SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Síða 22
22 31. janúar 2010
að halda vel utan um fjármál borgarinnar. Það er sömu-
leiðis gríðarlega brýnt að borgaryfirvöld leiti allra leiða til
að draga úr atvinnuleysinu. Við búum við 10% atvinnu-
leysi. Það er mjög mikið og menn óttast að þessi tala eigi
enn eftir að hækka. Atvinnuleysi er slæmt fyrir sálarlíf
fólks, einkum til lengri tíma, auk þess sem það hefur
mikinn kostnað í för með sér fyrir samfélagið. Ég hef þá
trú að borgin sé á réttri leið í þessum efnum en það er
óhjákvæmilegt að ríkið leggist með á árarnar.
Af öðrum málum nefni ég mál sem snerta okkur á
hverjum degi, svo sem fjölskyldu- og skólamál. Málefni
aldraðra sem og fatlaðra. Það þarf að halda vel og vand-
lega utan um þá sem minna mega sín.“
– Íþróttir og hreyfing hljóta líka að vera ofarlega á
blaði?
„Heldur betur. Það er hjartans mál að gera betur í þeim
efnum í borginni. Hvers vegna hefur tíðni hreyfistunda í
skólum til dæmis ekkert breyst í þrjátíu ár? Allar rann-
sóknir benda til þess að fjölga þurfi hreyfistundum barna.
Það kostar ekki mikið að breyta þessu, þetta er fyrst og
fremst hugarfarsbreyting. Það er hins vegar ekki nóg að
gera þetta bara í skólunum, foreldrar þurfa líka að vera
með á nótunum og taka þátt í þessari hugarfarsbreytingu.
Þar á ég einkum við breytingu á matarræði.“
– Hveturðu börnin þín til íþróttaiðkunar?
„Já, ég vil að þau stundi íþróttir. Það hefur svo marga
kosti, nægir þar að nefna aga, markmiðasetningu, vináttu
og hópefli. Að ég tali ekki um líkamlegt atgervi. Íþrótta-
iðkun snýst ekki endilega um að komast á toppinn. Á
endanum verðum við öll afreksmenn á okkar hátt.“
Ekki framlenging á Villa
– Hefurðu alltaf verið sjálfstæðismaður?
„Já, faðir minn, Sveinn heitinn Björnsson, var vara-
borgarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í átta ár og ég
skráði mig ungur í flokkinn. Fram að þessu hef ég hins
vegar ekki verið virkur í innra starfi hans.“
– Tengdafaðir þinn, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, hefur
setið í borgarstjórn í 28 ár en dregur sig nú í hlé. Er það
ekki dálítið óvenjuleg staða?
„Ég hef nú aldeilis fengið að heyra það. Að Vilhjálmur
ætli að stjórna áfram gegnum mig og þar fram eftir göt-
unum. Það er auðvitað fjarstæða. Ég er engin framlenging
af Villa,“ segir Geir hlæjandi.
Hann gerir stutt hlé á máli sínu en heldur svo áfram al-
varlegur í bragði. „Ég fer algjörlega fram af eigin hvötum
og á eigin forsendum. Ég reyndi meira að segja markvisst
að slíta mig frá Vilhjálmi í kosningabaráttunni. Ekki vegna
þess að mér sé ekki hlýtt til hans, heldur vegna þess að ég
vil standa á eigin fótum.“
– En þú hlýtur að hafa leitað til hans meðan á próf-
kjörsbaráttunni stóð?
„Að sjálfsögðu. Annað væri óeðlilegt. Hver myndi ekki
leita til tengdaföður síns við þessar aðstæður? Vilhjálmur
býr yfir ofboðslegri reynslu og þekkingu á borgarmálum
og það er ekki ónýtt að geta leitað í smiðju til hans. Auð-
vitað tölum við saman. Það er hins vegar hlægilegt að
hann ætli sér að stýra mér. Það myndi ég aldrei taka í mál.
Ekki Vilhjálmur heldur.“
Almenn pólitísk þreyta
– Prófkjörsbaráttan var ekki sérlega hörð og þátttakan
heldur dræm, ekki satt?
„Það er rétt, það bar lítið á hörku milli frambjóðenda.
Það er líka rétt að þátttakan hefði mátt vera meiri. Fjöldi
þeirra sem greiddu atkvæði skreið þó yfir sjö þúsund sem
er ágætt í ljósi þess að menn óttuðust að þessi tala yrði
ekki nema sex þúsund. Ég held ekki að þetta lýsi stöðu
Sjálfstæðisflokksins sérstaklega, það er almenn pólitísk
þreyta í landinu. Flokkarnir eiga allir erfitt uppdráttar.“
– Hvernig er fyrir nýtt fólk að koma sér á framfæri í
prófkjöri?
