SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Blaðsíða 21

SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Blaðsíða 21
31. janúar 2010 21 Ekki er hægt að sleppa einum fremsta handboltamanni Ís- landssögunnar án þess að spyrja hann út í „strákana okk- ar“ og nýjustu ævintýri þeirra í Austurríki. „Þetta er einstakt lið sem við eigum í dag,“ byrjar Geir nánast áður en spurningin er borin upp. Bros færist yfir and- litið. „Eitt það sterkasta í sög- unni. Það verð ég að við- urkenna,“ heldur hann áfram hlæjandi en Geir var um árabil fyrirliði í vel frambærilegu landsliði sem hafnaði meðal annars í fjórða sæti á Ólympíu- leikunum í Barselóna 1992. „Liðið í dag er einstök blanda af hæfileikaríkum leik- mönnum og öflugu þjálfarateymi. Þetta er vel innstillt vél sem hefur hvorki misst leikgleðina né húmorinn. Þær gerast ekki betri, blöndurnar.“ Spurður um möguleika Íslands um helgina svarar Geir því hiklaust til að liðið hafi alla burði til að fara í úrslit. „Vanda- mál íslenska landsliðsins gegnum tíðina hefur verið skortur á stöðugleika. Nú er hins vegar komið gott mót ofan í gott mót og að sjálfsögðu á liðið að stefna á gullið. Það hefur oft verið tabú að ræða um þessi markmið vegna þess að menn vilja ekki setja of mikla pressu á sig. Það er skiljanlegt en á móti kemur að það er sjálfsagt að gera kröfu til liðs sem hef- ur getuna til að fara alla leið. Hafandi sagt það verður það enginn heimsendir verði liðið ekki Evrópumeistari.“ Sá sig ekki í starfinu Hann ber sérstakt lof á Guðmund Guðmundsson þjálfara. „Hann hefur eflst gríðarlega sem þjálfari. Ekki svo að skilja að hann hafi verið slæmur fyrir, núna hefur honum hins veg- ar tekist að finna út sína veikleika og losa sig hreinlega við þá. Þjóðin stendur í þakkarskuld við mig fyrir að hafa ekki tekið starfið að mér á sínum tíma.“ Nú er dátt hlegið. Sem kunnugt er leitaði HSÍ til Geirs þegar Alfreð Gíslason hætti með landsliðið árið 2008 en að vel athuguðu máli hafnaði hann tilboðinu. „HSÍ sýndi mér mikið traust en ég sá mig ekki í þessu starfi til lengri tíma litið. Ég var nýbúinn að eignast barn og annað á leiðinni, auk þess sem ég var búinn að skuldbinda mig í annað starf. Þetta gekk einfaldlega ekki upp.“ Geir þjálfaði Val um tíma og viðurkennir að hann hafi stefnt í þessa átt. Þegar á reyndi hentaði starf hand- boltaþjálfarans honum hins vegar ekki. „Þetta er kvöld- og helgarvinna sem fellur illa að öllu fjölskyldulífi. Þetta er held- ur ekki vel borgað hér heima. Öðru máli gegnir um þjálf- arastörf erlendis. Satt best að segja hvarf neistinn á tíma- bili. Ég sagði því skilið við handboltann og skellti mér í meira nám.“ Geir iðrast einskis en viðurkennir að hann fái alltaf fiðring þegar stórmót hefjist. „Handbolti var stór hluti af lífi mínu í langan tíma og líklega losna ég aldrei við fiðringinn. Ég væri alveg til í að vera í Vínarborg núna.“ Þjóðin stendur í þakkarskuld við mig! Geir Sveinsson var valinn íþróttamaður ársins árið 1997. lægs áhuga á borgarmálum. Ég held að fjölbreytni sé af hinu góða og það hefur lengi verið hávær krafa um end- urnýjun í flokknum. Ég átti satt best að segja von á því að fleira nýtt fólk gæfi kost á sér að þessu sinni og hefði að ósekju viljað sjá tvö ný nöfn í hópi sex efstu á listanum. Þá er ég að hugsa um kosningarnar í vor. Ætli það séu ekki aðallega þau vonbrigði sem spegluðust í mínum fyrstu viðbrögðum.“ – Ertu með þessum orðum að gagnrýna störf núver- andi borgarfulltrúa flokksins? „Í raun ekki. Flokksmenn hafa sagt sinn hug og full- trúarnir sem gáfu kost á sér til áframhaldandi setu í borg- arstjórn fengu flestir hverjir góða kosningu. Jórunn dett- ur að vísu aðeins niður en aðrir geta vel við unað. Hanna Birna fékk mjög góða kosningu í fyrsta sætið og Gísli Mar- teinn vann að mínu mati góðan varnarsigur. Júlíus Vífill og Kjartan geta líka verið sáttir. Þá fékk Þorbjörg Helga næstflest atkvæði allra frambjóðenda, þannig að ekki þarf að kvarta undan hlut kvenna í þessu prófkjöri.“ – En … „Eins og ég sagði áðan. Ég hefði viljað sjá aðeins meiri endurnýjun, meiri ferskleika á listann.“ – Hvert er markmið flokksins í kosningunum? „Draumastaðan er að fá átta menn kjörna og þar með hreinan meirihluta en ætli raunhæft markmið sé ekki að verja þessa sjö sem flokkurinn hefur.“ – Rætt hefur verið um að nýr leiðtogi framsókn- armanna í borginni, Einar Skúlason, komi til með að leiða flokkinn til vinstri, nái hann á annað borð kjöri. Hver er þín tilfinning fyrir því? „Mér finnst alls ekki sjálfgefið að myndaður verði vinstrimeirihluti komi upp sú staða að Einar verði í odda- aðstöðu. Þvert á móti hefur gengið vel í tíð núverandi meirihluta og ekkert óeðlilegt að það samstarf haldi áfram.“ – Verður ekki að teljast ólíklegt að þið myndið meiri- hluta með Samfylkingu eða Vinstri grænum? „Í sögulegu samhengi er það ekki líklegt en annað eins hefur nú gerst í pólitík. Við megum heldur ekki gleyma því að ráðhúsið er annar vettvangur en Alþingi. Í mínum huga er lykilatriðið að gefa sér ekki niðurstöðu fyr- irfram.“ – Hver eru brýnustu verkefnin í borginni? „Það er mjög mikilvægt og algjör undirstaða alls annars Morgunblaðið/Ómar Korngörðum 2 | Sími 525 7000 | www.eimskip.is || Óskum íslenska landsliðinu velgengni á EM í handbolta. Eimskip styður við bakið á strákunum okkar. ÁFRAM ÍSLAND
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.