SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Blaðsíða 10

SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Blaðsíða 10
10 31. janúar 2010 Þ að er eitthvað óumræðilega jákvætt og vinalegt við það að íslenska þjóðin býr enn yfir getunni til að standa sam- an. Þrátt fyrir mjög hörð átök, pólitísk og ekki síður meðal almennings í meira en fimmtán mánuði, þar sem stórkostlega hefur verið tekist á um hið ömurlega Icesave-mál, ríkisábyrgð á skuldbindingum, sem ekki hefur verið sýnt fram á að okkur beri lagaleg skylda til þess að axla, þá hefur undanfarnar tvær vikur lítið sem ekkert heyrst af Icesave-átökum og fæstir leggja við hlustir, þegar þau Jóhanna Sigurðardóttir og Stein- grímur J. Sigfússon tjá sig um þau býsn, enda hafa klisjur þeirra heyrst svo oft áður, að við liggur að þjóðin sé bólusett gagnvart þeim – alla vega búin að koma sér upp sterku mótefni gegn inni- haldslausum endurtekningum þeirra. En hvað er það sem sameinar þjóðina, mitt í okkar efnahags- þrengingum, atvinnuþrefi og svartsýnisrausi? Jú, vitanlega eru það „strákarnir okkar“, sem hafa haldið merkjum Íslands hátt á lofti á EM í handbolta í Austurríki. Vitanlega voru miklar væntingar bundnar við silfurdrengina frá því á Ólympíuleikunum sumarið 2008 og þjóðin gerði sér í hug- arlund að þeir færu langt í keppninni, áður en þeir héldu af landi brott. Þeir byrjuðu á því að taka þjóðina á taugum í tveimur fyrstu leikjunum í síðustu viku, fyrst á móti Serbum og svo á móti Aust- urríkismönnum. Tvö jafntefli og þjóðin var miður sín yfir slakri frammistöðu „okkar manna“ og hjá sumum voru drengirnir meira að segja á mörkum þess að vera enn „drengirnir okkar“. En stórkostleg frammistaða okkar manna í leiknum gegn erki- fjendunum, sjálfum Dönum, á laugardaginn fyrir viku stimplaði strákana á nýjan leik inn í þjóðarsálina. Þeir tóku Dani í nefið, með sóma og sann. Ekki lækkaði blóðþrýstingur landsmanna á mánudag, þegar fólk var límt við skjáinn til þess að fylgjast með æsispennandi viðureign Íslendinga og Króata. Þótt við teljum flest að strákarnir hafi verið betri og átt sigur skilinn var jafnteflið í leiknum síður en svo nokk- uð til þess að fúlsa við. En úrslitin gerðu það auðvitað að verkum, að enn jukust væntingar til drengjanna, og það var sama hvar komið var á mannamót, alls staðar var verið að ræða handboltann og frammistöðu strákanna. Svo bættu þeir bara um betur á þriðjudaginn var, með því að snýta rússneska birninum langt út í hafsauga og ég var meira að segja farin að hafa vissa samúð með Rússunum! En það var þó ekki fyrr en ég var alveg viss um íslenskan sigur, sem gerðist jú strax í fyrri hálfleik. Eftir burstið á Rússum var væntingavísitalan komin í hæstu hæðir hjá þjóðinni! Ef vísitalan ryki upp með slíkum hætti á Wall Street væri um heimsfrétt að ræða. Svo sætir og elskulegir íbúar Hrafnistu, sem sitja límdir við skjá- inn hvern leik og styðja strákana af lífsins sálarkröftum, sögðu eig- inlega allt sem segja þarf, þegar reynt er að lýsa samstöðu þjóð- arinnar og stuðningi við íslenska karlalandsliðið í handbolta. Það var ekki annað hægt en að verða snortinn þegar rætt var við íbúa Hrafnistu á miðvikudagskvöld í sjónvarpinu og þau lýstu áhuga sínum á landsliðinu og stuðningi. Meira að segja var ein fal- leg eldri kona ekkert feimin við að segja frá því að hún teldi Guðjón Val vera þann myndarlegasta í landsliðinu, en eins og góðri ömmu sæmir var hún fljót að bæta við að þeir væru allir „yndislegir“. Spennan var náttúrlega í algjöru hámarki í fyrradag, síðustu klukkustundirnar fyrir leikinn gegn