„Afskaplega erfitt. Það er ójöfn keppni að fara á móti
fólki sem hefur haft a.m.k. fjögur ár til að sanna sig í
starfi. Sennilega hefur það samt veitt mér forskot að vera
þekkt nafn enda þótt það sé fyrir annað. Það er áhyggju-
efni hvernig nýtt fólk á að kynna sig. Það er til dæmis
mjög erfitt að komast í blöðin, þau eru alltaf að gæta jafn-
ræðis. Það hlýtur að vera eitt af hlutverkum fjölmiðla að
vekja athygli á nýju fólki í stjórnmálum? Þeir sem eru fyr-
ir eiga að fagna því að fá mótframboð og að mótframbjóð-
endur þeirra séu kynntir sérstaklega. Það sýnir ákveðinn
styrk og sjálfstraust.“
– En þeir gera það ekki.
„Nei, því m iður ekki allir. Því fékk ég að kynnast í
þessu prófkjöri. Þegar Evrópumótið í handbolta byrjaði
um daginn kom stutt viðtal við mig á Stöð 2, þar sem ég
var beðinn að spá í spilin. Nokkuð sem gerist iðulega þeg-
ar stórmót í handbolta byrjar. Nema hvað? Núna varð allt
vitlaust vegna þess að ég var í prófkjöri. Öðrum fram-
bjóðendum eða stuðningsmönnum þeirra þótti Stöð 2
sumsé ekki gæta jafnræðis. Þetta nær ekki nokkurri átt.“
Sömdu um útgjaldaþak
– Var framboð þitt dýrt?
„Það fer eftir því hvernig á það er lítið. Það kostaði á
bilinu 1,2 til 1,3 milljónir króna. Ég mat það svo, meðal
annars í ljósi áhugaleysis fjölmiðla, að ég þyrfti að eyða
svo miklum peningum. Sumir eyddu minna. Raunar
gerðu allir frambjóðendur með sér samkomulag þess efnis
að þeir myndu ekki verja meira en 1,5 milljónum króna í
prófkjörsslaginn. Við eigum að skila af okkur upplýs-
ingum um fjármál framboðsins um helgina og komi í ljós
að einhverjir hafi farið yfir þessi mörk er það miður. Ég
vona að svo sé ekki.“
– Óhætt er að fullyrða að traust almennings í garð
stjórnmálamanna sé í sögulegu lágmarki. Er ekki óðs
manns æði að hella sér út í pólitík á þessum síðustu og
verstu tímum?
„Það má vel vera. Ég hitti á dögunum mann sem situr í
hverfaráði fyrir Sjálfstæðisflokkinn og hann var ekkert að
skafa utan af hlutunum. „Það koma allir inn með góðan
vilja en fara svo beint í sama farið og þeir sem fyrir eru,“
sagði hann. Þetta lýsir ákveðnu vonleysi og ég skil mann-
inn að mörgu leyti. Ég fullvissaði hann hins vegar um að
ég ætlaði ekki í þennan sama farveg og segi það sama við
lesendur Morgunblaðsins.“
Mun vinna af heilindum
– Hvers vegna eigum við að trúa þér?
„Vegna þess að ég heiti því að vinna af heilindum í þágu
borgarbúa næstu fjögur árin. Að þeim tíma loknum geta
kjósendur dæmt mig af verkum mínum. Ég skal nefna
dæmi um mín vinnubrögð. Daginn fyrir prófkjörið var
hringt og þrýst á mig að mæta á Karlakvöld Fylkis. Hvers
vegna? Vegna þess að þarna voru sjö hundruð manns.
Möguleg atkvæði. Ég fór ekki, datt það raunar ekki í hug.
Hvers vegna á ég að gera eitthvað sem ég hef aldrei gert?
Og hvers vegna eiga sjö hundruð Fylkismenn að kjósa
mig? Vegna þess að ég mætti á Karlakvöld hjá þeim?
Heiðarleiki er grundvallaratriði í lífinu, í stjórnmálum
sem öðru, og við það ætla ég að halda mig. Það er líka
brýnt að fylgja sannfæringu sinni, það er aldrei hægt að
gera öllum til hæfis. Með þetta viðhorf legg ég af stað. Það
verður svo bara að koma í ljós hvort það dugar. Kannski
er ég bara einhver Don Kíkóti?“
’
Það hlýtur að vera eitt af hlut-
verkum fjölmiðla að vekja at-
hygli á nýju fólki í stjórn-
málum? Þeir sem eru fyrir eiga að
fagna því að fá mótframboð og að
mótframbjóðendur þeirra séu kynntir
sérstaklega. Það sýnir ákveðinn styrk
og sjálfstraust.
Það eru myndir á veggjum, leikföng í her-
bergjum. Það leynir sér ekki að börn eru á
heimili Geirs Sveinssonar. Hann staðfestir
að hann sé mikill fjölskyldumaður.
