SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Blaðsíða 55

SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Blaðsíða 55
31. janúar 2010 55 Þ rítugasta hátíð Myrkra músíkdaga hófst á sunnudag með síðdeg- istónleikum í útvarps- húsinu og síðan sama kvöld í Listasafni Íslands. Við skoðun heildardagskrár má vissulega taka undir orð formanns Tón- skáldafélagsins að sjaldan hafi hátíðin verið fjölbreyttari, enda löngu kominn tími til að gleikka fyrrum fullakademískan sérgeir- ann með alhliða efni úr ólíkari áttum en áður þótti hæfa, í sam- ræmi við víðsýnni nálgun nú- tímans. Og ekkert nema hið bezta mál. Einangrun er örugg- asta leiðin til sjálfsmorðs. Að vísu áttu hátíðartónleikar kvöldsins lítið sammerkt með strjálli hliðarsporum MM. Hér fóru löngu staðfastir höfundar og fátt dæma af rokk-, djass-, raf- eða heimstónlistarlegum toga. Dagskráin skartaði fyrst verka Endurskini úr norðri (1952; 14’) fyrir strengjasveit eftir Jón Leifs; dulúðugri en einnig kraftmikilli ættjarðarkviðu í anda tónskálds- ins um meint íslenzkt tónlistar- eðli þar sem skiptust á þróttmikil kvæðamannahrynjandi og tví- söngsleit hljómaskipti er minntu stundum á jarðeðlisfræðilegt landrek undirdjúpa á vaxt- arhraða fingurnaglar. Framan af allspennandi áheyrnar, en í heild kannski fjórðungi of langt, þrátt fyrir afar inn- lifaða og sam- stillta túlkun. Filigree (1993; 9’) fyrir strengi, flautu, hörpu og píanó eftir Þorkel Sigurbjörnsson hafði að mestu á sér ljóðrænt klassískt yfirbragð með austrænum und- irtónum samofið slunginni þrás- tefjatækni, þó einnig bryddaði á talsverðum krafti. Hvað þann varðar kom Konsert Johns Speights fyrir víólu, klarínett og kammersveit (11’) hins vegar mest á óvart þetta kvöld, enda fluttur af smellandi ofursnerpu í andstæðuríku samspili við söng- ræn ein- og tvíleiksinnskot sól- ista svo jaðraði stundum við dúndrandi rokksveiflu í upp- ljómandi heyrð myndlistarsal- arins. Sjaldan hafði maður heyrt nútímaverk er ætti betur að höfða til yngri hlustenda. Vel að merkja án þess að falla í neina pópúlíska skrumgryfju. Rent („Húsaleiga“; 1976) fyrir strengjasveit eftir Leif Þór- arinsson var talsvert stílblendið verk en engu að síður áhrifamik- ið og hátindaði sérstæðan tján- ingarmátt sinn með hugvekjandi atómaldarsálmalagi í lokin. Tón- leikunum lauk svo með löngu klassískum þríþættum Concerto lirico Jóns Nordal fyrir hörpu og strengjasveit frá 1975 er kórónaði hágæðayfirbragð tónleikanna svo eftir sat með afburðaflutningi Kammersveitarinnar undir markvissri stjórn Bernharðs í auðsæju banastuði. Dúndrandi banastuð TÓNLIST Myrkir músík- dagarbbbbn Listasafn Íslands Verk eftir Jón Leifs, Þorkel Sigurbjörns- son, John Speight (frumfl.), Leif Þór- arinsson og Jón Nordal. Einleikarar: Þórunn Ósk Marinósdóttir víóla, Einar Jóhannesson klarínett og Elísabet Waage harpa. Kammersveit Reykjavík- ur. Stjórnandi: Bernharður Wilkinson. Sunnudaginn 24. janúar kl. 20. Ríkarður Ö. Pálsson John Speight V erk Ingunnar Fjólu Ingþórsdóttur í Hafn- arborg, Ljósbrot, sem er samansett af ótal gegnsæjum og lituðum þráð- um sem mynda einskonar víbrandi og nær ósýnilegt völ- undarhús, er dæmigert fyrir það sem kallað er rýmisverk eða innsetning. Verkið kallast þannig á við innsetningu Marcels Duc- hamps, Sixteen Miles of String frá árinu 1942, þar sem hann strengdi þræði þvers og kruss í sýningarsal með mál- verkum. Áhorfendur þurftu að skáskjóta sér á milli strengjanna til að