SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Síða 11
28. mars 2010 11
Þ
egar breska popp-
hljómsveitin Kaja-
googoo lagði heiminn
að fótum sér með
fyrstu smáskífu sinni Too Shy
árið 1983 virtist framtíð sveit-
arinnar björt. Smellurinn fór
beint í fyrsta sæti breska
smáskífulistans og varð eitt af
fimm efstu lögunum á banda-
ríska Billboard listanum.
Söngvari Kajagoogoo, Chri-
stopher Hamill, var þá ný-
genginn til liðs við sveitina
sem áður hafði starfað sem
fjögurra manna sönglaust
hljóðfæraband. Hann tók sér
sviðsnafnið Limahl, sem var
eins konar stafarugl úr eft-
irnafni hans, og var ekki lengi
að bræða hjörtu unglings-
stelpna víðs vegar um heims-
byggðina með drengslegu út-
liti, aflituðum hárendum og
ríflegri gelnotkun sem þótti
með mikilvægari dyggðum á
þessum tíma.
Í kjölfarið á vinsældum Too
Shy kom hljómsveitin tveimur
lögum inn á breska listann án
þess þó að þau hlytu veru-
legan hljómgrunn. Vinsældir
Too Shy dugðu hins vegar
sveitinni drjúgt. Þannig sóttu
60 þúsund manns tónleika
hennar víðs vegar um Bret-
land sumarið 1983 í kjölfar út-
gáfu fyrstu breiðskífunnar,
White feathers.
Samband Limahls við félaga
sína í Kajagoogoo var þó alltaf
brothætt og skömmu eftir
tónleikaferðalagið ráku þeir
hann úr bandinu í gegn um
síma.
Í kjölfar brottrekstursins
ákvað Limahl að hefja sólóferil
og tvínónaði ekkert við hlut-
ina heldur kom árið 1983 lag-
inu Only for Love í 16. sæti
breska listans. Hann komst
svo næst því að ná fyrri hæð-
um árið eftir þegar hann söng
titillag Georgio Moroders við
kvikmyndina The Never End-
ing Story sem fór eins og eld-
ur í sinu um heimsbyggðina.
Þetta reyndist þó skammgóður
vermir fyrir Limahl. Fyrsta
sólóbreiðskífa hans, Don’t
Suppose var algerlega mis-
heppnuð og sama má segja um
plöturnar Colour All My Days
frá 1986 og Love Is Blind frá
1992.
Eftir það lá leiðin bara niður
á við. Frægt varð þegar ljós-
mynd af Limahl að koma út af
atvinnuleysisskrifstofu birtist í
bresku götublaði. Seint á tí-
unda áratuginum fór hann að
troða upp á næturklúbbum
þar sem hann flutti forna
frægðarsöngva íklæddur app-
elsínugulri hárkollu sem svip-
aði til einkennishágreiðslu
hans frá Kajagoogoo árunum.
Limahl, sem er hommi, hef-
ur aldrei fest ráð sitt en bjó
um tíma með plötusnúðnum
Paul Gambaccini. Báðir neit-
uðu því að vera ástmenn.
Seint á árinu 2003 komu
Limahl og félagar hans úr
Kajagoogoo saman fyrir sjón-
varpsupptöku en sú uppákoma
leiddi ekki til frekara samspils
þeirra að sinni. Árið eftir var
Limahl þátttakandi í þýskum
raunveruleikaþætti sem gekk
út á endurkomu fallinna
stjarna og í svipuðum þætti í
bresku sjónvarpi árið 2005.
Fyrir tveimur árum gerðust
svo þau undur og stórmerki að
Limahl sameinaðist Kaja-
googoo á ný og hefur sveitin
troðið upp á tónlistarhátíðum
í Danmörku, Skotlandi, Pól-
landi og víðar í Evrópu. Að
auki tók sveitin upp og gaf út
fjögur ný lög árið 2008.
Það nýjasta sem frést hefur
af Limahl og félögum er að
þeir muni troða upp í sumar á
tónlistarhátíðinni 80’s Rewind
Festival við ána Thames í
Bretlandi, sem ku vera ein
stærsta tónlistarhátíð í heimi
sem helguð er tónlist níunda
áratugarins. ben@mbl.is
Hvað varð um...
Limahl?
20071983