vöru- og þjónustukaupum
66,7% 19,6% 13,7% 0,0%
Hagrætt í fyrirkomulagi starfsm.funda
64,7% 19,6% 13,7% 2,0%
Dregið úr kostn. við endur- og símennt.
47,1% 23,5% 29,4% 0,0%
Hagræðing í mötun./fæðiskostnaður
44,2% 28,8% 25,0% 1,9%
Dregið úr framkvæmdum
44,0% 20,0% 20,0% 16,0%
Dregið úr aksturskostnaði
43,1% 17,6% 23,5% 15,7%
Dregið úr afl. vegna veik./fjarveru stm.
42,0% 22,0% 32,0% 4,0%
Daglegur opnunartími styttur
30,0% 18,0% 50,0% 2,0%
Dregið úr viðhaldi
29,2% 22,9% 41,7% 6,3%
Leikskólagjöld hækkuð
28,6% 36,7% 30,6% 4,1%
Sumarlokun lengd
26,0% 22,0% 48,0% 4,0%
Undirbúningstími færður að lágmarki
24,0% 22,0% 32,0% 22,0%
Starfsmönnum fækkað
24,0% 16,0% 52,0% 8,0%
Stjórnunarhlutfall lækkað
18,9% 32,1% 49,1% 0,0%
Hagrætt í skipulagi sérkennslu
16,3% 26,5% 49,0% 8,2%
Börnum fjölgað á hvern starfsmann
12,2% 22,4% 55,1% 10,2%
Leikskólarýmum fækkað
6,1% 6,1% 77,6% 10,2%
Launalausum frídögum fjölgað
6,1% 22,4% 61,2% 10,2%
Aldursviðmið við inntöku hækkuð
0,0% 22,4% 69,4% 8,2%
Dregið úr sérfræðiþjónustu
0,0% 20,0% 70,0% 10,0%
Áhersla á aukið starf sjálfboðaliða
0,0% 18,0% 58,0% 24,0%
Ákveðið Til umræðu Ekki til umræðu Á ekki við
í leikskólum
Hagræða um 397
milljónir í Reykjavík
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Eftirlit Leikskólabörn skemmta sér á slökkvistöðinni á Akureyri.
18.286
börn voru í leikskóla
2008 og hafði
fjölgað um 21%
frá 1998.
1.312
þúsund krónur er
meðalrekstr-
arkostnaður á
hvert heils-
dagsígildi
Skólakerfi á krossgötum