Morgunblaðið - 14.12.2009, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2009
HHH
„HRÖÐ, SPENNANDI... OG SNARKLIKKUÐ
MYND FRÁ A-Ö... EKTA AFÞREYINGARBÍÓ!”
T.V - KVIKMYNDIR.IS
HHH
„ÓSVIKINN GEIMHROLLUR SEM SVER
SIG Í HEFÐINA, MINNIR EINKUM Á ALIEN-MYNDIRNAR.“
„GÓÐ SKEMMTUN OG DÁLÍTIÐ GEGGJUÐ.“
S.V. - MBL
EKKI VIÐ HÆFI
UNGRA BARNA
JIM CARREY
Sýnd með íslensku
og ensku tali
HHHH
„JÓLASAGA Í FRÁBÆRRI, NÝRRI ÞRÍVÍDD
SEM SLÆR ÚT ANNAÐ ÁÐUR HEFUR SÉST“
„CARRY ER ENGUM LÍKUR...“
– S.V – MBL
BYGGT Á HINNI GRÍÐARLEGU VINSÆLU BÓKASERÍU STEPHENIE MEYER
Robert Pattinson og
Kristen Stewart eru
mætt í einni stærstu
kvikmyndaseríu
allra tíma!
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
ÞRIÐJA STÆRSTA FRUM-
SÝNINGARHELGI ALLRA
TÍMA Í USA
STÆRSTA BÍÓOPNUN
Í USA Í ÁR!
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI, 2 VIKUR Í RÖÐ!
LET’S BE HONEST, KILLING IS
THIS FILM’S BUSINESS...AND
BUSINESS IS GOOD.
CHRIS NASHAWATY / ENTERTAINMENT WEEKLY
“ROARING ACTION.”
KYLE SMITH / NEW YORK POST
HÖRKU
HASARMYND
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU
OKKUR MATRIX ÞRÍLEIKINN
EINHVER FLOTTUSTU BARDAGAATRIÐI SEM SÉST
HAFA Í LAAANGAN TÍMA!
SÝND Í ÁLFABAKKA
GERRARD BUTLER OG JAMIE
FOXX Í EINHVERRI MÖGNUÐUSTU
HASARMYND Á ÞESSU ÁRI!
FRÁ LEIKSTJÓRA THE ITALIAN JOB
„ÞEIR SEM DÝRKUÐU
FYRSTU MYNDINA...
MUNU ÁBYGGILEGA
ELSKA ÞESSA ÚTAF
LÍFINU.“
T.V. KVIKMYNDIR.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI
THE TWILIGHT 2 NEW MOON kl. 8 12
PANDORUM kl. 10:40 16
MY LIFE IN RUINS kl. 8 L
MORE THAN A GAME kl. 10:20 7
OLD DOGS kl. 8 - 10 L
THE TWILIGHT 2 NEW MOON kl. 8 12
NINJA ASSASSIN kl. 10:30 16
OLD DOGS kl. 8 - 10 L
THE TWILIGHT 2 NEW MOON kl. 8 12
PARANORMAL ACTIVITY kl. 10:30 16
Vilhjálmur Hólmar Vil-hjálmsson deyr á svipleg-an hátt í bílslysi árið 1978og síðan þá er Vilhjálmur
Vilhjálmsson ástmögur og ígildi
íkons meðal þjóðarinnar. Og líkt og
raunin er með helgimyndir hafa
þær yfir sér ímynd hreinleika hvort
sem sú mynd endurspeglar veru-
leikann eður ei …
Nú bregður svo
við að tónlist-
armaðurinn Jón
Ólafsson hefir
sett saman ævi-
sögu Vilhjálms.
Þá ævisögumynd
hefir hann sam-
ansett úr við-
tölum við samferðafólk Vilhjálms
sem og úr viðtölum og öðrum heim-
ildum.
Lesandi bókarinnar verður þess
fljótt áskynja að dregin er upp
mynd af söguhetju sem er í senn
gömul og þroskuð sál í ungum lík-
ama. Ber stíll og orðnotkun þess
merki og rímar vel við mann sem
var víst kjarnyrtur, með góð tök á
máli sínu. Textinn er enda smekk-
lega samansettur (notkun sögu-
legrar nútíðar er vel heppnuð) á
góðri íslensku þótt telja megi lát-
leysi til vansa. Og það rímar ekki
við ævi Vilhjálms sem á tæpum
þrjátíu og þremur árum upplifði og
gerði meira en margur á heilli
mannsævi.