komast að málverkunum og upplifunin varð fyrir vikið allt öðruvísi og þeir sér betur meðvitandi um rýmið. Þessi sýning Duc- hamps er nú talin fyrsta inn- setningin í listasögunni en í dag er vart hægt að setja upp né tala um sýningu yfirleitt nema hugsa um hana sem sem heild, sem innsetningu, og um leið hefur skilgreiningin á dæmigerðu rýmisverki misst marks. Verkið Ljósbrot er óvenju vel heppnuð innsetning þar sem vel er unnið með rýmið og rýmisskynjun áhorfandans. Hann er eiginlega veiddur í og leiddur í gegnum fag- urfræðilegan vef þar sem ljósið bognar og brotnar á víxl. Samspil ljóss, girnis og litaðra ullarþráða virðist skapa titr- andi byrjunarstig lítilla regn- boga sem rugla skynjunina, og eyðir muninum á hvar raun- verulegir strengir eru og hvar ekki. Hér er á ferðinni eins konar þrívíð op-list þar sem skapandi sjónvillur leika stórt hlutverk. Í verkinu er flæði sem ýtir undir ljóðræna eða andlega upplifun, andartak töfra og undrunar. Skemmtileg og fersk sýning sem óhætt er að mæla með. Spilað á strengjaljósfæri Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir við verk sitt. „Í verkinu er flæði sem ýtir undir ljóðræna eða andlega upplifun.“ Morgunblaðið/RAX MYNDLIST Ingunn Fjóla Ingþórs- dóttir, innsetning í rými bbbbn Hafnarborg, Strandgötu 34, Hafnarfirði Sýningin er opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 12-17 og fimmtu- daga til kl. 21. Aðgangur ókeypis. Þóra Þórisdóttir LISTASAFN ÍSLANDS ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Ævispor Útsaumsverk Guðrúnar Guðmundsdóttur Endurfundir Fornleifasýning fyrir alla fjölskylduna Fyrir ári Segja þessir hlutir söguna? Opið alla daga nema mánudaga 11-17 Aðgangur ókeypis fyrir börn www.thjodminjasafn.is - s. 530 2200 Söfnin í landinu 16. janúar - 28. febrúar Endalokin - Ragnar Kjartansson Ljósbrot - Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir Opið 12-17, fimmtudaga 12-21, lokað þriðjudaga www.hafnarborg.is sími 585 5790 Aðgangur ókeypis í samstarfi við Listasafn Íslands ÍSLENSK MYNDLIST hundrað ár í hnotskurn kaffistofa – leskró barnahorn OPIÐ: Fim.–sun. kl. 12-18 AÐGANGUR ÓKEYPIS www.listasafnarnesinga.is Hveragerði CARNEGIE ART AWARD 2010 8.1. - 21.2. 2010 SUNNUDAGSLEIÐSÖGN 31. jan. kl. 14 Hildur Bjarnadóttir myndlistarmaður með leiðsögn um sýninguna. MÁLÞING - HLJÓÐ OG SJÓN fimmtud. 4. febr. kl. 17-19 Málþing um tónlist og hljóð í samtímalist. Ókeypis aðgangur - Allir velkomnir SAFNBÚÐ Úrval af listaverkabókum, listaverkakortum, plakötum, íslenskum listmunum og gjafavöru. Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600 OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga Allir velkomnir! ÓKEYPIS AÐGANGUR • www.listasafn.is Listasafn: Björn Birnir Afleiddar ómælisvíddir Bíósalur: Verk úr safneign Listasafns Reykjanesbæjar Bátasafn: 100 bátalíkön Byggðasafn: Völlurinn Opið virka daga 11.00-17.00 helgar 13.00-17.00 Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn VÍKINGAHEIMAR Skipið Íslendingur og sögusýning - Söguleg skemmtun VÍKINGABRAUT 1 - REYKJANESBÆ Opið alla daga frá 11:00 til 18:00 Sími 422 2000 www.vikingaheimar.com info@vikingaheimar.com Grafíksafn Íslands-salur íslenskrar grafíkur Tryggvagötu 17, hafnarmegin Íslensk grafík í 40 ár - sögusýning Opið fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 14.00-18.00 Síðasti sýningardagur 31. janúar Aðgangur ókeypis islenskgrafik@gmail.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.