Morgunblaðið - 14.12.2009, Side 22

Morgunblaðið - 14.12.2009, Side 22
22 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2009 ENN eina ferðina ætla hvalfrið- unarsinnar að beina spjótum sínum að Ís- landi vegna veiða á fáeinum hvölum. Þetta fólk sem stend- ur með mótmæla- spjöld fyrir utan ís- lensk sendiráð og hvetur til þess að Ís- lendingar verði beittir viðskiptaþvingunum hefur fæst hugmynd um hverju það er að mótmæla. Það er matað á upplýsingum frá stofnunum eins og IFAW (Alþjóðadýravernd- unarsamtökin), Greenpeace o.fl. sem eru á mála hjá fólki sem hef- ur tekið ástfóstri við hvali og telur að þeir eigi að vera undanþegnir veiðum frekar en önnur dýr. Þetta fólk gleymir því einnig að allt sem lifir á jörðinni lifir á því að drepa annað líf og éta það sér til við- urværis. Ef taka á eina tegund úr þessari hringrás raskast jafn- vægið. Þeir fara með ósannindi þegar þeir segja að hvalveiðar okkar séu ólöglegar og að við veiðum tegundir sem eru í útrým- ingarhættu. Íslendingar hafa aldrei stundað hvalveiðar að því marki að tilveru einhverrar tegundar hafi verið stefnt í hættu, og hvalveiðar okkar eru fyllilega löglegar. Við stundum ekki veiðar á tegundum sem eru í útrýmingarhættu. Þeir fara einnig villir vega þegar því er haldið fram að hvalir lifi eingöngu á kröbbum og fiski sem maðurinn nýti ekki. Sannleikurinn er sá að þeir lifa á sömu fæðu og flestir fiskar auk þess sem þeir lifa á öllum tegundum fisks, einnig þeim sem við veiðum helst. Auk þess lifa sumar hvalateg- undir á öðrum hvölum og selum eins og t.d. háhyrningar (Keiko) sem á ensku heita Killer Whales eða drápshvalir á íslensku, enda engin gæðablóð og leika sér að selkópum áður en þeir éta þá eins og kettir að músum. Hinir fá- fróðu hræsnarar halda því fram að dráp á hvölum sé ómannúðlegt og að dauðastríð þeirra sé langt. Í Bandaríkjunum eru veiðar á villtum hestum og í Ástralíu á villtum úlföldum stundaðar úr þyrlum þar sem dýrin eru skotin á færi. Hvað haldið þið að hestur eða úlfaldi sem hefur fengið skot í hrygginn og lamast sé lengi að heyja sitt dauðastríð? Flestar tegundir stórhvala eru í sögulegu lágmarki segja þeir. Það kann satt að vera. En hvers vegna? Vegna þess að þær þjóðir sem nú berjast hatrammlegast gegn veiðunum stunduðu fyrr á öldum taumlausar veiðar á þess- um dýrum og þá sérstaklega Bretar og Bandaríkjamenn. Við eigum enga sök á því og veiðar á stórhvölum af hálfu Íslendinga hófust ekki fyrr en eftir seinni heimsstyrjöld. Þessir fávísu mót- mælendur ættu, frekar en að mótmæla hvalveiðum Íslendinga sem ómannúðlegum, að kynna sér hvernig farið er með húsdýr (slát- urdýr) í þeirra eigin heimahögum. Á verksmiðjubúgörðum í þessum löndum er húsdýrum misþyrmt í slíkum mæli að varla væri hægt að leggja kjöt þess sér til matar ef ekki væri átt við það með ýms- um efnafræðilegum aðferðum. Dýrin eru lokuð inni á þröngum básum eða í búrum allt sitt líf og þjást mikið af þessari meðferð. Bretar stunda ómannúðlegar veiðar á refum sér til skemmt- unar þar sem hundahópar eru látnir elta dýrin þangað til þau eru komin að niðurlotum svo að prúðbúnir veiðimenn geti skotið þau á færi þar sem þau liggja ör- magna. Í Frakklandi er fóðri neytt ofan í gæsir þar til þær standa á gati, til þess að lifrin verði stærri við slátrun. Þetta fólk, IAFAW og leiguliðar þeirra ættu að beita sér fyrir betri með- ferð á þessum dýrum áður en þeir ráðast á Íslendinga vegna veiða á fáeinum hvölum. Og hvers