Norðmönnum. Einhvern veginn var mér þó þannig innanbrjósts að það skipti litlu máli hvort strákarnir legðu Norðmenn að velli og tryggðu sér þannig sæti í fjögurra liða undanúrslitum EM-mótsins. Þeir væru búnir að gera svo mikið fyrir þjóðarsálina; þjappa landsmönnum saman; fá þá til þess að gleyma Icesave og svartnætti um stund- arsakir; gleðja og veita okkur óumræðilega skemmtun, með frá- bærum handknattleik, þar sem allir kostir liðsheildar blómstruðu með slíkum hætti, að það ætti að geta orðið okkur hvatning til samstöðu og baráttu á allt öðrum sviðum þjóðlífsins en handbolta. Sigurinn á Norðmönnum var vissulega sætur, en hann var bara bónus á allt það góða sem þessir strákar hafa þegar skilað okkur. Hvað segið þið? Væmin! Það verður þá bara að hafa það! Og meðal annarra orða: Við unnum Norðmenn, erum komin í undanúrslit og ég er farin til Vínarborgar til þess að sjá úr- slitakeppnina „live!“ Jibbí jei! Ég er farin til Vínarborgar Agnes segir Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is 04:45 Þá vakna ég en „snooza“ til fimm. Ég byrja að vinna klukkan sex flesta daga og ég tek mér langan tíma í að fá mér morgunmat og eyði smátíma með sjálfum mér. Ég fæ mér hollan og góðan morgunverð, ommelettu og hafragraut með möndlum og hnetum út í. Þetta er allt vigtað og mælt, fæ mér fjögur egg, 48 grömm af haframjöli og 48 möndlur. 05:45 Legg af stað í vinn- una. Ég er aðallega crossfit- þjálfari þótt ég sé líka einka- þjálfari. Mestur tími dagsins fer í hópaþjálfun í crossfit-kerfinu hjá World Class á Seltjarnarnesi. 06:00 Fyrstu tímarnir í crossfit hefjast. Ég er yfirleitt að þjálfa í tvo tíma, frá klukkan sex til átta, en svo er ég með einkaþjálfun frá hálfníu til tólf. Svo er crossfit í hádeginu. Ég er með á bilinu sex til átta kúnna í einkaþjálfun en um 200 manns í crossfit. 13:00 Ég er yfirleitt í pásu eftir hádegistímann og til klukkan fimm. Þá fer ég í tölv- una og skrifa niður lyftinga- prógrömm, bý til æfingar, fer yfir mælingar og les alls konar greinar. Maður er alltaf að fræðast og læra eitthvað nýtt. Ég les greinar í næringarfræði, um hreyfingu eða annað sem ég tengi við þjálfunina. 17:00 Byrja aftur með crossfit. Það er alveg til að verða níu á kvöldin. Crossfit hefur slegið í gegn enda mikil kynningarvinna sem liggur að baki. Það er orðið ársgamalt hér á landi og flestir vita nú hvað það er, enda mjög skemmtilegt og komið til að vera. 21:00 Þá kem ég heim en það eru lengstu dagarnir. Oft er ég búinn klukkan sjö og stund- um klukkan átta. Þá sest maður aðeins við tölvuna, fær sér smásnarl og svarar einhverjum tölvupósti, skipuleggur næsta dag og fer svo upp í rúm með góða bók. 22:30 Fer upp í rúm en ég reyni að fara snemma að sofa. Dagur í lífi Everts Víglundssonar einkaþjálfara og Crossfit-kennara „Ég er aðallega crossfit-þjálfari þótt ég sé líka einkaþjálfari. Mestur tími dagsins fer í hópaþjálfun.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Langur vinnudagur í líkamsræktinni Komdu ogskoðaðuþaðnýjasta í hönnun ogtækniheyrnartækja. Ellisif Katrín Björnsdóttir heyrnarfræðingur verður með fyrirlestur: Hvað ræður vali heyrnartækja? Fyrirlesturinn verður haldinn kl 11:00 , 14:00 og 17:00 Gestum fyrirlestranna er boðið upp á að skrá sig í fría heyrnarmælingu Opið hús verður þriðjudaginn 2. febrúar hjá Heyrn í Hlíðasmára 11. Hlíðasmári 11, 201 Kópavogur - heyrn.is Tímapantanir 534 9600 * Heyrnarþjónusta * Heyrnarvernd * Heyrnarmælingar * Heyrnartæki * Ráðgjöf Ellisif K. Björnsdóttir heyrnar fræðingur with Surround sound
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.