SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Blaðsíða 39

SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Blaðsíða 39
31. janúar 2010 39 Þ að eru listakonurnar Sigríður Ásta Árnadóttir og Kristín Sigfríður Garðarsdóttir sem eru hönnuðirnir á bak við stellið, en það er sam- starfsverkefni sem þær unnu fyrir sýningu sem bar yfirskriftina Einu sinni er. Sigríður Ásta er text- ílhönnuður og á hún heiðurinn af ullarkúlunum sem skreyta stykkin, en Kristín er keramiker. Þær kynntust í gegnum tengsl sín við verslunina og þegar Sigríði var boðið að vera með á sýningunni valdi hún strax Kristínu til að vinna með. „Ég leit í kringum mig í búðinni þar sem ég er að vinna og hugsaði bara með mér að það væri gaman að vinna með Kristínu, af því að hún er svo mikill húmoristi og af því að ég er svo hrifin af því sem hún gerir. En það er líka svo ofboðslega ólíkt því sem ég er að gera, þannig að þetta var áskorun fyrir okkur,“ segir Sigríður Ásta. Þema sýningarinnar var gamalt/nýtt og var verkefnið að búa til einhvern nytjahlut. Listakonunum reyndist erfitt að finna leið til að sameina ullina og postulínið í hversdagslegum nytjahlut. „Kristín lét mig hafa eitt- hvað af keramikbitum og ég var svona að fikta með þá og reyna að spyrða þá saman við textíl. Og einhvern veginn fúnkeraði þetta ekki. Það kom í ljós að nýtingin myndi alltaf takmarkast við eiginleika efnanna. En það er í sjálfu sér ekki verri aðferð en hver önnur til að landa einhverri hugmynd, að hanna bara út frá eiginleikum efnisins,“ segir Sigríður Ásta og lítur á Kristínu sem tek- ur undir. Hvað notagildið varðar segir Kristín að stykkin séu á mörkum þess að vera nytjahlutir og listmunir. Hún segir það í raun undir eigandanum komið hvernig stykkið sé nýtt en sjálf sér hún þau til dæmis fyrir sér sem prýðilegustu sælgætisskálar. Þær segja samvinnuna hafa gengið vel og að það hafi mikið verið hlegið meðan á sköpunarferlinu stóð. Þær viðurkenna að hafa farið smá krókaleið í kringum þem- að gamalt/nýtt, en til þess að bjarga sér fyrir horn sömdu þær skemmtilega þjóðsögu sem hugmyndin á bak við stellið sækir í. „Flökkukindin er þjóðsagnaper- sóna og liturinn á krukkunum er tenging við söguna,“ segir Sigríður Ásta og telur upp litanöfnin sem þær bjuggu til en þau voru til dæmis kindagötugrænn, sum- arnáttablár og rollutungurauður. Eftir að hafa farið á sýningar víðsvegar um landið er stellið nú til sýnis í bakherbergi í Kirsuberjatrénu. Að- spurðar hvort þær hafi hugsað sér að vinna meira saman útiloka þær ekki neitt en segjast báðar vera það upp- teknar að það sé erfitt yfir höfuð að finna tíma fyrir samstafsverkefni. „Það er ofboðslega gaman að vera með sameiginlegt sköpunarferli en það er miklu flókn- ara. Það tekur tíma og getur orðið ofboðslega snúið. En þetta getur líka verið hvíld frá því sem maður er að gera venjulega,“ segir Sigríður Ásta að lokum. Morgunblaðið/Heiddi Kindarlegt postulín Í Kirsuberjatrénu við Vestur- götu er nú til sýnis nýstárlegt postulíns- og ullarstell. Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Listakonurnar Kristín Sigfríður og Sigríður Ásta. ’ Flökkukindin er þjóðsagnaper- sóna og liturinn á krukkunum er tenging við söguna.“ Mörg eru þau yfirskilvitlegu fyrirbæri sem í íslenskri þjóðtrú tengjast Jónsmessunótt, enda nóttin ein af fjórum mögnuðustu nóttum ársins. Eitt það allra und- arlegasta fyrirbæri sem tengist þessari nótt mun vera flökkukindin, sem telst til ættar huldufjár og munn- mæli kveða á um að birtist mönnum þá helst aðfara- nótt 24. júní, þótt vissulega sé það þekkt að flökku- kindur skjóti upp fagurhyrndum kollinum meðal almúgakinda á öðrum tíma. Flökkukindin líkist við fyrstu sýn mjög frænku sinni íslensku sauðkindinni, þótt bæði sé hún stærri, fótfrárri og föngulegri á að líta. En það sem fyrst og fremst er óvenjulegt við huldukynið er ullin, sem mun afbragð annarrar ullar, en ull af flökkukind er þeirri náttúru gædd að geta tek- ið á sig hvern þann lit sem óskað er. Sé ætlunin að hafa hendur í hári flökkukindar er að sögn vænlegast til árangurs að koma sér fyrir í ná- munda við krossgötur aðfaranótt Jónsmessu, vel birgur af ilmandi, nýtíndu lyngi, birkilaufi eða græn- gresi öðru. Flökkukindin er að sögn ljónstygg skepna og mikilvægt að fara sér í engu óðslega við að nálg- ast hana. Ef heppnin er með og hægt er að ná taki á ullinni, skal fara upphátt með nafn þess litar sem óskað er að ullin taki á sig og kippa snöggt í. Um flökkukindur að fornu og nýju Nú geta fínar frúr líka borið endurskinsmerki. Á Hársafni Leilu má finna eitt stærsta safn skartgripa og annarra muna sem búnir eru til úr mannshári. Þar eru m.a. 159 hársveigar og yfir 2.000 skartgripir sem innihalda, eða eru alfarið búnir til úr mannshárum. Úfin hálsmen og loðnar nælur eru m.a. til sýnis. Safnið er líklega það eina í heiminum sem sérhæfir sig í höf- uðprýðinni og hefur fengið töluverða athygli fyrir það. Þótt ýmis furðuverk séu á safninu safnar það einnig sögulegu hári. T.d. er þar að finna lokk úr hári Daniels Websters sem var þekktur mælskumaður og öld- ungadeildarþingmaður í Bandaríkjunum. Þá gaf gam- anleikkonan Phyllis Diller safninu hárlokka og hafa þeir verið settir í sveig sem er varðveittur í ramma á safninu. Leila Cohoon byrjaði að safna hári í tómstundum þegar hún var við nám í snyrtifræði fyrir um 40 árum. Tómstundagamanið vatt upp á sig, henni áskotnuðust hársveigar frá tveimur systrum en hárið var rakað af þeim þegar þær gengu í klaustur. Þá bjó Leila til sögu- bók fjölskyldu sinnar sem nær aftur til ársins 1725 og er þar m.a. að finna lokka úr hári einstakra fjölskyldu- meðlima. Skartgripir úr hári Leila Cohoon byrjaði að safna hári í tómstundum fyrir fjörutíu árum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.