Morgunblaðið - 14.12.2009, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 14.12.2009, Qupperneq 30
30 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2009 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÖLL JARÐARBERIN SEM ÉG KEYPTI ERU HORFIN SKRÍTIÐ AÐ KAKAN SEM ÉG ÆTLAÐI AÐ HAFA MEÐ ÞEIM SÉ ENNÞÁ ÞARNA HVERNIG Á ÉG AÐ GETA ÆFT EF ÞÚ ERT HÉRNA? MÉR ÞYKIR ÞAÐ LEITT... ÉG BIÐST AFSÖKUNAR... ÉG ÆTLA AÐ LEYFA ÞÉR AÐ VERA Í FRIÐI... ÉG KANNAST VIÐ ÞETTA VANDAMÁL... ÞÚ GETUR EKKI EINBEITT ÞÉR FYRIR FRAMAN SÆTA STELPU KALLAÐIR ÞÚ Á MIG? JÁ, ÞESSI RAKI KASTALAVEGGUR HEFUR GERT ÞAÐ AÐ VERKUM AÐ MÉR ER ORÐIÐ KALT Á BAKINU ÞÁ HEFURÞETTA VANDAMÁL VERIÐ LEYST HVERNIG VAR FERÐIN TIL DÝRALÆKNISINS? HÚN VAR BARA FÍN HANN SAGÐI AÐ ÉG HEFÐI EIGNAST NÝJA VINI HANN SAGÐI AÐ ÞÚ VÆRIR MEÐ ORMA ÞÚ ERT SVO NEIKVÆÐ SJÁÐU, LALLI! HÉRNA ER HEIMASÍÐA SEM HJÁLPAR PÖRUM AÐ VINGAST VIÐ ÖNNUR PÖR ÉG VEIT EKKI, ADDA ÞAÐ ER SVO MIKIÐ AÐ SKRÍTNU LIÐI Á NETINU ÞAÐ ER SKRÍTIÐ FÓLK ALLS STAÐAR MÉR FINNST ÞÆGILEGRA AÐ HITTA FÓLK SEM ÉG ÞEKKI EKKI SKRÍTIÐ AÐ VIÐ EIGNUMST ALDREI NÝJA VINI ÞAÐ ER ALLT Í LAGI MEÐ MIG EN HANN SLAPP MEÐ SKARTGRIPINA MÉR TÓKST SAMT AÐ NÁ NOKKRUM MYNDUM GOTT AÐ ÞÚ ERT HEILL Á HÚFI PETER! ÉG HEYRÐI AÐ ÞÚ HEFÐIR SLEGIST VIÐ VULTURE! ÉG HAFÐI ÁHYGGJUR Happdrætti HÍ MÉR finnst þessi hái vinningur hjá Happ- drætti Háskóla Ís- lands vera svívirðing. Það væri miklu nær að skipta honum niður svo fleiri dyggir miða- eigendur fengju að njóta hans. Fyrrverandi við- skiptavinur HHÍ. Lygar og ofbeldi ÞAÐ er ákaflega erfitt fyrir hinn almenna borgara að átta sig á sannleikanum þessa daga. Einn segir þetta og annar segir hitt, sem er í svo hrikalegri mótsögn hvort við annað, að það gengur ekki upp í sama veruleika. Væri ekki ráð að tengja lyga- mæli við alþingismennina svo að hægt væri að skilja hafrana frá sauðunum, þ.e. þá sem segðu satt eða vissu ekki betur, frá hinum, sem segðu ósatt af yfirlögðu ráði. Þetta þyrfti ekki að kosta nema svo sem 10 hjúkrunarrými, fyrir fólk, sem hvort sem væri er dauð- ans matur. Það eru til fleiri menn, sem vita hvað þeir gjöra, t.d. þeir sem slasa lögreglumenn að störfum til þess að svala einhverri ofbeldisfíkn hjá sjálfum sér. Ég dáist að mönnum, sem slógu skjaldborg um lögregl- una til að hindra slíka menn í að svala fýsnum sínum. Á sama hátt fyrirlít ég þá menn, sem af eig- ingjörnum hvötum gáfu þessum ofbeld- isseggjum tækifærið, án þess að gera nokk- uð til að ekki kæmi til slíks ofbeldis. Þórhallur Hróðmarsson. Snobbræfilsháttur ÉG las Bakþanka Páls B. Baldvinssonar í Fréttablaðinu 8. des- ember síðastliðinn. Þar er hann að rakka niður Egilshöll og segir að einhver gátt þar sé eins og íbúðar- inngangur í Hólunum. Þetta er frá- munalega heimskuleg athugasemd frá manni sem gefur sig út sem viskupáfa. Ég hef búið í Hólunum í 25 ár og hvergi liðið betur og íbúð- arinngangar hér eru ekkert öðru- vísi eða verri en annars staðar, síð- ur en svo. Hvort sem Páll býr við glæsilegan íbúðarinngang eða ekki, eða í hverfi sem hann heldur að sé eitthvað fínna en Hólahverfi, sem er gott, gróið og rólegt, þá er þetta snobbræfilsháttur. Og ég mun líta á allt frá Páli með öðru hugarfari héðan í frá. Ein úr Hólunum. Ást er… … ólíkindatól sem getur komið oft niður á sama stað. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnustofa er opin frá kl. 9-16.30, útskurður kl. 13, félagsvist kl. 13.30. Árskógar 4 | Bað kl. 8-15-16, handa- vinna og smíði/útskurður kl. 9-16.30, félagsvist kl. 13.30, myndlist kl. 16. