SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Blaðsíða 41
31. janúar 2010 41
800 g laukur
2-3 hvítlauksgeirar
3 msk olía
1 msk herbes de provence, ítölsk
kryddjurtablanda eða önnur þurrkuð
kryddjurtablanda
1½ l vatn
1 msk grænmetiskraftur
1 dós saxaðir tómatar
nýmalaður pipar
salt
brauðsneiðar
rifinn ostur
Laukurinn flysjaður, skorinn í helm-
inga eða fjórðunga og síðan í þunnar
sneiðar. Hvítlaukurinn saxaður smátt
eða pressaður. Olían hituð í potti, lauk-
urinn settur út í og látinn krauma við
fremur vægan hita án þess að brúnast í
um fimm mínútur. Þá eru kryddjurtirnar
settar út í og síðan vatn, grænmetis-
kraftur og tómatar. Hitað að suðu,
kryddað með nokkuð miklum pipar og
salti og látið malla við vægan hita í um
45 mínútur. Smakkað og bragðbætt
með meiri pipar og salti ef þarf. Grillið í
ofninum hitað, brauðsneiðunum raðað
á plötu, rifnum osti stráð yfir og bakað
þar til osturinn er bráðinn og fallega
gullinbrúnn. Brauðið borið fram með
súpunni eða ef hún er borin fram á
diskum er ein sneið sett ofan á hvern
disk.
Lauksúpa með tómötum
Nanna hefur í gegnum árin skrifað ótal mat-
reiðslubækur og má fullyrða að þær hafi komið
ófáum byrjendunum að góðum notum í eldhús-
inu. Sjálf er Nanna mikill aðdáandi matreiðslu-
bóka en nálgast þær öðruvísi en flestir. „Ég elda
svo til eingöngu upp úr sjálfri mér. Ég á nátt-
úrlega mörg hundruð eða þúsund mat-
reiðslubækur, ég er alltaf að lesa uppskriftir. En
það er til þess að fá hugmyndir, ekki til þess að
fara eftir þeim. Meira að segja er það þannig með
uppskriftir, sem ég er búin að vera að gera frá
því ég var krakki, að ég er alltaf að breyta þeim.
Mér finnst nánast engin uppskrift vera þannig
að það megi ekki breyta henni, ég er einmitt
alltaf að hvetja fólk til þess að breyta til, prófa
eitthvað nýtt. Bókin sem ég gaf út í fyrra, Mat-
urinn hennar Nönnu, byggist dálítið upp á því
að breyta og nota bara það sem er til. Og eins
nota afganga og láta ekkert fara til spillis. Og
nýta allar krukkurnar sem maður á í skáp-
unum.“
Aðspurð hvort ný bók sé á leiðinni segist
Nanna vera með ótal hugmyndir í kollinum,
mislangt komnar í þróunarferlinu. „Ég er að gera
ýmsa hluti … sem geta farið í allar áttir,“ segir
hún hugsi en hlær svo við. En á hún sér þá ein-
hvern uppáhaldsmat? „Nei,“ svarar hún ákveðið.
„Fólk heldur oft að ég sé óttalega matvönd eða
að það sé ekki hægt að bjóða mér hvað sem er, en
ég borða bara það sem fyrir mig er lagt. Þegar ég
er með börnin og tengdabörnin í mat, þá held ég
að þau myndu velja kjöt og karrí. Og það er
svona frekar klassískt. Og þá kemur einmitt að
því sem við vorum að ræða varðandi að breyta
hlutunum. Ég er stundum eitthvað að bæta út í
en krakkarnir vilja hafa matinn eins og þau hafa
vanist honum.“Nanna Rögnvaldardóttir á um þúsund matreiðslubækur en segist aðeins lesa þær til að fá innblástur.
Morgunblaðið/hag
4 egg
½ l mjólk
1 tsk vanilludropar
150 g hveiti
2 msk sykur
½ tsk lyftiduft
örlítið salt
50 g smjör
Egg, mjólk og vanilludropar þeytt saman.
Hveiti, sykri, lyftidufti og salti blandað sam-
an í skál og mjólkurblöndunni hrært saman
við smátt og smátt þar til soppan er kekkja-
laus og hæfilega þykk. Smjörið brætt á pönn-
unni og hrært saman við. Síðan er dálitlu af
soppunni ausið á pönnuna og henni snúið
fram og aftur þar til deigið þekur hana alla.
Pönnukakan á að vera eins þunn og mögu-
legt er. Ef soppan er of þykk má bæta við að-
eins meiri mjólk. Pönnukakan steikt í hálfa
til eina mínútu, þar til hún er gullinbrún. Þá er
pönnukökuspaða rennt meðfram pönnu-
barminum til að losa um pönnukökuna og
henni síðan snúið og hún steikt í fáeinar sek-
úndur á hinni hliðinni. Hvolft á disk eða borð
og næsta pönnukaka steikt. Bornar fram
með sykri eða með rjóma, sultu eða t.d.
karamellusósu og pekanhnetum.
Karamellusósa
100 ml rjómi
100 ml hrásykur eða púðursykur
75 g smjör
Allt sett í pott, hitað að suðu og látið sjóða í
nokkrar mínútur, þar til sósan er gullinbrún.
Morgunblaðið/hag
Pönnukökur með karamellusósu