vegna ráðast á Íslendinga en ekki Norð- menn, Japani og Rússa sem veiða hvali í þúsundatali? Jú, það liggur í augum uppi. Það er auðvitað þægilegast að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur. Þessar þjóðir eru marg- falt stærri en við og láta sér fátt um finnast við þessi mótmæli. IA- FAW hefur gefist upp á að reyna að herja á þær. Þær hafa einnig nægt fé til þess að bera á mót- mælendur svo þeir láti þær í friði. Og hvað með frumbyggjaveiðar BNA (Bandaríki Norður- Ameríku)? Bandaríkjamenn hafa stundað hvalveiðar árum saman í skjóli þessara heimilda í eigin lög- sögu, en beita sér gegn slíkum veiðum Grænlendinga. Og hverjir skyldu svo vera frumbyggjar Ís- lands? Vitið þið það kæru les- endur? Auk þess drepa túnfisk- veiðimenn BNA þúsundir höfrunga árlega sem drukkna þegar þeir festast í netum þeirra. Huggulegt eða hvað? Hundruð þúsunda ferkílómetra af ak- urlendi þar sem stundaður er verksmiðjubúskapur í stórum stíl svo sem í BNA og nú í vaxandi mæli í öðrum löndum eru að verða ónýt vegna ofnotkunar og óhóflegrar notkunar tilbúins áburðar. Þar eru ræktað erfða- fræðilega breyttar jurtir sem not- aðar eru sem fóður fyrir slát- urdýr. Eiturefnum er dreift yfir akra í slíkum mæli að afurðirnar eru orðnar hættulegar heilsu manna. Væri ekki nær fyrir IA- FAW að beita sér gegn slíkum búskaparháttum og illri meðferð dýra frekar en að beita sér gegn smáríki eins og Íslandi vegna veiða á hvölum? Auk þess er hvalkjöt ómengað og hollt og ef stundaðar væru skipulegar hval- veiðar undir alþjóðlegu eftirliti yrði það góð búbót í baráttunni við hungur í heimi þar sem land sem hægt er að nýta til ræktunar fer minnkandi og hungur fer vax- andi. Hvalfriðunarsinnar! Hættið þessari vitleysu og snúið ykkur að öðru sem meira máli skiptir. Hræsni hvalfriðunarsinna Eftir Hermann Þórðarson » Þeir fara með ósann- indi þegar þeir segja að hvalveiðar okkar séu ólöglegar og að við veið- um tegundir sem eru í útrýmingarhættu. Hermann J.E. Þórðarson Höfundur er fyrrverandi flugumferðarstjóri. FJÓRÐUNGS- ÞING Austfirðinga ályktaði fyrir um 60 árum að Íslandi skyldi skipt niður í sex fylki. Austur- landsfjórðungur átti að vera eitt fylki með fylkisstjóra. Fjórð- ungsþingið var stofn- að á Seyðisfirði í ágúst 1943 og er það í fyrsta skipti sem efnt er til formlegs svæðisbundins sam- starfs sýslunefnda og sveitarfélaga á Íslandi. Tilgangurinn var að vinna að auknu samstarfi um sam- eiginleg hagsmuna og menningar- mál fjórðungsins og stuðla að framgangi slíkra mála. Einnig var það skýrt markmið þingsins að vinna gegn fólksfækkun á Austur- landi og hinu gríðarlega sterka Reykjavíkurvaldi. Til að breyta þeirri byggðaþróun sem hafði ver- ið einkennandi var nauðsynlegt að mati Fjórðungsþingsins að breyta stjórnkerfinu, draga úr Reykjavík- urvaldinu og efla héraðavald. Unn- ið var í samvinnu við Fjórðungs- þing Norðlendinga 1946 að mótun tillagna um breytta stjórnskipun sem fólu í sér nýtt stjórnkerfi með stórauknu valdi héraða eða svæða. Tillögurnar gerðu ráð fyrir að landinu yrði skipt í sex fylki og yrði hvert fylki stjórnafarslega eining með allvíðtæku starfssviði og valdi í ýmsum málum. Gert var ráð fyrir að halda fylkisþing árlega og fulltrúar til setu á því kjörnir í einmenningskjördæmum. Fylk- isstjóri skyldi einnig kjörinn af kjósendum í viðkomandi fylki. Al- þingi skyldi starfa í tveimur deild- um og kjósa átti fulltrúa í efri deild þingsins á fylkisþinginu. Vald forseta