SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Qupperneq 13

SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Qupperneq 13
28. mars 2010 13 Óteljandi brandarar hafa verið sagðir í kjölfar bankahrunsins á Íslandi og annars staðar í heiminum. Sumt er heimasmíð- að, annað þýtt og staðfært. Dagbjört seg- ir mjög mikið um að efni sé sett á netið án þess að höfundar sé getið. Við smíði ritgerðarinnar hafi hún í mörgum tilfellum komist að nafni höfundar, en þeir vinsam- lega beðið hana um að geta þeirra ekki. Þessi brandari gekk víða: Hvernig er best að skilgreina bjartsýni í kreppunni? „Þegar bankastarfsmaður straujar fimm skyrtur á sunnudegi.“ Eyþjóðin hafði gaman af þessum: Það eru bara tvær leiðir fyrir Íslendinga út úr kreppunni. Icelandair og Iceland Express. Hér er annar: Hvers vegna eru fast- eignasalar hættir að horfa út um gluggann fyrir hádegi? „Svo þeir hafi eitthvað að gera eftir hádegi.“ Margir hlógu að þessum, þó svo að mál- efnið sé langt frá því að vera fyndið: Maður kemur að máli við bankastjóra sinn, segist vilja stofna lítið fyrirtæki og bið- ur hann um gott ráð. „Það einfalt að gera það,“ segir banka- stjórinn. „Þú kaupir stórfyrirtæki og bíður svo aðeins.“ Þennan þarf vart að útskýra: Fjármálakreppan hefur komið mér aftur á lappirnar. Það er búið að taka af mér bílinn.“ Dagbjört segir að algengustu skopstæl- ingar í myndrænu formi eftir hrunið hafi verið þess eðlis að gert var grín að plak- ati kvikmynda. „Andlitum, texta og ýms- um smáatriðum hafði þá gjarnan verið breytt og úr urðu auglýsingar fyrir kvik- myndir sem fjölluðu um tiltekið efni. Þarna kemur frumverkið sterkt inn. Þegar kápan af kvikmyndinni Liar Liar var skop- stæld og myndinni af Jim Carrey skipt út fyrir Björgólf Guðmundsson var það engin tilviljun. Verið er að vísa í lygar og svik, vísa í ástand sem virtist gott en var í raun slæmt. Næstum und- antekningalaust höfðu þessar kvik- myndakápur tilvísun í raunverulega at- burði eða persónueinkenni fólksins sem fjallað var um og um leið tengingu við efni hinnar raunverulegu kvikmyndar sem var frumverkið. Skopstælingar eru samt þess eðlis að þær geta verið fyndnar þrátt fyrir að þeir sem skoði þær þekki ekki til frumverksins – þær eiga tvöfalt líf.“ „Þú kaupir stórfyrirtæki og bíður svo aðeins“ Dagbjört nefnir dæmi um texta sem var skopstældur eftir hrun- ið, kunnan texti við lagið Sökn- uður sem Vilhjálmur Vilhjálms- son söng fyrir margt löngu. „Þetta lag hefur hljómað við jarðarfarir fjölmargra Íslendinga og táknar í hugum margra sorg. Á vissan hátt er þetta hlutverk lagsins „heilagt“ og ekki viðeig- andi að skopstæla það en sú staðreynd að það var gert ýtir ef til vill enn frekar undir það hversu óviðeigandi allt var sem útrásarvíkingarnir gerðu.“ Annað dæmi nefnir hún; þeg- ar Baggalútur söng í skopstæl- ingu sinni á laginu Woman in love: Allt þetta útrásarpakk át á sig gat svo loftbólan sprakk. Nú eru lífskjörin skert, mannorðið svert, Hvað hafið þið gert? „Heilagur“ texti skop- stældur Segja má að engu hafi verið eirt þegar kom að skopstælingum í kjölfar hrunsins. „Textar úr þekktum barna- leikritum voru skopstældir í anda útrásarvíkinganna og má þar nefna lög úr Dýrunum í Hálsaskógi og Kardemommu- bænum. Þó svo að leikritin séu ekki íslensk að uppruna má segja að þau séu á vissan hátt eign Íslendinga þar sem þau hafa verið vinsælustu barna- leikritin í nokkrar kynslóðir og eru sett upp aftur og aftur. Fólk kann textana og lögin og getur sungið með. Síðast en ekki síst tákna þau sakleysi.“ Dagbjört segir barnalög ekki eiga að tengjast umræðu um efnahagsástandið „en komandi kynslóðir eiga ekki heldur að borga skuldir örfárra ein- staklinga sem fóru illa með pen- inga. Þó að framsetningin sé mismunandi má því finna ádeilu í öllum skopstælingunum og þar leikur frumtextinn einmitt stórt hlutverk. Þjóðarstolt, nátt- úrufegurð, þjóðlegur fróðleikur, barnslegt sakleysi – allt var traðkað niður af vanvirðingu útrásarvíkinganna.“ Ádeila í öll- um skop- stælingum Morgunblaðið, í samstarfi við Heimsferðir, býður áskrifendum sínum frábært tilboð til tveggja af helstu borgarperlum Evrópu, Barcelona og Búdapest. Um er að ræða tvær fjögurra nátta helgarferðir 22. apríl til Barcelona og 29. apríl til Búdapest. Um mjög takmarkaðan fjölda flugsæta er að ræða í hvora ferð og gisting er einnig takmörkuð. Hér gildir að fyrstur kemur, fyrstur fær! Barcelona & Búdapest Ótrúleg sértilboð! Glæsileg gisting í boði! frá 74.900 kr. flug og gisting í fjórar nætur Verðdæmi og valkostir: Áskr. verð Alm. verð Þú sparar frá allt að allt að Barcelona 22.-26. apríl Hotel City Park Nicaragua **** 86.900 107.700 20.800 Hotel Gargallo Gotico **** 92.900 110.700 17.800 Hotel Avenida Palace ****+ – glæsilegur kostur 97.800 118.100 20.300 Búdapest 29. apríl - 3. maí Hotel Mercure Duna *** 74.700 92.900 18.200 Hotel Marmara **** – glæsilegur kostur 79.700 104.800 25.100 Innifalið: Flug, skattar, gisting í tvíbýli með morgunverði í 4 nætur og íslensk fararstjórn. Verð er netverð á mann. Ferðir til og frá flugvelli eru ekki innifaldar, en þær kosta kr. 2.400 báðar leiðir í Búdapest og kr. 3.400 í Barcelona. Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is E N N E M M / S IA • N M 41 3 78 B irt m eð fy rir va ra um p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja sé r ré tt til le ið ré tt in g a á sl ík u. A th .a ð ve rð g et ur b re ys t án fy rir va ra . Þú mætir með miðann sem fylgir Morgunblaðinu í dag til Heimsferða, Skógarhlið 18, eða á einhverja af umboðsskrifstofum þeirra. Einnig er unnt að bóka tilboðið á www.heimsferdir.is Ath. mjög takmarkaður fjöldi sæta og gistingar í boði á þessu sértilboði. Verð getur hækkað án fyrirvara Þú sparar allt að25.100 kr.á mann- allt að 50.200 kr. m.v. aðtveir ferðist saman * Barcelona 22.-2 6. apríl Búdapest 29. a príl - 3. maí

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.