En þar höfum við líka helsta akk
bókarinnar; lesandinn fræðist um
sitthvað sem á huldu var varðandi
ævi viðfangsefnisins. Viðfangsefnis
sem klárlega lifði tímana tvenna;
fæddur í gamla tímanum, án raf-
magns og þeirra þæginda sem við
teljum mannréttindi, en fellur, svo
að segja, frá í vestrænni velmegun.
Raunar virðist Vilhjálmur hafa ver-
ið með fæturna báðum megin og
endurspeglast það um margt í tón-
listarferli hans eins og honum er
lýst í verkinu. Ekki er svo síður
fróðlegt að fá að skyggnast inn í
tónlistarbransann og fá nasasjón af
tónlistarfurstum þess tímabils sem
bókin spannar, Svavari Gests, Ingi-
mar Eydal, Magnúsi Ingimarssyni
o.fl., ásamt því að fræðast um tilurð
laga og texta. Eins og lög gera svo
ráð fyrir í svona verkum má finna
margvíslega útúrdúra sem bæði eru
vel heppnaðir og ekki.
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að lagið „Söknuður“ er iðu-
lega leikið við jarðarfarir. Og, eins
og okkur er kunnugt um, fylgja
minningargreinar jarðarförum.
Minningargreinar hafa margt til
síns ágætis en verða seint kallaðar
spennandi lesning, enda kannski
allt full slétt og fellt til þess atarna.
Maður hefir líka æ á tilfinningunni
að eitthvað sé ósagt. Téð bók er dá-
lítið eins og minningargrein. Hún
dregur upp mynd sem passar vel
við ímynd persónunnar, ýjar þó að
ýmsu án þess að nefna það berum
orðum. Verkið er smekklegt og
ágætlega saman sett og þjónar sín-
um tilgangi ágætlega. Sumsé alveg
bærilegt í það heila og lestursins
virði.
Myndin af Vilhjálmi Vilhjálmssyni
Morgunblaðið/G.Rúnar
Jón Ólafsson „Verkið er smekklegt
og ágætlega saman sett.“
Ævisaga
Söknuður: Ævisaga Vilhjálms
Vilhjálmssonarbbmnn
Eftir Jón Ólafsson 310 bls.
Sena gefur út. 2009
ÓLAFUR GUÐSTEINN
KRISTJÁNSSON
BÆKUR
MIKIÐ var um dýrðir í Laugardalshöll um helgina, en þá lauk tónleikaröð
Frostrósa 2009 með fernum jólatónleikum. Söngkonurnar sem kalla sig ís-
lensku dívurnar, þær Margrét Eir, Guðrún Gunnarsdóttir, Hera Björk og
Ragnhildur Gísladóttir, fóru fyrir fríðum hópi listamanna sem fyllti salinn
með jólasöngvum og hátíðarbrag, en sviðið og salurinn voru í sannköll-
uðum jólabúning. Með dívunum á sviðinu voru tenórarnir Garðar Thór
Cortes og Jóhann Friðgeir Valdimarsson, auk Friðriks Ómars. Þá birtust
margir góðir gestir, þar á meðal Edgar Smári, Heiða Ólafsdóttir og Högni
og Sigríður Thorlacius úr Hjaltalín. Þrjátíu manna hljómsveit var að baki
einsöngvurunum auk Karlakórsins Fóstbræðra, Vox feminae, Stúlknakórs
Reykjavíkur, Gospelradda Domus Vox og Íslenska gospelkórsins.
Tónlistarstjóri var Karl O. Olgeirsson og Árni Harðarson stjórnandi
hljómsveitarinnar.
Áheyrendur nutu tónaflóðsins, og þegar hæst lét flæddi líka hlýr list-
rænn englasnjór af himnum ofan yfir gesti.
Englasnjór og jólatónar
Fannfergi Þegar hæst lét steyptist englasnjór yfir gesti.
Jólaraddir úr Hjaltalín Sigríður Thorlacius og Högni Egilsson voru gestir.
Tenórinn Garðar Thor Cortes fór hátt. Kertasöngur Hvítklæddar stúlkurnar sungu eins og englar.
Á útopnu Friðrik Ómar og dívurnar Guðrún, Margrét Eir, Hera Björk og Ragnhildur, þenja raddböndin.
Morgunblaðið/Eggert