lýðveldisins skyldi aukið og átti það að vera í hans verkahring að mynda ríkisstjórn. Tillögurnar um hið nýja stjórnkerfi vöktu mikla athygli og nutu stuðnings margra sveitarstjórna og sýslu- nefndarmanna um allt land. Efnt var til skoðanakönnunar á Austur- landi um tillögurnar 1953 og reyndust niðurstöður jákvæðar. Flestir alþingismenn, ráðherrar og embættismenn ríkisvaldsins tóku hinsvegar afstöðu gegn tillögunum eða sýndu þeim algjört tómlæti. Þar með fjaraði umræðan hægt og bítandi út á árunum 1953-54 og um leið starfsemi frumherjanna, Fjórð- ungsþings Austfirð- inga. (heimild Smári Geirsson skýrsla starfshóps 17. sept. 2009 „Framtíð- arskipulag samstarfs sveitarfélag í SSA“.) Hver er staðan í dag? Sveitarfélög á Austurlandi voru flest 34 árið 1950, í dag eru þau 9. Á tæpum 60 árum hefur þeim því fækkað um 25. Árið 1950 náði fjöldi sveitarfélaga í landinu há- marki og voru þau þá alls 229, í dag eru þau alls 77 og hefur þá fækkað um 152. Íbúafjöldi á starfssvæði SSA í 8 sveit- arfélögum eru alls um 10.700. Tvö sveitarfélög eru hlið við hlið á Mið-Austurlandi, langfjölmennust með um 80% íbúafjölda landshlut- ans, Fjarðabyggð með um 4.700 íbúa og Fljótsdalshérað 3.700 íbúa. Önnur sveitarfélög 6 að tölu með um 20% íbúafjöldans kúra í jaðri þeirra. Vopnafjörður og Seyð- isfjörður með um 700 íbúa hvort, Djúpivogur með um 450 íbúa og þau minnstu Breiðdalshreppur 190, Fljótsdalshreppur 140 og Borgarfjörður 140 íbúa. Minni sveitarfélögin sex þurfa í æ ríkari mæli að sækja þjónustu til þeirra stærri, m.a. til að geta staðið und- ir skyldubundnum verkefnum við íbúa sína sem gera kröfur um jafnrétti, m.a. til þjónustu. Ný velferðarverkefni kalla á öflugri sveitarfélög Framundan er flutningur á þjónustu við fatlaða, frá ríki til sveitarfélaga, stórt og mikið verk- efni sem kallar á öflugt bakland þjónustunnar. Undirbúningsvinna er hafin við að færa alla nærþjón- ustu við aldraða frá ríki til sveit- arfélaga 2014. Í minni sveit- arfélögunum er fjöldi aldraðra af heildaríbúafjölda umtalsvert yfir landsmeðaltali og fer þeim ört fjölgandi. Það er því ekki spurn- ing hvort heldur hvenær umhverf- ið íbúarnir og löggjafinn kalla á enn frekari eflingu sveitarstjórn- arstigsins. Þá eigum við ekki leng- ur val þar um. Sá tími er ekki langt undan og því er skyn- samlegt að Austfirðingar taki nú þegar frumkvæðið í þeirri vinnu, móti sjálfir í samstarfi við rík- isvaldið verklagið á leiðinni að lokamarkmiðinu sem er öflugt Austurland í einu sveitarfélagi. Það væri í anda frumherjanna okkar vösku og framsýnu sem störfuðu á Fjórðungsþingi Aust- firðinga um miðja síðustu öld. Sveitarstjórnarmenn á Austurlandi svara kalli 43. aðalfundur SSA, haldinn á Seyðisfirði 25.-26. september 2009, samþykkir að fela stjórn SSA að skipa starfshóp sem hafi það meg- inverkefni að fjalla um hugsanlega sameiningu sveitarfélaganna á starfssvæði SSA í eitt sveitarfé- lag. Hópnum er falið eftirfarandi: * að gera tillögur að stjórnkerfi nýs sameinaðs sveitarfélaga * að leita eftir samvinnu við ráðuneyti samgöngu- og sveitarstjórnarmála um mögulega sameiningu * að kanna vilja ríkisvaldsins til sam- eiginlegrar stefnumörkunar um opinberar framkvæmdir og verka- skiptingu slíks sveitarfélags og ríkisvaldsins * að fjalla um þau áhrif sem tilkoma hins nýja sveit- arfélags hefði í för með sér fyrir austfirskt samfélag með sérstakri áherslu á þau tækifæri sem sköp- uðust. Hér er um að ræða ótví- rætt tímamótaverkefni, sem