SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Blaðsíða 14

SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Blaðsíða 14
hafi ekki spilað nálægt því svona mikið með fé- lagsliðinu í vetur. Ég bjóst ekki við að það myndi ganga svona vel.“ – Hvaða þýðingu hefur það fyrir þig? „Ég vonast til þess að þessi hnémeiðsli séu úr sög- unni og maður geti bara haldið áfram með ferilinn. Það er gott að fá staðfestingu á því að ég þoli svona mót og vel það.“ – Þú spilar í Danmörku – hversu sterk er danska deildin? „Deildin er mjög góð. Það eru fimm til sex frábær lið í deildinni, við erum með eitt af bestu liðunum. Ég spila því með góðu liði, þó að það sé ekki frá Þýska- landi. Mér líður einfaldlega frábærlega í Kaupmanna- höfn og þannig hefur það verið í þrjú og hálft ár. En nú er ákveðinn vendipunktur. Það er verið að yf- irtaka FCK. Ég var búinn að framlengja samninginn til tveggja ára, en eftir yfirtökuna get ég séð til hvort samningurinn færist yfir á nýja liðið, sem heitir AGK og spilar líka í Kaupmannahöfn, eða hvort ég leita á önnur mið.“ – Bíður sú ákvörðun þín eftir mótið? „Ég hugsa ekki um þetta núna,“ segir hann ákveð- ið. „En ég ætla að setjast niður eftir mótið með for- ráðamönnum AGK og sjá hvaða markmið þeir hafa sett sér. Kannski vilja þeir mig ekki einu sinni í liðið. Þetta er lítið lið, sem var að koma upp um deild, en það er með stóran kall á bak við sig, Jesper Nilsen, sem er líka með puttana í Rhein-Neckar Löwen, þar sem Óli, Guðjón Valur og Snorri Steinn spila. En allir samningarnir fara yfir til AGK og það situr í manni að spila með erkifjendunum.“ – Þetta verður að teljast óvenjulegt. „Það er ýmislegt hægt með peningum greinilega. En mér líður frábærlega í Kaupmannahöfn. Og ef ég færi yfir til AGK væri ég enn að spila í frábæru liði. Ég hef prófað að spila í Þýskalandi og það togar ekkert sérstaklega í mig, ekki nema eitthvað mjög skemmti- legt tækifæri kæmi upp í hendurnar á mér.“ – Þú ert fjölskyldumaður. „Ég á þriggja ára strák og kærustu, Guðrúnu Jónu Guðmundsdóttur. Þau eru akkúrat núna búin að vera í hálft ár heima á Íslandi, því hún ákvað að byrja í lög- fræði. Svo ég hef verið einsamall í Kaupmannahöfn, en ég vona að þau komi sem fyrst eftir EM til Kaup- mannahafnar.“ – Þú ert þá eins og vængbrotinn fugl? „Algjörlega, eins og höfuðlaus her! En ég er að klára námið mitt og reyni bara að nota tímann í það.“ – Hvað ertu að læra? „Ég er að klára BS í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri í vor. Ég á reyndar að vera löngu byrjaður á lokaverkefninu, ætlaði að hefjast handa strax eftir áramót, en það hefur vægast sagt gengið hægt. Þann- ig að það verður stress í febrúar og mars að klára BS- ritgerðina.“ – Um hvað ætlarðu að skrifa? „Það er ekki alveg fast í hendi,“ segir hann og hlær. – Hvað heillar svona við Kaupmannahöfn? „Það er frábær staður, maður þekkir glás af fólki, fjölskyldulífið er dásamlegt, leikskólinn frábær, okk- ur líður mjög vel þar. Danmörk er þægileg fyrir Ís- lendinga – það er stutt heim.“ – Eins og þjóð veit er pabbi þinn Atli Hilmarsson, sem áður spilaði með landsliðinu. Berið þið saman bækur ykkar? „Ég heyri ekkert mikið í honum á milli leikja. Hann hringir af og til og tékkar á stöðunni. En við erum í góðu sambandi og jú, auðvitað hlustar maður á öll ráð frá honum. Ekki spurning. Það er bara gott að eiga áhugasaman föður, sem hefur náttúrlega gengið í gegnum þetta allt saman. Það er gott að fá álit hjá ein- hverjum sem situr heima í stofu. Ég held að hann sé að koma um helgina, ætli að hjálpa okkur í gegnum þetta um helgina!“ – Þið eruð ekki líkir leikmenn? „Nei, ég held ég sé þyngri leikmaður og meiri skriðþungamaður en hann var. Hann var ekkert mik- ill um sig, en hann var frábær skytta og meiri lang- skytta en ég, hoppaði eins og frægt var, sveif og sveif og sveif, og lagði hann í hornið. Það er meiri þungi í mér.“ – Þú líkist kannski móður þinn meira sem hand- boltamaður? „Já, mamma var víst efnileg í boltanum líka, en þurfti að hætta snemma útaf hnémeiðslum. Ætli ég hafi ekki bara fengið hnén hennar, veit ekki meir.“ – Svo eru yngri systkin þín efnileg? „Þorgerður Anna litla systir gerir það gott í hand- boltanum undir stjórn pabba. Hann treystir greini- lega engum nema sjálfum sér til að stýra okkur fyrstu árin í meistaraflokki þar sem hann þjálfaði mig líka Arnór á lokahófi HSÍ árið 2004, besti leikmaðurinn, sá efnilegasti og auk þess markakóngur. Arnór reynir fyrir sér í skothörkukeppni í KA-heimilinu sem mæld var með radar lögreglunnar á Akureyri Viktor Szilagyi og Arnór voru í stórum hlutverkum í leik Austurríkis og Íslands í Linz, sem endaði með jafntefli liðanna. 14 31. janúar 2010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.