Kona hans er Jóhanna Vilhjálmsdóttir,
sem lengi hefur starfað við sjónvarp, nú
síðast Kastljós Ríkissjónvarpsins. Þau
eiga samtals fimm börn, Arnar Svein 18
ára (sonur Geirs af fyrra sambandi), Önnu
Björk 16 ára (dóttir Jóhönnu af fyrra sam-
bandi), Ragnheiði Katrínu 7 ára, Vilhjálm
Geir 2 ára og Svein, sem er þrettán mán-
aða.
Spurður hvort ekki sé líf og fjör á heim-
ilinu svarar Geir með breiðu brosi. „Svo
sannarlega.“
Lengi vel átti hann bara einn son og
segir það talsverð viðbrigði að vera á til-
tölulega skömmum tíma kominn með
fimm börn. „En þetta er ákaflega gef-
andi.“
Geir hefur verið þjóðþekktur maður í
meira en tvo áratugi en segir það aldrei
hafa truflað sig. „Ég hef verið heppinn. Ég
naut velgengni sem handboltamaður og
kannski hefur það hjálpað til. Ég hef aldr-
ei orðið fyrir neinum óþægindum persónu-
lega. Kannski breytist það núna þegar
maður er kominn út í pólitík?“
Hvaðan fengum við þennan rétt?
Hann staldrar við. „Mér finnst það komið
út fyrir öll velsæmismörk hvernig Íslend-
ingar tala orðið um annað fólk. Gott dæmi
um þetta er unga stúlkan sem tók þátt í
forkeppni Júróvisjón um daginn. Hún var
tekin af lífi í bloggheimum. Fólk er orðið
svakalega dómhart. Hvaðan fengum við
þann rétt? En er ekki rétt að menn byrji á
því að taka til í sínum eigin garði áður en
þeir ráðast á náungann. Þetta er helsta
ástæða þess að fólk gefur ekki lengur
kost á sér í pólitík. Ég viðurkenni fúslega
að illt umtal var einmitt það sem ég setti
helst fyrir mig meðan ég var að gera upp
hug minn í vetur. Ég hef engan áhuga á
því að vaða leðju og skít.“
Tengdafaðir Geirs, Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson borgarfulltrúi, hefur ekki farið
varhluta af illu umtali gegnum tíðina, ekki
síst í hinu umdeilda REI-máli. Geir lítur á
það sem víti til varnaðar. „Maður sá þess-
ar ljótu hliðar á umræðunni í því máli.
Fólk var alltof óvægið í garð Vilhjálms.
Umræðan átti ekki rétt á sér í þeirri mynd
sem hún á endanum birtist. Hvaðan kem-
ur þessi dómharka og gerræðisvald?“
Afdrifaríkt framboð
Hann segir umræðuna hafa skollið af
nokkrum þunga á sínu heimili. „Þetta
reyndist Jóhönnu mjög erfitt. Hún er með
ríka réttlætiskennd en í ljósi stöðu sinnar
sem starfsmaður Kastljóssins hafði hún
ekki tækifæri til að tjá sig um málið – fyrr
en nú,“ segir Geir en eins og fram hefur
komið var Jóhanna í hópi starfsmanna
sem sagt var upp störfum hjá Ríkissjón-
varpinu á dögunum.
Jóhanna gat á sínum tíma ekki tekið
þátt í umræðum um borgarmál í Kastljós-
inu og síðar pólitískri umræðu almennt
vegna faðernis síns. Geir hefur skilning á
þessu en segir að persónuleg tengsl inn í
pólitík hafi á endanum komið spúsu sinni
í koll. „Það var ekki bara niðurskurður
sem réð brottrekstri Jóhönnu, heldur
óbeint sú ákvörðun mín að bjóða mig
fram til setu í borgarstjórn. Það fengum
við staðfest tveimur dögum fyrir prófkjör.
Við hugsuðum aldrei svo langt að þetta
gæti gerst en svo virðist sem Kastljósið
hafi ekki lengur getað haldið manneskju
sem var bundin með þessum hætti en Jó-
hanna er ekki ósátt í hjarta sínu. Hún
hafði síðustu mánuði hugsað mikið um að
hætta til að láta drauma sína á öðrum
sviðum rætast. Hún er hæfileikarík mann-
eskja og hennar bíða ný og spennandi
tækifæri.“
Hvaðan kemur þessi dómharka?
Fjölskyldan. Geir, Anna Björk, Sveinn, Arnar Sveinn, Vilhjálmur Geir, Ragnheiður Katrín og
Jóhanna Vilhjálmsdóttir. Það er oftar en ekki handagangur í öskjunni á heimilinu í Hlíðunum.
Morgunblaðið/Ómar