ekki á sér hliðstæðu á Íslandi. Því er mikilvægt að allir sem að því koma standi að því af metnaði og með vönduðum hætti. Austurland eitt sveitarfélag Eftir Þorvald Jóhannsson » Sveitarfélög á Aust- urlandi voru flest 34 árið 1950 í dag eru þau 9. Á tæpum 60 árum hefur þeim því fækkað um 25. Þorvaldur Jóhannsson Höfundur er framkvæmdastjóri SSA. MÓTUN aðalskipu- lags Reykjavíkur frá 2010-2030 með fram- tíðarsýn allt til ársins 2050 stendur nú yfir og nýlokið er fundum með íbúum í öllum tíu hverfum borgarinnar. Fundirnir voru í formi opinna húsa þar sem íbúum gafst tækifæri til að koma sínum hug- myndum á framfæri í vinnu- og um- ræðuhópum. Afraksturinn er yfir 1.500 áhugaverðar tillögur um það sem betur má fara í skipulagi borg- arinnar. Vil ég, bæði sem formaður skipulagsráðs og þverpólitísks stýri- hóps meiri- og minnihluta borg- arstjórnar um endurskoðun að- alskipulags, þakka þeim hundruðum borgarbúa sem gáfu sér tíma til að taka þátt í þessum opnu húsum – og hjálpa okkur þannig að ná því mark- miði að færa aðalskipulagið nær borgarbúum og íbúum hverfanna. Viljum skapa sátt og samstöðu Aðalskipulag Reykjavíkur er einskonar framtíðarsýn íbúa borgarinnar. Það fjallar um lífsgæði íbúanna í víðum skilningi og tekur til allra þátta mannlífsins næstu tvo áratugina. Það er trú okkar að gott samráð við íbúa og hagsmunaaðila áður en mótun tillagna að aðalskipu- laginu fer fram, sé árangursríkari leið til að skapa sátt og samstöðu um framtíðarsýnina, en þegar eingöngu er stillt upp fullmótuðum tillögum sem íbúarnir fá svo að taka afstöðu til. Nákvæmlega þetta var tilgangur opnu húsanna. Við vorum ekki að segja þeim sem mættu hvað við vild- um eða setja fram ákveðnar hug- myndir um nýtt aðalskipulag. Við komum til að hlusta á hvað íbúarnir hefðu að segja. Allar hugmynd- irnar sem þarna komu fram verða nú flokkaðar eftir málaflokkum og gerðar aðgengilegar á verkefnavef að- alskipulagsins; www.adalskipulag.is. Jafnframt verða þær rýndar af sérfræðingum borgarinnar og metið hvort þær verði hluti nýs aðalskipulags, eigi frekar heima í deiliskipulagi einstakra hverfa eða verði vísað til framkvæmdasviðs eða borgarráðs sem framkvæmdaatriði. Áhersla á fjölskylduna og nærumhverfið Þó enn sé mikil vinna eftir við úr- vinnslu og flokkun allra þessara hug- mynda frá íbúum borgarinnar er ljóst að þær efnahagslegu hremm- ingar sem þjóðin gengur nú í gegnum setja mark sitt á viðhorf fólks. Það leggur meiri áherslu á fjölskylduna og nærumhverfið; á hverfið sitt og þjónustuna þar frekar en að vera hluti af stærri einingu, stórborg. Allir sem áhuga hafa geta kynnt sér þessar hugmyndir betur á aðal- skipulagsvefnum og þar er líka hægt að koma á framfæri frekari ábend- ingum og hugmyndum vegna að- alskipulagsvinnunnar. Þetta er það púsluspil sem á endanum leggur grunninn að nýju aðalskipulagi Reykjavíkur. Hvet ég alla borgarbúa sem af einhverjum ástæðum áttu ekki heimangengt þegar opna húsið var í hverfinu þeirra til að nýta sér aðalskipulagsvefinn og koma sínum hugmyndum og ábendingum á fram- færi við okkur. Það er núna sem íbúar Reykjavík- ur hafa tækifæri til að móta framtíð- ina! Takk borgarbúar Eftir Julíus Vífil Ingvarsson Julíus Vífill Ingvarsson » Aðalskipulag Reykjavíkur er eins- konar framtíðarsýn íbúa borgarinnar. Höfundur er formaður skipulagsráðs og stýrihóps um endurskoðun aðal- skipulags Reykjavíkur Stórfréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.