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa- vinna, kaffi/dagblöð, hádegisverður, leikfimi með Sólveig kl. 13. Dalbraut 18-20 | Myndlist og postulín kl. 9-16, leikfimi kl. 10, brids kl. 13. Dalbraut 27 | Opin handavinnustofa kl. 8-16, bænastund og umræða kl. 9.30, leikfimi kl. 11 og upplestur kl. 14. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids og kaffitár með ívafi kl. 13, línudans- kennsla kl. 17.30 og samkvæmisdans kl. 18.30, Sigvaldi kennir. Blásarasveit FEB æfing kl. 19.30. Félagsheimilið Gjábakki | Bossía kl. 9.30, gler- og postulínsmálun kl. 9.30 og 13, leiðbeinandi í handavinnu við til hádegis, lomber kl. 13, canasta kl. 13.15, kóræfing kl. 17 og skapandi skrif kl. 20. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postu- línsmálun kl. 9, ganga kl. 10, handa- vinna og brids kl. 13, félagsvist kl. 20.30. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatnsleikfimi kl. 8 og 9, kvennaleikfimi kl. 9, 9.45 og 10.30, gönguhópur kl. 11, kór Sjálandsskóla syngur jólalög í Jóns- húsi kl. 15, sala á miðum í Þorláks- messuskötu í Jónshúsi, kr. 2.000, ekki er tekið við greiðslukortum og mið- afjöldi er takmarkaður. Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur opnar kl. 9-16.30, vatnsleikfimi í Breið- holtslaug kl. 10.50, Finnbogi Her- mannsson les úr bókum sínum kl. 11.30. Spilasalur opinn frá hádegi. S. 575-7720. Grensáskirkja | Jólafundur kvenfélags- ins kl. 20 í safnaðarheimili. Hraunsel | Rabb kl. 9, ganga kl. 10, Gaflarakórinn kl. 10.30, glerbræðsla og tréskurður kl. 13, boccia og félagsvist kl. 13.30. Sjá www.febh.is Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30, 9.30 og 10.30, opin vinnustofa frá kl. 9, brids kl. 13. Fótaaðgerðir. Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Smár- anum kl. 11.30-13. Uppl. í síma 564- 1490 og á www.glod.is Korpúlfar Grafarvogi | Ganga í Egils- höll kl. 10 hjá gönguhóp. Sundleikfimi kl. 9.30 í Grafarvogssundlaug. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Við Hringborðið, spjallhópur kvenna kl. 10.30, handverks- og bókastofa opin kl. 11.30, boccia kl. 13.30, veitingar kl. 14.30. Aðventustund í salnum – jóla- söngvar við píanóið kl. 15. Laugarból, Íþr.hús Ármann/Þróttur Laugardal | Leikfimi kl. 12.45. Vesturgata 7 | Handavinna kl. 9.15- 15.30, boccia kl. 9, leikfimi kl. 11, mat- ur, kóræfing kl. 14.30, tölvukennsla kl. 14.30, veitingar. Björn Ingólfsson orti á morg- ungöngu: Nóvembermorgunn, slydda, slabb, slettist úr spori. Á fullu kani afgamall durgur iðkar labb ámóta sprækur og gamall hani. Sigrún Haraldsdóttir sendi hon- um kveðju: Hver gamalhani á gildan rétt ef góðri heldur rænu og stundum hann í laumi létt, lítur eftir hænu. Davíð Hjálmar Haraldsson stóðst ekki mátið: Fjörguðust máni og syfjuleg sól og subbuleg, gegndrepa mjöllin þá aldraður hani við Eyjafjörð gól og eggjahljóð barst yfir fjöllin. Og það rifjast upp bragurinn Hænsni eftir Örn Arnarson: Nokkur heiðurshænsni í hænsnakofanum búa. Og haninn er þeirra höfuð, og hænurnar á hann trúa. Þau lifðu í eining andans og eftir hænsnavenjum, unz hænan ein tók upp á svo undarlegum kenjum. Að hoppa upp á hauginn er hennar fasti vani, reigja sig og rembast og reyna að vera hani. Haninn bölvar í hljóði. En hvað er um að tala, þótt hænuréttindahæna heimti að fá að gala? Vísnahorn pebl@mbl.is Af hönum og hænum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.